Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.10. 2014
Matur og drykkir
Á
kveðin tímamót urðu í
lok vikunnar þegar Bjór,
alíslensk bjórbók kom út
í fyrsta sinn. Um er að
ræða bæði skemmti- og fræðslubók
en höfundar hennar eru Bjórskóla-
kennararnir með meiru Stefán
Pálsson og Höskuldur Sæmunds-
son. Þetta er engin venjuleg glans-
myndabjórbók en hana prýðir
fjöldi teikninga eftir listakonuna
Rán Flygenring. Crymogea gefur
út en forlagið hefur hingað til verið
þekktara fyrir útgáfu veglegra
lista- og samfélagslegra bóka.
„Það hefur svo ofboðslegur fjöldi
verið gefinn út af bjórbókum, sem
maður hefur skoðað í gegnum tíð-
ina. Þá rekur maður augun í að
stundum eru menn bara að reyna
að slá um sig, telja upp fjöldann
allan af tegundum sem er í raun
ekki hægt að ná í. Það var ekki
markmiðið hjá okkur. Hugsunin
var að taka mið af veruleikanum
eins og hann blasir við okkur
hérna heima. Að velflestir bjór-
arnir séu eitthvað sem fólk geti
vænst þess að komast í án þess að
fara landa á milli. Jafnframt tókum
við mið af því hver væru þekktustu
nöfnin og flestir hafa reynslu af og
höfum svo annað flóknara í bland,“
útskýrir Stefán, sem tekur að sér
að svara spurningum fyrir hönd
höfundanna.
„Við rekjum líka söguna. Hún er
oft furðu vanrækt. Það er enginn
hörgull á bókum sem sýna myndir
af mörg hundruð flöskum og telja
upp innihaldslýsingar og bragðlýs-
ingar, sem skilar sér illa í texta.
Við höfðum meiri áhuga á að segja
sögur út frá viðkomandi bjór, hvort
sem það er miðanum, nafninu eða
fyrirtækinu og tengja það við al-
mennari fróðleik,“ segir hann en í
upphafi bókarinnar er líka fjallað
almennt um bjór, bjórgerð og
sögu.
Hver bjór fær heila opnu
Af nógu er að taka en í heiminum
öllum eru til þúsundir bjórtegunda
og er bjórinn jafnframt þriðji vin-
sælasti drykkurinn, á eftir tei og
vatni. Undirtitill bókarinnar er ein-
mitt „umhverfis jörðina á 120 teg-
undum“ en í bókinni fær hver bjór
heila opnu og er túlkaður með
teikningu. Við hvern bjór er síðan
að finna ýmsar gagnlegar upplýs-
ingar og lifandi texta þar sem
húmorinn er aldrei langt undan.
„Ég skal alveg viðurkenna að
þegar við lögðum af stað þá sá
maður fyrir sér frekar billega út-
gáfu með iðnaðarjósmyndum af
hverri bjórflöskunni á fætur ann-
arri með glitrandi dropum,“ segir
Stefán, sem reifaði hugmyndina í
almennu spjalli við Kristján B.
Jónasson útgefanda hjá Crymogeu.
„Hann er með þetta forlag sem
hefur sérhæft sig í listaverkabók-
um og það kom aldrei til greina að
hann færi að gefa út slíka bók,“
segir hann en hjá útgáfunni er
mikið lagt upp úr útliti og gæðum
bókanna, leturgerðir, pappír og
prenttækni eru í fyrirrúmi.
„Hann tengir okkur við Rán Fly-
genring. Hún fær textana senda til
sín og fær frjálsar hendur,“ segir
hann en myndirnar í bókinni eru
mjög skemmtilegar og fjölbreyti-
legar. Hönnun bókarinnar var síð-
an í höndum Harðar Lárussonar.
„Það hefði ekki verið mögulegt
að gera svona svona bók mikið fyrr
á Íslandi. Það hafa komið út tvær
bækur um bjór á íslensku frá því
að bjórinn var leyfður en báðar
voru að mestu þýddar með ein-
hverri staðfærslu,“ segir hann en
ekki eru nema 25 ár síðan bjór var
leyfður á Íslandi. „Á síðustu sex,
sjö árum hefur orðið mikil bjór-
vakning og það hefur verið að
fjölga þessum litlu framleiðendum.
Blöðin skrifa bjórrýni og það fer
allt á hliðina þegar jólabjórinn
kemur. Ísland er orðið bjórútflutn-
ingsland en það er talsvert mikið
afrek að geta selt milljónaþjóðum
með sína löngu og miklu sögu
framleiðsluna okkar.“
Sífellt verið að falsa söguna
Hann segir bókina hafa kallað á
talsverða rannsóknarvinnu en
margt sé á huldu í sögu bjórsins,
jafnvel hjá stórum alþjóðlegum
vörumerkjum. Hann segir bjór-
bransann vera nútímalegan mat-
vælaiðnað sem hafi alltaf notað
nýjustu þekkingu en vilji draga
upp þá ímynd að allt sé svo gamalt
Morgunblaðið/Þórður
UMHVERFIS JÖRÐINA Á 120 BJÓRTEGUNDUM
Þriðji vinsælasti drykkurinn
FYRSTA ALÍSLENSKA BJÓRBÓKIN EFTIR STEFÁN PÁLSSON
OG HÖSKULD SÆMUNDSSON VAR AÐ KOMA ÚT. ÞETTA
ER SKEMMTI- OG FRÆÐSLUBÓK ÞAR SEM HÚMOR OG LIST-
RÆNT GILDI ER ALDREI LANGT UNDAN.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Stefán Pálsson og Höskuldur
Sæmundsson eru höfundar
fyrstu alíslensku bjórbók-
arinnar. Þeir eru jafnframt
kennarar við Bjórskólann og
kunna að meta góðan bjór.
Þetta er engin venjuleg glansmyndabjórbók en hana prýðir fjöldi
skemmtilegra teikninga eftir listakonuna Rán Flygenring.