Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.10. 2014 Morgunblaðið/Golli Þótt ég komi frá heimili þarsem allt var vel nýtt, áttimömmu sem var sam- viskusöm og nýtti og sparaði, þá var það ekki fyrr en ég var farin að búa sjálf og búin að búa sjálf í nokkur ár sem ég fór að vera með- vituð sjálf um þessa hluti,“ segir Rakel Garðarsdóttir, framleiðandi með meiru. Þær Rakel og Margrét Mar- teinsdóttir hafa skrifað bók sem fjallar um hvernig litlu hlutirnir í okkar daglega rekstri geta haft áhrif á okkur sjálf og umhverfið til góðs. Bókin kallast Vakandi veröld - ástaróður og kemur út 7. nóv- ember næstkomandi. Salka gefur bókina út en það er Þorbjörg Ólafsdóttir, grafískur hönnuður, sem setur bókina upp á mjög að- gengilegan og skemmtilegan máta. „Það má segja að þetta sé ástar- óður okkar Margrétar til jarðar- innar. Við erum báðar bara áhuga- konur um þessi mál og höfum að sjálfsögðu sóað mat og keypt föt frá framleiðendum sem standast ekki siðferðiskröfur, notað plast og einnota vörur og þetta allt saman. En við höfum hins vegar báðar síð- ustu misseri verið að reyna að breyta þessu neyslumynstri okkar og vera meðvitaðri um neyslu og umhverfið. Það ferðalag er kveikj- an að þessari bók en okkur langaði til að gefa af okkar reynslu og vekja fólk til meðvitundar,“ segir Rakel og bætir við að það sé tákn- rænt að framan á bókinni er vitnað í John Lennon þar sem hann segir: „Allir vita að fólkið hefur valdið, allt sem við þurfum að gera er að vekja fólk til vitundar um það.“ Rakel hefur verið forsprakki Vakanda, átaks gegn sóun matvæla og því er matarnýting stór kafli í bókinni en einnig er fjallað um ýmsa aðra þætti, hreinsiefni og snyrtivörur, fatnað og fleira. „Það fyrsta sem ég lærði sjálf var að hætta að henda mat. Ég reyndar elda þannig skammta að ég þarf mjög sjaldan að geyma mat þar til daginn eftir en einnig geri ég stundum stærri potta af súpum og frysti þær þá. Þetta byrjaði allt þegar ég las grein í Morgunblaðinu fyrir nokkrum ár- um þar sem fjallað var um hversu mörg kíló af mat færu beint í rusl- ið. Þetta er líka spurning um tím- ann sem fer í þetta. Að vera sífellt að fara út með ruslið og kaupa eitthvað inn, mat og fatnað, eyðir tíma og tíminn er það eina sem við fæðumst með. Ég sjálf tími ekki að eyða honum að óþörfu. Þá finnst líka mörgum leiðinlegt að fara í ræktina og það er held ég einfald- asta ráðið til heilsusamlegs lífs að borða ekki of mikið. Ekki það að ég sé á móti hreyfingu, alls ekki, en það er bara svo margt sem er hægt að gera við tímann annað en það sem tengist neyslumynstri okkar. Maður á ekki að vilja eyða tímanum heldur lifa hann. Svo er hægt að eyða peningnum sínum í að gera eitthvað skemmtilegt í stað þess að henda honum beint í rusl- ið.“ BÓKIN ER EINS KONAR LEIÐARVÍSIR Tíminn of dýrmætur til að sóa „Maður á ekki að vilja eyða tímanum heldur lifa hann. Svo er hægt að eyða peningnum sínum í að gera eitthvað skemmtilegt í stað þess að henda honum beint í ruslið,“ segir Rakel Garðarsdóttir. Getty Images/iStockphoto RAKEL GARÐARSDÓTTIR HEFUR Í FÉLAGI VIÐ MARGRÉTI MARTEINSDÓTTUR SKRIFAÐ BÓK UM MATARSÓUN, MEÐ- VITUND UM UMHVERFIÐ OG HVERNIG HÆGT ER AÐ NÝTA TÍMANN OG PENINGANA BETUR EN Í NEYSLU. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Bók Rakelar Garð- arsdóttur og Margrétar Marteinsdóttur um góða nýtingu á matvælum og meðvitund um umhverfið kemur út 7. nóvember. Fjölskyldan Nú fer hver að verða síðastur að tína falleg haustlauf en þetta erfyrirtaks fjölskylduskemmtun. Víða í almenningsgörðum og á úti- vistarsvæðum svo sem í Elliðaárdal er að finna gnægð laufblaða sem fjölskyldan getur dundað sér við að safna og líma á listaverk. Haustlaufin tínd  Frystið brauðið ef það er að renna út og notið til að rista næstu daga.  Klárið það sem til er í skáp- unum áður en farið er í versl- unarferð.  Vaska má hreinsa með grófu salti og sítrónu. Bæði til að forðast að vera í snertingu við ætandi efni og einnig til að spara peninga. Hægt er að dreifa grófu salti yfir vaskinn og nudda yfir- borðið með sítrónu.  Í stað stíflueyðis má nota mat- arsóda og edik. Blandið ½ dl af matarsóda á móti 1 dl af ediki og látið liggja í klósettinu í um hálf- tíma. Hellið þá sjóðandi vatni út í klósettið.  Spegla og rúður má hreinsa með því að sprauta ediki á þær og þurrka yfir með dagblaði.  Rakel reynir að forðast snyrtivörur og krem, sérstaklega með para- benum, í lengstu lög. Sjálf notar hún svitalykt- areyði sem er blanda af kókosolíu, mat- arsóda og pip- armyntudropum.  Rakel skúrar gólfin yfirleitt með ediki þótt einstaka sinnum noti hún brúnsápu.  Ávexti og grænmeti sem far- ið er að láta á sjá setur Rakel í frysti og notar síðar í súpur og drykki. RÁÐAHORN RAKELAR Ýmis einföld ráð úr fórum Rakelar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.