Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Qupperneq 36
Þegar fólk sest fyrir framan sjónvarpið er það allajafna að leita að afþreyingu, en ekki bara að sjón-varps- eða kvikmyndaefni sem sannast kannski einna
best á því hve margir setjast við tæki með tölvu í fanginu
– snjallsíma, spjaldtölvu eða fartölvu. Sú var tíðin að sjón-
varpsspámenn héldu að fólk myndi vafra um vefinn í sjón-
varpinu og svo komu kenningar um að allir myndu vilja
glápa á sjónvarpsefni í tölvunni. Raunveruleikinn er ein-
hvers staðar þarna á milli, fólk virðist gjarna vilja geta
sótt sér efni af netinu, eins og vinsældir svonefndra snjall-
sjónvarpstækja sanna SmartTV, þó að það kjósi enn að
vafra um vefinn og skrifa Fa-
cebook-færslur á tölvu.
Tæki sem kalla má snjall-
sjónvarp gerir notendum kleift að
tengjast efnisveitum eins og You-
Tube, Netflix, Hulu og ámóta,
svo framarlega sem viðkomandi
sjónvarp sé nettengt á annað
borð. Alla jafna notar hver fram-
leiðandi sitt sérhannaða viðmót
og oftar en ekki sitt stýrikerf-
isafbrigði þó að þau séu líkast til Linux-ættuð.
Ný sjónvarpstæki frá Philips, 8000-línan vekur athygli
fyrir fyrir tæknilega útfærslu og útlit, en líka fyrir það að
þar er komið fyrsta sjónvarpið sem keyrir á Android, því
snjallhluti þess keyrir á Android 4.2.2 Jelly Bean. Þess má
geta að í væntanlegri útgáfu af Android, Android 5.0 Lolli-
pop, sem kemur út í næsta mánuði, verða sérstakar við-
bætur til að hægt sé að nota það í sjónvarpstækjum.
Menn hafa gert ýmsar tilraunir til að tengja Android við
sjónvarpstæki og þá aðallega með svonefndum Android-
stick, en það er í raun smátölvur, á stærð við minnislykil,
sem geta keyrt Android-forrit, eins og leiki til að mynda.
Flestar eru þær með tveggja kjarna örgjörvum, en líka
dæmi um apparöt með fjögurra kjarna örgjörva.
Fræðilega séð er hægt að keyra öll Android-forrit á tæk-
inu, en ekki í raun, því Philips hefur búið svo um hnútana
að aðeins hluti þess sem býðst í Play-forritabúðinni er til-
tækur, væntanlega til að tryggja að ekki sé hægt að setja
inn forrit sem ekki er hægt að nota af neinu viti með sjón-
varpsfjarstýringu. Að því sögðu þá er hægt að tengja
Bluetooth-stýripinna við tækið. Þegar kveikt er á því í
fyrsta sinn eru uppsett á því ýmis forrit frá Google,
Chrome-vafrinn, Google-leit, raddstýrð leit, Google Play-
bíómyndir og tónlist, sem ekki er aðgengilegt hér á landi,
og YouTube og svo er líka hægt að fara beint inn í
Play-forritabúðina að leita að forritum, til að
mynda að Netflix.
Eins og fram kemur hér til hliðar er
hægt að tengja við sjónvarpið utanáliggj-
andi harðan disk og nota til að setja
upp forrit, til að mynda leiki, en þann
disk má náttúrlega líka nota til að
taka upp sjónvarpsefni, þ.e. ef má
taka það upp á annað borð. Nýjustu
afruglarar sjá um slíkt núorðið og því
varla hægt að taka neitt upp nema
það sem næst í gegnum greiðuna
gömlu.
Í tækinu er myndavél í litlu spjaldi
sem dregið er neðan undir miðjunni
á skjánum. Hún gefur eðlilega kost á
að eiga Skype-samtöl í gegnum tæk-
ið, en svo er líka hægt að nota hana til að stýra tækinu,
þegar maður er svo aðframkominn af leti að maður nennir
ekki einu sinni að teygja sig í fjarstýringuna – ef mynda-
vélin er niðri er nóg að lyfta upp hendinni og opna og loka
greipinni og þá virkjar maður handstýringu án snertingar.
Hljómar lúðalegt, en er fáránlega sniðugt – að
minnsta kosti við fyrstu kynni. Ekki má
gleyma því að það er líka hægt að stýra
tækinu með röddinni (á ensku).
Eitt af sérkennum Philips-sjónvarps-
tækjanna er baklýsing sem fyrirtækið
kallar Ambilight, ljósdíóður á baki
tækisins sem lýsa með daufri birtu á
vegginn aftan við tækið sem breyta
um lit eftir því sem er á seyði á
skjánum. Fyrir vikið virkar skjárinn
stærri en hann er í raun, birtan plat-
ar augað, og Ambilight hefur reyndar
verið svo endurbætt, meðal annars
með ljósi allan hringinn, að manni
finnst eins og sjónvarpið svífi.
