Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Side 24
Heilsa og
hreyfing
Graskershollusta
*Með tilheyrandi hrekkjavöku sem hefur náðað teygja anga sína til Íslands að einhverjuleyti fást nú grasker víða í verslunum enda út-skorinn ávöxturinn algengt skraut á hrekkja-vöku en hrekkjavaka er haldin hátíðleg vest-anhafs 31. október. Grasker eru tilvalin ídrykki og súpur og eru einkar C- og E-
vítamínrík en ekki veitir af C-vítamíni til að
styrkja ónæmiskerfið í vetur.
B
orghildur Sverrisdóttir var að senda frá sér sína fyrstu bók, Ham-
ingjan eflir heilsuna, en í henni eru farið yfir leiðir jákvæðrar sál-
fræði að aukinni hamingju og betri heilsu. Hún er með BA-próf í
sálfræði og starfaði sem einkaþjálfari í sjö ár en er núna á öðru ári
í meistaranámi í menntunarfræðum til kennsluréttinda við Háskólann á Ak-
ureyri.
„Fljótlega eftir að ég útskrifaðist úr sálfræðinni árið 2003 fer ég að skoða
þessa nýju nálgun innan sálfræðinnar sem er þá nýhafin,“ segir hún og vís-
ar til jákvæðrar sálfræði. „Ég fer að grúska í þessu og hægt og rólega að
nýta mér þessar nýju aðferðir í mínu lífi,“ segir Borghildur sem hefur starf-
að með Félagi um jákvæða sálfræði og situr í stjórn félagsins.
Hún skrifaði ennfremur um skeið reglulega heilsupistla í blöð. „Þetta
byrjar í rauninni í pistlunum í Mogganum,“ segir hún um tilurð bókarinnar.
„Þessar aðferðir hafa haft það mikil áhrif á líf mitt og mér fannst ég vera
knúin til að koma þessu einhvern veginn áfram og langaði alltaf að skrifa
bók. Ekki bara af því að ég hafði upplifað þetta með góðum hætti heldur
liggja fyrir rannsóknarniðurstöður sem almenningur þarf að geta nýtt sér,“
segir hún og tekur undir að jákvæð sálfræði sé vaxandi grein.
Persónulegt og samfélagslegt
„Hún er að koma mikið inn í skólakerfið. Þar er verið í sífellt meira mæli að
leggja áherslu á styrkleika nemenda og efla með þeim hæfileika sína í stað
þess að steypa alla í sama mót,“ segir Borghildur sem er einmitt að skoða í
meistararitgerð sinni hvernig aðferðir jákvæðrar sálfræði geti haft áhrif á
námsárangur og líðan nemenda í skólum. Hún vinnur einnig að gerð náms-
efnis fyrir kennslu jákvæðrar sálfræði í framhaldsskóla
„Þetta er ekki síður vaxandi grein samfélagslega,“ segir hún og vísar til
Sameinuðu þjóðanna og „fimm leiða að vellíðan“, sem Embætti landlæknis
hefur þýtt og birt á vefnum landlaeknir.is.
„Sameinuðu þjóðirnar vilja að þjóðir heimsins fari að leggja meiri áherslu
á þetta í hagvexti sínum og sjái að það sé ekki bara fjárhagslegur hag-
vöxtur sem skiptir máli heldur líka farsæld þegnanna.“
Hvað getur hamingjan gert fyrir heilsuna?
„Það eru ákveðnir styrkleikar sem maður þarf að efla með sér og hafa já-
kvæð tengsl við heilsu. Þetta eru þrautseigja, sjálfstjórn, von, þakklæti og
bjartsýni. Þessir þættir hafa mikil áhrif á okkar hamingju og andlega líðan.“
Hún segir ekki mega gleyma stóra póstinum, jákvæðninni. „Hugarfar já-
kvæðni er eitthvað sem hægt er að efla með mörgum hætti. Jákvæðnin er
mikilvæg og sjá það sem skiptir máli í hversdagsleikanum, vera ekki alltaf
að finna að sjálfum sér eða umhverfinu,“ segir hún en hamingjuaukandi æf-
ingar er að finna í bókinni.
