Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Blaðsíða 25
26.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Vísindamenn við Háskólann í Glas-
gow rannsökuðu hvernig búseta í
dreifbýli getur haft áhrif á stuðning
við eldra fólk. Eldra fólk sem bjó í
dreifbýli var líklegra til að fara síður
og þá síðar á ævinni á hjúkrunar-
heimili og njóta meiri stuðnings
ættingja og vina.
Búseta í dreifbýli
meira styðjandi
Þeir sem naga á sér neglurnar og
vilja hætta því gætu prófað ýmis
ráð. The Telegraph birti grein um
vandann og ráðleggur fólki að taka
einfaldlega sjálfsmyndir af sér á sím-
ann, nagandi neglur, til að sjá
hversu kjánalega það lítur út við
þessa athöfn. Einnig sé sniðugt að
byrja á að velja sér nögl sem maður
ákveður að naga ekki og bæta fleiri
nöglum svo smám saman við.
Að hætta að
naga neglur
Borgarljós geta samkvæmt nýjum rann-
sóknum haft áhrif á líkamlega heilsu okkar og
andlega til hins verra. Á það einkum við stór-
borgir þar sem sterk ljós frá háhýsum, skilt-
um, götum og verslunum skína allan sólar-
hringinn.
Það eru vísindamenn við eðlisfræðideild há-
skólans í Hong Kong sem hafa rannsakað áhrif
ljósmengunar á fólk. Flestir þekkja það hve
greinilega stjörnurnar sjást þegar komið er út
úr þéttbýli en ljósmengun í stórborgunum er
þannig að skýin og tunglið sjást stundum varla.
Vísindamenn segja að hreinlega þyrfti að
setja ekki aðeins íbúa í háttinn heldur stór
svæði borganna og slökkva til dæmis á auglýs-
ingaskiltum.
Ljósmengun getur valdið kvíða, svefnt-
ruflunum og framleiðsla líkamans á mela-
tóníni raskast en melatónín er hormón sem
leysist úr læðingi þegar kvöldar og mela-
tónínið veldur syfju. Þegar borgarljósin
draga úr áhrifum rökkursins er svefnhöfg-
inn lengur að færast yfir. Birtan er því óeðli-
leg og líkaminn veit ekki hvernig hann á að
bregðast við. Samfara kvíða og svefnleysi
verður hjartsláttur örari, hugurinn er sí-
starfandi og hitastig líkamans lækkar ekki
eins og eðlilegt er. Þeir sem fara í útilegur
ættu að finna hvernig þeir verða fyrr syfj-
aðir og sofa lengur. Það er sem sagt ekki
útiloftið sem gerir þetta að verkum heldur
ljósleysið.
Svefnleysi í borginni
Borgarljósin hafa mikil áhrif á svefn og kvíða samkvæmt rannsóknum við háskólann í Hong Kong.
AFP
Margir kannast
við svokallaðar
„foam flex“-
rúllur sem not-
aðar eru til að
rúlla líkamanum
eftir og losna
þannig við
vöðvabólgu. Ný
tegund af rúllum,
Grid X, sem er
með þéttara yf-
irborði og áferð,
er að slá í gegn
ytra og hefur David Beckham með-
al annars lýst því yfir að hann noti
þær til að vinna á bólgum í lík-
amanum.
Rúllurnar að
slá í gegn
Velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
• BMMótun: Aðaláherslan lögð á styrk, liðleika og góðan líkamsburð.
• 50-60 plús - Fit Form: Lokaðir tímar, markviss þjálfun, þol - styrkur - teygjur.
• Yoga: Grunn- og framhaldsnámskeið, lokaðir tímar.
Síðustu námskeið fyrir jól
Leggðu rækt við þig
og lifðu góðu lífi!
BMMótun, æfingakerfi BáruMagnúsdóttur
Yoga, kenna
ri Steinunn Ó
lafardóttir
Yoga