Philips 55PFS8109 kostar 469.995
hjá Heimilistækjum.
SNJALLARA SNJALLSJÓNVARP
SJÓNVARP ER EKKI BARA SJÓNVARP, EKKI SÍST
EFTIR AÐ SNJALLSJÓNVÖRP KOMU TIL SÖG-
UNNAR ÞAR SEM HÆGT VAR AÐ SÆKJA SÉR
SKEMMTIEFNI OG LEIKI Á NETIÐ. ÞAÐ HLAUT AÐ
KOMA AÐ ÞVÍ AÐ SJÓNVARPSTÆKI YRÐI
ANDROID-VÆTT MEÐ ÖLLUM ÞEIM GRÍÐ-
ARLEGU MÖGULEIKUM SEM ÞAÐ GEFUR
OG PHILIPS RÍÐUR A VAÐIÐ.
* Ambilight-baklýsingu sjónvarpsins er núhægt að tengja við Hue-snjallperurnar frá
Philips og láta lýsinguna í stofunni allri haga
sér eftir því sem fram fer á skjánum, þ.e.
svo framarlega sem í ljósunum séu Hue-
perur og maður að nota Ambilight-Hue
appið (Hue-perur eru ekki komnar í sölu
hér, en væntanlegar að sögn umboðsins).
* Þegar sótt eru forrit þarf að hafapláss til að koma þeim fyrir og í tækinu
er 2 GB gagnaminni. Það hrekkur þó ekki
til ef menn fara að sækja leiki sem eru á
annað GB eða jafnvel þriðja GB eins og
dæmi eru um (og fer fjölgandi). Það er
ekkert minniskort í vélinni en hægt að
tengja við hana utanáliggjandi harðan disk
(allt að 64 GB).
* Eins og getið er er í sjónvarpinuAndroid 4.2.2 og verður ekki hægt að
uppfæra að svo stöddu að minnsta
kosti, en væntanlega verður hægt að
sækja uppfærslur á notendaskilin, ef
þær verða þá í boði einhvern tímann.
8109 tækið sem ég skoðaði, sem er
55", er með fjögurra kjarna örgjörva
og því kappnógur kraftur.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Ekki er bara að Android 5 Lollipop sé með sérstakan stuðning við sjónvarpstæki heldur hefur Go-
ogle líka hampað sérstökum notendaskilum, Android TV, sem helstu sjónvarpsframleiðendur, þar á
meðal Sony, Sharp og TP Vision (Philips), hyggjast nýta á þessu ári og því næsta.
Google hefur líka kynnt smátæki sem streymt geta netefni í sjónvarpstæki og nú síðast Nexus-
spilara sem kynntur var fyrir rétt rúmum mánuði. Hann er með 1,8 GHz fjögurra kjarna Intel Atom-
örgjörva, þráðlausu neti, HDMI-tengi og fjarstýringu, en nota má röddina til að leita að efni. Líka er
hægt að kaupa stýripinna eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.
Hægt er að nota spilarann til að streyma efni af farsíma, spjaldtölu eða fartölvu. Með fylgja uppsett
forrit eins og Netflix, TuneIn-útvarpsforritið, Pandora, YouTube, Hulu, Vevo og svo má telja.
Google hefur áður kynnt ámóta apparat, eða tillögu að slíku tæki, Google Chromecast, sem seld-
ist afskaplega vel þrátt fyrir takmarkað notagildi.
Samkeppnin á þessum markaði er býsna hörð og helsti keppinautur Google hvað þetta varðar,
Roku, hefur náð góðri fótfestu vestan hafs og þar er líka fyrir á fleti Apple með sjónvarps-
lausn sína, Apple TV. Svo hefur Amazon líka slegist í hópinn
með Amazon Fire TV. Allt eru þetta áþekk tæki á pappírnum
og væntanlega ræður efnisframboðið úrslitum.
SJÓNVARPSTÆKI FYRIR SJÓNVARPSTÆKI
Slegist um strauma
Nýi Google Nexus-spilarinn
sem hægt er að forpanta á
google.com/nexus/player.
Græjur
og tækni *Íslandspóstur og Ölgerðin fengu í vikunni af-henta fyrstu rafsendibíla landsins. Bílarnir eru afgerðinni Renault Kangoo og eru þeir fyrstusendibílarnir á götum landsins sem eru alfariðrafknúnir. Bílarnir eru 60 hestöfl og miðað viðíslenskar veðuraðstæður draga þeir allt að 120km á rafhleðslunni. Burðargetan er 610 kg, ör-lítið meiri en dísilbíla sömu gerðar.
Fyrstu rafsendibílar landsins