Við sköpum okkar eigin hamingju
Við höfum mikið að segja um okkar eigin hamingju, segir Borghildur.
„Skapgerð og persónuleiki kemur að stórum hluta frá erfðum en þetta
stjórnar um 50% af hamingju okkar. Talað er um að 10% komi frá umhverf-
isaðstæðum, það er félagslegum og fjárhagslegum aðstæðum. Síðasta en
ekki síst er talið að 40% af okkar hamingju byggist á viðhorfi okkar til lífs-
ins, afstöðu okkar, hugarfari og tilfinningum,“ segir hún en fjöldamargar
rannsóknir styðja þetta.
Ein æfing í bókinni byggist því að opna huga sinn. „Það er gott að prófa í
einn dag að vera með opinn huga fyrir því sem þú upplifir, taka hlutunum
eins og þeir eru og taka þeim án þess að dæma þá. Það er frelsandi að leyfa
fólki að vera eins og það er. Það dregur svo úr neikvæðum tilfinningum.
Það að vera opinn víkkar sjóndeildarhring okkar.“
Þjálfun líkama og huga fer saman og studdist Borghildur við jákvæða sál-
fræði þegar hún var einkaþjálfari. „Viðhorf okkar og afstaða gagnvart okk-
ur sjálfum er stundum stærsta hindrun okkar í að ná markmiðum okkar og
að blómstra í lífinu. Við erum oft að berja okkur í hausinn yfir því að hafa
mistekist og finnst mistök slæm en þau eru það ekki. Við þurfum að breyta
hugarfari okkar gagnvart því sem við höldum að sé slæmt í lífinu.“
Borghildur Sverrisdóttir meistaranemi og einkaþjálfari með meiru sem var að gefa út bók um heilsu og hamingju.
Morgunblaðið/Þórður
STYRKLEIKARNIR ÞRAUTSEIGJA, SJÁLFSTJÓRN,
VON, ÞAKKLÆTI OG BJARTSÝNI
Hægt að efla
hugarfar
jákvæðni
HAMINGJAN EFLIR HEILSUNA ER NÝ BÓK EFTIR
BORGHILDI SVERRISDÓTTUR SEM ER BYGGÐ Á
AÐFERÐUM JÁKVÆÐRAR SÁLFRÆÐI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Í bók sinni fjallar Borghildur um tíu leiðir til aukinnar hamingju. Hér verða tekin tvö dæmi úr bókinni. Fyrsta
leiðin sem hún nefnir er að opna hugann. „Hreinsaðu hugann af væntingum og ekki dæma það sem á vegi
þínum verður. Prófaðu að halda huganum opnum fyrir því sem þú upplifir án þess að dæma það sem gott
eða slæmt. Það er bara eins og það er. Fylgstu með hvernig lítil börn skoða og umgangast umhverfi sitt,
fordómalaust og án væntinga,“ skrifar hún.
Hamingjuaukandi leið númer átta er að forðast félagslegan samanburð. „Samanburður við aðra er hluti af
lífi okkar flestra og getur sannarlega haft jákvæð áhrif á okkur þar sem hann getur hvatt okkur til að gera
betur, bæta veikleika okkar, hjálpað okkur að líða betur og þakka fyrir hlutskipti okkar þrátt fyrir að það sé
kannski ekki eins og best verður á kosið. Samanburður við aðra getur líka dregið úr okkur máttinn og aukið
vanlíðan. Mikilvægt er því að vera meðvitaður um hvert samanburðurinn er að leiða okkur, það er hvort
hann sé að stjórna lífi okkar, gera okkur viðkvæm og óörugg eða hvort hann efli okkur og auki vellíðan til
lengri tíma. Af rannsóknum Lyubomirsky að dæma virðist sem hamingjusömu fólki sé meira sama um fé-
lagslegan samanburð en óhamingjusömu fólki og það stundi hann síður. Hamingjusamir virðast hins vegar
meta sjálfa sig út frá eigin viðmiðum, eins og að bera sig saman við sjálfa sig fyrir hálfu ári eða hvort þeim hafi
tekist betur til núna en síðast.“
LEIÐIR TIL AUKINNAR HAMINGJU
Opnaðu hugann og forðastu samanburð