Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Side 26
D
rífa Skúladóttir vinnur sem þroskaþjálfi í Mela-
skóla. Þá er hún einnig að hanna og sauma föt
undir merkinu Zolo design. Drífa, sem er í
barneignarleyfi þessa dagana, hefur nýopnað
vefverslunina Reykjavikbutik.is ásamt tvíburasystur sinni
Dagnýju þar sem þær selja vörur fyrir heimilið ásamt
fatnaði frá Zolo design.
„Stíllinn minn er mjög blandaður. Ég reyni að blanda
saman gömlu og nýju. Mér finnst gaman að gera upp
gömul húsgögn og ég er einnig veik fyrir nýrri hönnun.
Sjötti áratugurinn heillar og finnst mér það koma
skemmtilega út í eldhúsi, þá vil ég hafa meiri blandaða
stemningu í stofunni,“ útskýrir Drífa og segir að þar sem
hún búi í gömlu húsi finnist henni mikilvægt að fylgja
svolítið stemningu hússins án þess að það sé eins og að
koma í heimsókn til ömmu. „Skandinavísk hönnun finnst
mér einföld og falleg og kemur hún vel út þegar hún er
sett saman við eldri húsgögn og muni.“ Drífa segir mik-
ilvægt að hafa í huga þegar heimilið er innréttað að þar
séu persónulegir munir eða húsgögn. „Það þarf að vera
einhver saga eða tenging. Það má ekki vera eins og að
ganga inn í húsgagnabúð.“
Drífa segir stofuna og sjónvarpsherbergið í miklu uppá-
haldi á heimilinu. „Mjög ólíkir staðir, allt öðruvísi inn-
réttað og ólík stemning. Fjölskyldan hefur það mjög kósý
saman í sjónvarpsherberginu.“
Drífa verslar víða og hefur einnig fengið gömul húsgögn
hjá ættingjum. „En ég versla í Ilvu, Ikea, Söstrene
Grene, Epal, Fakó og á netsíðum svo eitthvað sé nefnt.
Þá hef ég fundið eitthvað í Góða hirðinum.“
Drífa segir mjög margt á óskalistanum. „Í draumaheimi
mundi ég kaupa eitt stykki Papa Bear-stól frá Hans Weg-
ner, Cubi-spegil, Louis Poulsen Ph5 ljós og Cherner-stóla
frá Benjamin Cherner.“ 28
Heimilið í Vesturbænum einkenn-
ist af fallegri blöndu af klassískum
gömlum munum og nýrri hönnun.
SJÖTTI ÁRATUGURINN HEILLAR
Mikilvægt að fylgja
stemningu hússins
DRÍFA SKÚLADÓTTIR BÝR ÁSAMT FJÖLSKYLDU SINNI Í FALLEGU HÚSI Í VESTURBÆNUM
Í REYKJAVÍK. HEIMILISSTÍLLINN EINKENNIST AÐ MIKLU LEYTI AF EINFALDRI
SKANDINAVÍSKRI HÖNNUN Í BLAND VIÐ ELDRI HÚSGÖGN OG MUNI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Koparborð úr versl-
uninni Reykjavikbutik.is
við anddyri heimilisins.
* „Sjötti áratugurinnheillar og finnst mér þaðkoma skemmtilega út í eldhúsi.
Þá vil ég hafa meiri blandaða
stemningu í stofunni.“
Heimili
og hönnun *Hönnunarmiðstöð hefur ákveðið að lengja fresttil tilnefninga til hönnunarverðlaunanna 2014 tilmiðnættis sunnudaginn 26. október. Tilnefningarfara fram á vef hönnunarmiðstöðvar undir flip-anum hönnunarverðlaun. „Það er mikilvægt að fá tilnefningar frá öllum ogað tilnefningarnar nái út fyrir hönnunarsamfélagið
því að hönnun varðar okkur öll,“ segir Ólöf Rut
Stefánsdóttir, verkefnastjóri hönnuarmiðstöðvar.
Lengja frest til tilnefninga
Drífa Skúladóttir hefur alltaf
haft mikinn áhuga á hönnun
og fallegum hlutum.