Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Qupperneq 39
26.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
* „Að gera mistök er mannlegt. En mannleg mis-tök er ekkert miðað við ef tölva gerir mistök.“Agatha Christie
Reglugerð um sölu tækja til
tengingar við sjálfvirka símkerf-
ið tók gildi 15. júní 1981 og
heimilaði þá öðrum en Pósti og
síma að flytja inn síma. Símco
sf. reið á vaðið og flutti inn
takkasíma og aðra síma sem
þóttu bæði fallegir en einnig
tæknilega framar en þeir símar
sem höfðu áður verið á boð-
stólum hér.
Einn þeirra síma sem Símco
bauð til sölu 1982 var sími sem
var tæknileg snilld því hann
hafði alls konar nýjungar sem
ekki höfðu sést áður.
Síminn hafði nefnilega end-
urval og ljósaskilti þar sem sjá
mátti hvaða númer hafði verið
valið. Hægt var að fletta ellefu
númer til baka en þar með er
bara hálf sagan sögð.
Á símanum var sjálfvirkt end-
urval á númeri sem var á tali,
þar mátti einnig finna takka
sem lokaði fyrir hljóð (e. mute)
og sérstakan takka sem hringdi í
neyðarnúmer.
Kostaði síminn 1.300 krónur
en dýrasti síminn sem Símco
bauð upp á 1982 kostaði 3.500
krónur.
GAMLA GRÆJAN
Síminn, sem aldrei var nefndur á nafn í auglýsingunni, hafði marga kosti.
Sími með endurval
Það er útbreidd trú í Japan að ef viðkomandi tyggur
nóg haldi hann góðri heilsu. Margir Japanir hafa óskað
eftir talningarvél sem getur talið hve oft þeir tyggja á
daginn. Tyggjóframleiðandinn Lotte í Tókýó hefur orð-
ið við þessari bón og búið til heyrnartól sem telja hve
oft notandinn tyggur. Þau eru einnig sögð mæla styrk
bitsins og hraða.
Heyrnartólin kallast Rhythmi-Kamu, úr enska orð-
inu rhythmical og japanska orðinu kamu. Innan í
heyrnartólunum er ekki aðeins hátalari heldur einnig
skynjari sem á að nema kraft bitsins.
Þessar upplýsingar fara svo beina leið í snjallsíma
viðkomandi sem getur birt upplýsingarnar kjósi hann
svo á Facebook eða öðrum samfélagsmiðli. Með
tækninni er einnig hægt að kveikja á tónlistinni í síman-
um, skipta um lag og hækka og lækka, allt eftir því
hvernig viðkomandi tyggur.
NÝJASTA NÝTT
Módel sýnir hvernig Rhythmi-Kamu virkar á blaðamanna-
fundi í vikunni. Skipti hún um lag með því að tyggja.
AFP
Skipt um lag
með því að
tyggja
Kazuhiro Taniguchi frá Hiroshima City-háskólanum
er maðurinn á bak við tæknina og kvaðst hann afar
ánægður með útkomuna.
Fyrir vetrarólympíuleikana í Rússlandi kom ól-
ympíunefndin upp bás á Vystavochaya-lest-
arstöðinni í Moskvu þar sem hægt var að borga
farmiðann með því að gera 30 hnébeygjur.
Básinn sló í gegn og var því ákveðið að halda
honum gangandi eftir leikana. Lestarmiði kostar
30 rúblur eða rúmlega 200 krónur og sam-
kvæmt Forbes-tímaritinu eru alltaf nokkrir í röð
í básinn í morgunumferðinni.
Tækið er einfalt í notkun, það notast við
myndavél sem er forrituð þannig að hún geti tal-
ið hnébeygjur viðkomandi. Þarf að gera 30 hné-
beygjur á innan við tveimur mínútum og fær þá
viðkomandi prentaðan lestarmiða. Takist hins
vegar ekki að gera þessar 30 á gefnum tíma gef-
ur tækið frá sér hljóð, rautt ljós kviknar og eng-
inn lestarmiði prentast út. Engum sögum fer
hins vegar af því hvort viðkomandi fær öruggt
sæti í lestinni fyrir þreytta fætur.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Borgað með hnébeygjum
Básinn á Vystavochaya lestarstöðinni í Moskvu vekur athygli.
iPad Air 2
iPad mini 3
iMac Retina 5K
Verð frá469.990.-
Væntanlegur í nóvember
Nýr iMac
Nýir iPad-ar