Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Blaðsíða 12
Alþjóðlegur bangsadagur er haldinn hátíðlegur víða á
mánudag, 27. október. Bókasöfn víða um land eru til að
mynda með einhvers konar dagskrá auk þess sem
grunnskóla- og leikskólabörn mæta mörg hver með
bangsa í skólann í tilefni bangsadagsins á mánudag.
Ástæða þess að einmitt þessi dagur, 27. október, er
valinn sem alþjóðlegur bangsadagur er sú að dagurinn
er fæðingardagur Theodore Roosevelts Bandaríkja-
forseta.
Sagan segir að forsetinn, sem jafnan
var kallaður Teddy, hafi farið eitt sinn
á bjarnarveiðar í Missisippi árið 1902
en þegar kom að því að skjóta bjarn-
dýr hafi hann neitað að gera það
sjálfur. Úr þessari sögu varð til
skopteikning í bandaríska blaðinu
The Washington Post þar sem
björninn var orðinn að litlum
húni.
Í kjölfarið tók verslunareigand-
inn Morris Michtom sig til og hóf
að framleiða brúna leikfangabangsa
sem hann nefndi „Teddy’s Bear.“ Bangsarnir urðu
fljótt vinsælir og á sama tíma var raunar þýskur leik-
fangaframleiðandi að nafni Steiff sem sýndi svipaðan
leikfangabangsa á sýningu í Leipzig sem einnig naut
vinsælda.
Bangsinn sem leikfang varð því í raun til upp úr
skopteikningu þar sem góðlátlegt grín var gert að for-
seta Bandaríkjanna. Síðan þá hefur hann komið fram í
óteljandi myndum, stærðum og gerðum.
Hver hefði getað séð fyrir að þessi skopmynd í Washington Post árið 1902
ætti eftir að valda straumhvörfum í leikfangamenningu í heiminum?
Bangsar í brennidepli á mánudag
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.10. 2014
Karl Garðarsson þingmaður Framsókn-arflokksins kaus að gera sýknudóma í mál-um sérstaks saksóknara gegn nokkrum
einstaklingum að umtalsefni á alþingi á þriðjudag-
inn.
Fyrst veik Karl að embætti sérstaks saksókn-
ara:
„Embætti sérstaks saksóknara var komið á fót
til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi sem
tengist bankahruninu á Íslandi árið 2008, hvort
sem hún tengist starfsemi fjármálafyrirtækja,
annarra lögaðila eða einstaklinga. Núna fimm ár-
um og tæpum 6 milljörðum kr. síðar, sem er kostn-
aðurinn við embættið, er árangurinn helst til rýr.“
Fyrir hvern er það „helst til rýr“ árangur að
sýknað hafi verið í ýmsum málum frá sérstökum
saksóknara? Er það ekki miklu fremur ánægjuefni
fyrir hvert þjóðfélag ef menn hafa haldið sig innan
ramma laganna að mati dómstóla?
Auðvitað hafa ýmsir í rúm sex ár reynt að telja
fólki trú um að skýringar á falli íslensku bankanna
muni koma fram með lögreglurannsóknum og að
einn góðan veðurdag bendi sérstakur saksóknari á
gæjana sem stálu neglunni úr þjóðarskútunni.
Þegar litið er til þess að hvarvetna á Vestur-
löndum varð fjöldi banka ýmist gjaldþrota eða
bjargað með fjármunum skattgreiðenda á árunum
2007 til 2009 er það hins vegar undarleg ósk að það
sannist sérstaklega á starfsmenn íslensku bank-
anna að þeir hafi haft rangt við. Annað sé „heldur
rýr“ árangur.
Kannski ættu menn heldur að reyna að venjast
þeirri tilhugsun að bankar geti lagt upp laupana
rétt eins og öll önnur fyrirtæki. Og að gjaldþrot
banka þurfi ekki endilega að bera að með saknæm-
um hætti.
Karl bætti svo við:
„Var það regluverk og sú lagaumgjörð sem
bankamenn unnu eftir svo götótt að sakfelling í
þessum stóru málum var nánast ómöguleg? Erum
við að setja sérstakan saksóknara og starfsmenn
hann í nánast vonlausa stöðu þegar kemur að
rannsókn mála? Þurfum við að líta í eigin barm?“
Hér var regluverk Evrópusambandsins um fjár-
málamarkaði í gildi vegna aðildar Íslands að EES
löngu fyrir bankahrun. Í aðlögun Íslands við ESB
á síðasta kjörtímabili kom frá hjá framkvæmda-
stjórn sambandins að löggjöf hér á landi um fjár-
mál væri „highly aligned“ við löggjöf sambandsins.
Ef löggjöf var „götótt“ hér var hún það um alla
Evrópu.
En um allt þetta getur Karl spurt flokksbræður
sína sem fóru samfellt með ráðuneyti bankamála
frá 1995 til 2007.
Sérstakur og leitin að
ástæðum bankahrunsins
* Það lítur út fyrir að lög-in séu ekki gölluð heldurheldur miklu frekar hug-
myndir sumra um saknæmi.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigridur@sigridurandersen.is
Byssumálið svokallaða hefur farið
mikinn í netheimum undanfarið.
Fésbókin er þar ekki undanskilin.
Bragi Valdimar Skúlason hafði
nokkuð skondið
til málanna að
leggja í byrjun
viku. „Ferlega sætt
af Norðmönnum
að gefa okkur
hríðskotabyssur. Eigum við ekki
örugglega nóg af fingrum til að gefa
þeim á móti?“ Þegar leið á vikuna
kom eitt og annað í ljós um málið
og þá var aftur gripið í grínið. „Gat
nú verið. Nú er einhver norskur al-
mannatengill búinn að kjafta frá
jólagjöfum Landhelgisgæslunnar til
starfsmanna.“
Edda Sif Páls-
dóttir, fréttakona
á Stöð 2 í Íslandi í
dag, lenti í fremur
sniðugu óhappi í
vikunni með kær-
asta sínum, Gunnari Skúlasyni, en
hún tjáði sig um atvikið á Twitter.
„Ég beið og beið eftir Gunnari sem
beið og beið eftir mér. Hann hélt
að ég væri að koma og ná í sig en
hann er á bílnum. #flottust“.
Tobba Marinós, fjölmiðlakona,
skellti sér í frí með kærastanum og
nýfæddri dóttur á dögunum. Strax
eftir fríið var leiðinni heitið í rækt-
ina. „Fyrsta æfing eftir frí; tékk. Af
hverju á ég Bailey’s ostaköku inn í
ísskáp?“ Margir hafa verið duglegir
við að taka meistaramánuð alvar-
lega og iðnir við að rækta líkama og
sál. Svona freistingar eru óþolandi.
Stórleikur um-
ferðarinnar í
Meistaradeildinni í
vikunni var við-
ureign Liverpool
og Real Madrid á
dögunum. Á twitter nota er notast
við „hashtag“ og þar var Guð-
mundur Benediktsson, knatt-
spyrnulýsandi Stöðvar 2 sport,
fljótur að átta sig á léttu orðagríni.
„Ef þið eruð að tjá ykkur um Real
Madrid þá er gott að notast við
#Realtalk“.
AF NETINU
Vettvangur
Haldið var upp á bangsadaginn og fæðingardag Theodore
Teddy Roosevelt á leikskólanum Austurborg í fyrra.
Morgunblaðið/Ómar