Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Síða 45
19.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
Tryggir fullkomna mælingu á margskiptu gleri
Skjár sem sýnir þér nýju gleraugun frá öllum hliðum
Fljótlegt og einfalt ferli
Skilar þér fullkomnu gleri fyrir þína sjón
BYLTINGARKENND NÝJUNG
í mælingum á margskiptum glerjum
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200
OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18 LAUGARDAGA 11:00- 14:00
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 18 ÁR
Við kaup á nýjum
Essilor glerjum*
færðu önnur frítt með.
*Á við um öll venjuleg og margskipt gler. Gildir til 20. desember.
Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir, söng-
kona með meiru, verður í hátíðar-
skapi um helgina. Á sunnudag kl.
16.00 heldur hún tónleika í Salnum í
Kópavogi með Einari Clausen tenór
og hljómsveit. Ragnhildur syngur þar
lög sem móðir hennar Adda Örnólfs
gerði fræg á sínum tíma en Adda á
einmitt 60 ára söngafmæli um þessar
mundir.
Hvað eruð þið mörg á
heimilinu?
Við erum fimm manna fjölskylda en
elsta dóttirin flutti að heiman og
hélt til Berlínar á vita ævintýranna í
haust. Svo er það tíkin okkar Bella
(símamær) sem er eins árs og elsk-
uð og dekruð af öllum.
Hvað áttu alltaf til í
ísskápnum?
Þetta sígilda: ost og smjör og
skinku, þ.e. allt sem þarf til að búa
til brauð í samlokugrilli eins og
börnin bentu á. Mjólk og ab-mjólk
verður líka að vera til í morgun-
matinn. Svo er það auðvitað efsta
hillan í ísskápnum sem er full af
sósum og sultum sem einhvern-
veginn dagar þar uppi og eru þess
vegna alltaf til.
Hvað kosta innkaupin fyrir
vikuna?
Þetta er spurning sem ég reyni
yfirleitt að forðast að spyrja mig til
að halda sönsum, en ég held að það
hljóti að vera a.m.k 50.000 krónur
að jafnaði. Er sem sagt bjáluð
eyðslukló miðað við neysluvið-
miðið sem er í umræðunni í dag.
Hvar kaupirðu í matinn?
Ég versla nær eingöngu í hverfis-
búðunum og þá helst í Krónunni á
Fiskislóð sem er frábær verslun.
Nóatún og Víðir eru í göngufæri
og ég fer í þær verslanir þegar mig
vantar eitthvað tilfallandi.
Hvað freistar mest úti í
búð?
Það freistar margt í búðinni og ég
er fræg fyrir það að koma heim
sliguð af pokum þegar ég skrepp út
eftir mjólk og brauði.
Hvernig spararðu í
heimilsrekstrinum?
Ég ætla að nota þetta svar til að
hrósa manninum mínum sem er
snillingur og getur gert við allt sem
bilar og smíðað það sem þarf. Svo
þarf hann ekki að fara í klippingu.
Mikill sparnaður í því.
Hvað vantar mest á
heimilið?
Ég keypti gufusuðupottinn sem mig
vantaði sárlega í síðasta mánuði og
núna er ekkert sérstakt á listanum.
Það má frekar orða það þannig að
eftir rúmlega 20 ára búskap sé
komin þörf á að endurnýja ýmislegt
frekar en að það vanti.
Eyðir þú í sparnað?
Ég er ekki í reglubundinni áskrift að
sparnaði en reyni samt að eiga
varasjóð og að eiga fyrir því sem ég
kaupi.
Skothelt sparnaðarráð?
Mér dettur margt í hug eins og að
halda nákvæmt heimilisbókhald,
borða ekki á milli mála og hugsa út
í bensínkostnað þegar brunað er út
um allan bæ. Ég held að almenn
hófsemi og skynsemi skili mestum
sparnaði þegar upp er staðið.
NEYTANDI VIKUNNAR RAGNHILDUR DÓRA ÞÓRHALLSDÓTTIR SÖNGKONA
Með sósusafn
í ísskápnum
Ragnhildur segir
fátt vanta eftir 20
ára hjúskap en
sumt megi fara
að endurnýja.
Morgunblaðið/Þórður