Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Page 19
26.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Hanna Kristín stundar nám á meist-
arastigi í hagfræði og hún stefnir á að
stunda doktorsnám í fræðum tengd-
um heilsuhagfræði. Einnig hefur hún
verið að kenna ballett og pilates. Hún
hefur nú tekið við GAVA hjálparsam-
tökunum á Íslandi en samtökin eru
alþjóðleg og ganga út á það að hjálpa
snauðum fjölskyldum í Kampala í Úg-
anda við að verða sjálfbær. „Silja
Thor Björnsdóttir stofnaði samtökin
í Úganda og fékk mig,
ásamt góðum hópi
fólks, til liðs við sig til
að sjá um starfsem-
ina hér heima,“ segir
Hanna Kristín. „Þetta
er afskaplega gef-
andi starf og
gott að geta
aðstoðað
við sjálf-
bærni
íbúa Kam-
pala, því það
gefur góða raun.“
GAVA HJÁLPARSAMTÖK
Fylgin sér
Hanna
Kristín
… að við faðmlag losar líkaminn efnið oxytocin, sem
sendir vellíðunartilfinningu út í kroppinn. Spörum ekki
faðmlögin, því það er hollt og gott að faðmast og sýna
hvert öðru kærleik.
Vissir þú …* „Fullt af fólki hefur fangað auga mitt ígegnum tíðina, en enginn hefur fangaðhjarta mitt, eins og þú.“
Snoopy
Það er líf og fjör á
heimili Þórhalls Sæv-
arssonar auglýsinga-
leikstjóra. Hann á
tvo syni, Óðin Þór og
Sævar Styrkár, með
eiginkonu sinni,
Berglindi Óskars-
dóttur fatahönnuði,
en í byrjun nýs árs er
von á fimmta fjöl-
skyldumeðlimnum,
lítilli stúlku. Það eru
því spennandi tímar
framundan hjá fjölskyld-
unni.
Þátturinn sem allir geta
horft á? X-Factor UK er
klárlega „guilty pleas-
ure“ fjölskyldunnar, einn
af fáum þáttum sem virka fyrir alla
aldurshópa. Það getur oft verið erf-
itt að samhæfa sjónvarpsgláp með
tvö lítil börn á heimilinu, þannig að
Svampur Sveinsson hefur oft vinn-
inginn, okkur foreldrunum til
ómældrar ánægju.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá
öllum? Það mun vera hinn svokallaði
dindill, sem er hægeldað svínakjöt,
„pulled pork“, með heimalöguðu hrá-
salati og fersku kóríander, vafið inn í
heimagerðar tortilla-kökur. Nafnið
kemur frá sonum mínum, sem fannst
upprúlluð tortillakakan minna sig á dindilinn á svíni, ekki
beint lystaukandi en nokkuð lýsandi fyrir réttinn og
skemmtilegt.
Skemmtilegast að gera saman? Listinn er ansi langur þar
sem við reynum að vera dugleg að gera sem mest saman, en
helst mætti telja samverustundir í sumarbústað fjölskyld-
unnar, að elda saman eða tíðar ferðir í keiluhöllina þar sem
eldri sonurinn er ósigraður keilumeistari.
Borðið þið morgunmat saman? Já, við gerum það, þó að
það sé oftast mjög skipulögð óreiða á þeim stundum eins og
vill verða þegar verið er að reyna að koma börnum í föt,
troða í þau hafragraut eða seríósi og foreldrarnir að ná koff-
ínskammtinum í kerfið áður en hlaupið er út í daginn.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar?
Þar sem á nútímaheimili eru samverustundirnar oft af
skornum skammti reynum við helst að hafa ekki mikla dag-
skrá heldur nýta tímann einfaldlega í að vera saman og
njóta.
Hvað er á dagskrá í vetur hjá fjölskyldunni? Það bliknar
flest í samanburði við komandi stækkun fjölskyldunnar, en
við eigum von á lítilli stúlku í lok janúar. Þannig að dag-
skráin verður nokkuð þétt af bleiuskiptum, svefnleysi,
bleikum barnafötum og almennu stuði.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Þórhallur
Sævarsson
Minnti á
dindilinn á svíni
H
anna Kristín Skaftadóttir og
Hjalti Kr. Melsted hafa nú
gefið út næstu þrjár bækur í
sögusafninu um MiMi.
Bækurnar eru tæki fyrir börn með tal-
og málþroskaraskanir sem hjálpar þeim
og foreldrum þeirra að eiga tjáskipti á
annan máta en með orðum en ýtir um leið
undir málörvun barnsins. Nú þegar eru
komnar sjö bækur af tíu. Viðtökurnar við
fyrstu fjórum bókunum um fígúruna MiMi
hafa verið einstaklega góðar hjá leik-
skólum, sérfræðingum og talmeinafræð-
ingum. „Við erum afar þakklát fyrir góð
viðbrögð. Nú erum við búin að dreifa bók-
unum á stóran hluta leikskóla landsins og
eru þær einnig komnar í allar helstu
bókaverslanir,“ segir Hanna Kristín.
