Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Síða 2
Hvernig er að vera komin aftur á skjáinn? Það er bara mjög skemmtilegt. Skemmtilegast finnst mér þó vinnuum- hverfið, það er góð stemning í Efstaleitinu og frábært samstarfsfólk. Hvernig er að vinna með Jóni Ólafssyni? Jón er auðvitað algjör viskubrunnur um íslenska tónlist þannig að ég hef þurft að hafa mig alla við og lesa tónlistarbækur dag hvern til að reyna að halda í við hann. Hann er frábær samstarfsmaður, sífellt kátur og mátulega kærulaus. Átt þú eitthvert sérstakt óskalag? Ójá, heldur betur, en þar sem við ætlum með hjálp þjóðarinnar að finna óskalag þjóðarinnar verð ég að vera þögul sem gröfin þangað til. Er einhver íslenskur tónlistarmaður í uppáhaldi hjá þér? Ég held upp á mjög marga íslenska tónlistarmenn og það er virkilega gaman að fylgjast með uppganginum í tónlistinni hér heima og þá sér- staklega meðal kvenna. Sífellt fleiri ungar stúlkur eru byrjaðar að gera sína eigin tónlist og stofna stúlknasveitir. Þessi þróun eykur ekki einungis tónlistarflóruna heldur fáum við líka fullt af kvenkyns fyrirmyndum sem er þakklátt. Nú hefur þú unnið að gerð ófárra sjónvarpsþátta, er eitthvað sem þér finnst sérstaklega gaman að gera? Mér finnst alltaf ferlega skemmtilegt að vinna í stórum útsendingum þar sem pressan er mikil og nóg um að hugsa. Ísþjóðin er líka eitt af þeim verk- efnum sem mér þykir afskaplega vænt um og skemmtilegt að gera. Þar vinnum við oftast bara tvö, ég og Eiríkur Ingi Böðvarsson, þannig að þátta- gerðin verður mikil samvinna. Mér finnst líka æ skemmtilegra að framleiða, klippa, taka upp og stjórna bak við tjöldin. Þar lærir maður mest þótt mað- ur læri auðvitað alltaf mikið af því að vera á skjánum. Kannski er þetta stjórnsemisgenið í mér eða eitthvað álíka en það er svo gaman að gera eitt- hvað frá grunni og taka þátt í öllu ferlinu. Ég er svo heppin að fá að gera hvort tveggja hjá RÚV. Er Ísþjóðin komin á ís eða verður framhald? Fjórða sería af Ísþjóðinni hefst eftir áramót. Við erum nú þegar byrjuð í upptökum og ég held að mér sé óhætt að lofa frábærum þáttum. Við eigum svo mikið af ungu og hæfileikaríku fólki að ég hef átt í mesta basli við að velja bara átta einstaklinga. Hvað er síðan í vændum hjá þér? Við Skarphéðinn dagskrárstjóri erum að fara að setjast yfir jólaþátt sem ég bjó til í fæðingarorlofinu mínu. Það má því segja að ég sé að komast í jólastuð og piparkökubakstur sé á næsta leiti! RAGNHILDUR STEINUNN JÓNSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.10. 2014 Svar: Ég er ekki mikill aðdáandi. Ég óttast að þetta leiði af sér að fleiri byssur verði í undirheimunum. Snorri Sigurðarson, 23 ára. Svar: Mér finnst þetta svolítill óþarfi því það tekur sérsveitina ekk- ert langan tíma að mæta á vettvang. Marsibil Ósk Helgadóttir, 17 ára Svar: Eru þetta ekki góð vopn? Þarf ekki okk- ar fólk að hafa vopn til taks þó það sé ekki í bílunum? Við erum líka með sérsveitina. Friðrik Helgi Ragnarsson, 73 ára. Svar: Ég óttast að undirheimar vopnist þá á móti. Að með vopnum komi vopn. Steinunn Ólína Hafliðadóttir, 18 ára. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. SPURNING DAGSINS HVAÐ FINNST ÞÉR UM NORSKU VOPNIN? Feneyjar eru draumastaður elsk- enda, enda fátt jafn rómantískt og að líða um á gondóla í örmum þess sem maður elskar. Það er þó langt því frá ókeypis að ferðast um hina víðfrægu fenja- borg. Ferðalög 22 Í BLAÐINU Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson Elísabet Karlsdóttir fatahönnuður hefur flottan fatastíl. Elísabet velur vönduð efni og klæðileg og góð snið en efst á óskalistanum fyrir veturinn eru of stórar kápur og hlýjar peysur. Tíska 40 Næstu þrjár bækur í tíu bóka seríunni um fígúruna MiMi eru komnar út. Bækurnar eru byggðar á táknum með tali sem er notað til að þjálfa börn með tal- og málþrosk- araskanir. Hanna Krist- ín og Hjalti vilja ná til foreldra, enda bækurnar afar gott hjálpartæki. Fjölskyldan 19 Inga Björk Guð- mundsdóttir byrjaði að halda matarboð fyrir vinkonur sínar þegar hún var sex ára gömul og eldaði þrí- réttað fyrir þær og gerir auðvitað enn. Matur 32 Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir stýrir sjónvarpsþættinum Óskalög þjóðarinnar sem sýndur er á RÚV á laugardagskvöldum. Ragnhildur ritstýrir einnig nýjum þætti fyrir ungt fólk sem heitir ,„Hæpið“ og er einnig sýndur á RÚV. Morgunblaðið/Kristinn Fullt af kvenkyns fyrirmyndum Í grein í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem birtist um síð- ustu helgi var ranghermt að Neytendasamtökunum bærust um 34 erindi frá almenningi að meðaltali á viku. Hið rétta er að 34 erindi berast samtökunum á dag. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.