Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Blaðsíða 14
Landið og miðin
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
sbs@mbl.is
*Mjólkursamsalan ætti að fagna þeim sem vilja komainn á markaðinn og ýta undir það fremur en hitt.Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, í Bændablaðinu
UM ALLT LAND
SKAGAFJÖRÐUR
Kvenfélag Rípurhrepps, elsta kvenfélag
landsins, heldur upp á 145 ára afmæli sitt
ka ganna
mili
nni
ýning, söngur og kaffi, ásamt erindum frá kvenfé
i eru allir hvattir til að mæta og kynna sér það merka s
nkvenfélögin si na.
GRINDAVÍK
Þriðja tölublað
Járngerðar, fréttabréfs
Grindavíkurbæjar, er
komið út. Sannarlega
áhugavert framtak
bæjarfélagsins - stútfullt b
er því dreift í öll hús. Auk
á pdf-formi á heimasíðu b
tölublað Járngerðar á þes em
MÝVATNSSVEIT
taðahr
verfisstofnu
ælingum á loft
it í ljósi óvenjulegra aðs
Hsumbrota í oluhrauni og ó
um hve lengi það ástand v ið hefur á að íbúar finni fyrir
einkennum af völdum me r sem ekki kemur fram í núverandi
mælingum,“ segir í fundar jveitarst órnar í vikunni.
SEYÐISFJÖ
Bæjaryfirvöld
að halda opið
næstkoman
Fjarðarh
jf ötrum
SELFOSS
Mengurnamæli verður komið fyrir á Selfossi fljótlega.
„Mælirinn kemur til landsins eftir tvær vikur og verð
staðsettur á lögreglustöðinni [á Selfossi] þar sem
verður að fylgjast með honum allan sólarhringi
Ásta Stefánsdóttir, formaður Alm
Árnessýslu við Sunnlenska frétt
Brunavarnir Árnessýslu. Þetta
gun sem hefu
Sá sem hefur einhvern tímannunnið við skriftir skilur þaðaldrei við sig. Ég held því
áfram svo lengi sem ég slegið let-
urborð og nú er Breiðfirðingur við-
fangsefni mitt. Það finnst mér
spennandi því það er nýtt fyrir mig
að sjá um rit sem er ekki pólitík,“
segir Svavar
Gestsson, fv.
stjórnmálamaður
og sendiherra.
Um þessar
mundir er verið að
endurvekja útgáfu
Breiðfirðings,
tímarits Breiðfirð-
ingafélagsins. Rit-
ið hefur ekki komið út síðustu ár,
en nú verður lagt upp í nýja veg-
ferð með einu hefti á ári. Annars
kom ritið fyrst út árið 1942 og var
lengi 100 til 150 blaðsíður í svo-
nefndu Skírnisbroti stundum fleiri
en eitt hefti á ári.
Svavar frá Grund
„Stundum hefur ritið verið samtín-
ingslegt eins og eðlilegt er þegar
verkið er unnið á hlaupum í sjálf-
boðavinnu. En þetta stendur samt
fyrir sínu. Þarna hefur verið marg-
víslegur fróðlegur fyrri alda og ár-
tuga úr héraði,“ segir Svavar sem
er frá Grund á Fellsströnd í Döl-
um, en þar í sveit á hann ættmenni
á hverjum bæ. Svavar tók að sér
ritstjórnina eftir að stjórn Breið-
firðingafélagsins fór þess á leit við
hann. Kveðst ritstjórinn raunar
hafa hug á að fá Snæfellingafélagið
einnig að útgáfu ritsins svo stoð-
irnar verði fleiri.
Stundum er sagt að það séu
öðru fremur Dalamenn sem kenna
sig við Breiðafjörð. Fólk til dæmis
í Stykkishólmi, Grundarfirði og
undir Jökli telur sig vera Snæfell-
inga. Þetta er að minnsta kosti
sjónarmið sem Svavar samsinnir.
Skólaljóðaskáld
„Já, ég held að þessi kenning sé
rétt, en ég vil gjarnan standa
þannig að tímaritinu að allir Breið-
firðingar líti á það sem sitt. Þá er
ég að tala um svæðið frá Hellis-
sandi inn Breiðafjörð og út í Vest-
urbyggð og allt þar á milli,“ segir
Svavar og bætir við að býsna
margir skrifandi fræðimenn hafi
lagt sig eftir efni úr Breiðafjarð-
arbyggðum. Þar megi nefna Sverri
Jakobsson, Einar G. Pétursson,
Árna Björnsson, Þórunni Maríu
Örnólfsdóttur, Helga Þorláksson,
Pétur Eiríksson, og Söru Hrund
Einarsdóttur svo einhverjir séu
nefndir.
Raunar rísi Dalirnir býsna hátt í
sögunni þegar eftir því er leitað.
Þeir séu sögusvið Laxdælu, Sturla
Þórðarson lögmaður og sagnaritari
var Dalamaður svo og Skólaljóða-
skáldin Stefán frá Hvítdal og Jó-
hannes úr Kötlum – og vel má
tengja Stein Steinar við Dalina;
hann ólst þar upp fram á unglings-
ár.
Dalamenn eru of hógværir
„Dalamenn í Dölum vita ekki nógu
mikið af sér og þeim möguleikum
sem eru við hvert fótmál í Dölum.
Eru of hógværir – kannski fluttum
við hin sum í burtu með okkur
skortinn á hógværð. En það sást á
Sturluhátíðinni sem við efndum til
síðastliðið sumar hvað það er hægt
að gera með litlum tilkostnaði.
Vonandi verður framhald á þeim
verkefnum sem hófust með Sturlu-
hátíðinni á 800 ára ártíð Sturlu
Þórðarsonar,“ segir Svavar. Hann
ætlar að leggja sig eftir því að
vera í ritinu með efni af öllu
Breiðafjarðarsvæðinu – en það
fyrsta undir hans ritstjórn kemur
út um sumarmál á næsta ári.
BREIÐAFJÖRÐUR
Svavar gerist
sagnaritari
BREIÐFIRÐINGUR ER HÉRAÐSRIT FÓLKS Í BYGGÐUM VIÐ
BREIÐAFJÖRÐ. SAGAN ER VIÐ HVERT FÓTMÁL, SEGIR
DALAMAÐURINN SVAVAR GESTSSON, NÝR RITSTJÓRI ÞESS.
Það er myndarbragur yfir öllu í Stykkishólmi, sem er einn nokkurra þéttbýlisstaða við hinn víðfeðma Breiðafjörð.
Morgunblaðið/Ómar
Klakkseyjar á Breiðafirði, séð frá Klofningi. Þar skiljast Fells- og Skarðsströnd.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Svavar Gestsson
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.10. 2014