Í vor stefnir hún á að kynna bækurnar
og TMT um allt land. „Vonandi ýtir það
undir áhuga leikskólanna á að nota bæk-
urnar og hjálpar til við málörvun barna.“
Þegar bækurnar tíu eru komnar út hér
heima munu Hanna og Hjalti halda út fyr-
ir landsteina með þær. „Við höfum verið í
samningaviðræðum við bókaútgefendur í
Frakklandi og Hollandi og erum að ljúka
við samninga við bókaútgefendur í Dan-
mörku. Svo nú í liðinni viku færðum við
GAVA samtökunum í Úganda rafræna út-
gáfu af MiMi-bókunum á ensku. Það var
mikil gleði á meðal barnanna þegar þau
skoðuðu bækurnar.“
Aukin vitundarvakning
Eins og staðan er í dag er ekki hlaupið að
því að fá talþjálfun fyrir börn með tal- og
málþroskaraskanir. „Það á sér þó stað
ákveðin vitundarvakning um þetta á leik-
skólum og hjá sérfræðikennurum um
snemmtæka íhlutun og hversu miklu máli
hún skiptir. Tákn með tali hjálpaði syni
mínum mikið og nú er hann altalandi.
Hann fór í fjögurra ára skoðun um daginn
og gekk glimrandi vel. En vegna þess
hversu seint börn með tal- og málþroska-
raskanir greinast eru talfærin eftir á. Þau
bera orðin vitlaust fram og eru mörg hver
ansi óskýr. Hins vegar getur orðaforðinn
verið alveg upp á tíu og jafnvel betri en
hjá þeim sem hafa ekki þurft að glíma við
neinar hamlanir.“
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir stofnaði ný-
verið fyrirtækið Trappa þar sem boðið
verður upp á þjónustu talmeinafræðinga
rafrænt. Hanna Kristín segir verkefnið
spennandi og mælir eindregið með þjónust-
unni sem mun auðvelda aðgengi að þjón-
ustu talmeinafræðinga og létta álagið á for-
eldrum. „Leiðir okkar Þorbjargar hafa oft
legið saman á sviði menntamála, og í leik og
starfi, og hún var mikill stuðningur við for-
eldra barna með tal- og málhamlanir þegar
hún var í borgarstjórn. Svo vindur hún sér í
þetta frábæra framtak sem ég veit að henni
mun fara vel úr hendi. Mæli eindregið með
að foreldrar skoði starfsemi trappa.is.“
MiMi-samstæðupúsl
„Það verður auðvelt að búa til sögur í
kringum MiMi.“ Einnig er það á döfinni að
útbúa ýmis hliðarverkefni með bókunum og
til að mynda er grafískur hönnuður að
vinna að drögum að samstæðupúsli þar sem
börnin þurfa að tengja saman t.d. táknið
fyrir skó við mynd af skó. „Þetta er snið-
ugt hjálpartæki fyrir þroskaþjálfa og tal-
meinafræðinga, sem og foreldra, til að
vinna með.“ Hanna og Hjalti eru fráskilin
en það hefur, að hennar sögn, engin áhrif á
samstarfið. „Samstarfið gengur vel. Þetta
sameinar líka fjölskylduna, sem er ynd-
islegt,“ segir hún að lokum.
BÆKURNAR UM MIMI ERU FRÁBÆR HJÁLPARTÆKI FYRIR BÖRN OG FORELDRA
Vilja ná til foreldra
Eins og sjá má útskýrir fígúran MiMi með táknum hvað henni liggur á hjarta.
NÆSTU ÞRJÁR BÆKUR Í TÍU BÓKA SERÍU UM TEIKNIMYNDAFÍGÚRUNA MIMI ERU NÚ KOMNAR ÚT. EFNIÐ
ER SNIÐIÐ SÉRSTAKLEGA AÐ BÖRNUM MEÐ TAL- OG MÁLÞROSKARASKANIR OG ERU BÆKURNAR GOTT
HJÁLPARTÆKI FYRIR FORELDRA. HANNA OG HJALTI, HÖFUNDAR BÓKANNA, VILJA NÁ TIL FORELDRA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
nbforlag.com
Núi & Nía er glæsileg
barnabók, úr hugarfylgsnum
listakonunnar Línu Rutar,
um samnefndar ævintýraverur.
Lína Rut Wilberg - Höfundur og myndskreyting
Þorgrímur Þráinsson - Höfundur texta