Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.10.2014, Blaðsíða 40
*Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen sagði í samtali við TheSunday Times Style á dögunum að mömmur þyrftu að setjasjálfar sig í fyrsta sæti. Gisele, sem á tvö börn og eitt stjúpbarnmeð eiginmanni sínum Tom Brady, sagði meðal annars að þaðgæti verið flókið að sameina móðurhlutverkið, starfið og ást-ina. „Ef mér líður vel með sjálfa mig, þá er ég mun þolinmóð-ari, meira elskandi og skilningsríkari móðir og eiginkona. Þú
verður að fylla glasið þitt svo allir geti drukkið úr því,“
sagði ofurfyrirsætan. „Það er mín tilfinning.“
Tíska
Gisele Bündchen með mömmuráð
AFP
H
vað heillar þig við tísku? Það er svo ótrúlega margt. Mér finnst til dæmis
mjög gaman að skoða tísku í sambandi við tíðaranda, það hvernig tíska
er ekki tilviljunarkennd heldur nátengd því sem er að gerast í samfélag-
inu hverju sinni.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Ég hef með tíð og tíma reynt að
temja mér hagsýni fram yfir stundarbrjálæði í fatainnkaupum. Þá vel ég vönduð efni
og klæðileg og góð snið. Hins vegar tekst það ekki alltaf, stundum bara „verður“
maður að eignast eitthvað, þá get ég líka verið ótrúlega fljótfær og mjög glysgjörn.
En þetta býr til fínt jafnvægi í fataskápinn.
Hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa ef þú þyrftir aldrei að
kíkja á verðmiðann? Þessa dagana er ég umvafin fallegum loð-
feldum í vinnunni minni hjá Eggerti feldskera. Ég væri alveg til
í minkapels eða sérsaumaðan lambaskinnsjakka.
Hvaða vetrartísku ætlar þú að tileinka þér? Of stórar kápur
og hlýjar peysur eru mér ofarlega í huga. Til þess að sigr-
ast á vetrinum er tilvalið að fara alla leið í því að raða
saman mörgum lögum af flíkum og þannig búa til full-
komið vetrarlúkk. Mamma er með svarta og hvíta rúllu-
kragapeysu eftir minni pöntun á prjónunum, ég bíð mjög
spennt eftir henni.
Hvaðan sækir þú innblástur? Reyni að vera alltaf með
augun opin, oftast veitir nærumhverfið mestan inn-
blástur. Svo get ég verið tímunum saman í tölvunni að
skoða myndir og láta leiða mig úr einu í
annað.
Áttu þér uppáhaldsflík eða
fylgihlut? Þessa dagana eru það
tveir jakkar sem eru í uppáhaldi,
það er leðurjakki frá Won
hundred sem ég keypti mér í
sumar og mokkajakki með stórum loð-
kraga sem ég keypti á kjaraprís á
útimarkaði á Indlandi í 30 stiga hita.
Hef aldrei séð eftir því að hafa borið
hann með mér heim.
Segjum að þú fengir aðgang að
tímavél sem gæti flutt þig aftur til
árs að eigin vali og þú fengir
dag til að versla. Hvaða ár
myndirðu velja og hvert
færirðu? Ég væri til í að
fara til Parísar í kringum
1920, ég myndi kaupa mér
perlusaumaða silkikjóla og
oversized kimono-
flauelskápur með loðkraga.
Ég er einmitt farin að hafa
augun opin fyrir jóladressi
svo þetta tímaflakk kæmi sér
vel, því svona glamúrflíkur myndi
ég svo nota óspart yfir jól og
áramót.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Þeir Jack
McCollough og Lazaro Hernandes, hönnuðir Proenza
Schouler, eru í uppáhaldi, þeir eru algjörir textílsnill-
ingar, blanda svo vel saman nútímalegum formum við
framandi og spennandi efni og áferðir. Svo finnst mér
Olsen-systur vera að gera flotta hluti með merkinu
sínu The Row.
Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að
nota?
Nei, mér finnst alveg glatað að láta einhverja dýr-
indis flík bara hanga inni í skáp. En ég á það samt til að
eyða peningunum mínum í kjóla sem ég fæ svo alltof fá tæki-
færi til þess að nota.
MÖRG LÖG AF FLÍKUM ER FULLKOMIÐ VETRARLÚKK
Of stórar kápur og hlýjar
peysur eru Elísabetu ofar-
lega í huga þennan vetur-
inn. Elísabet hannaði
þessa fallegu kápu sjálf.
Morgunblaðið/Golli
Tíska er ekki til-
viljunarkennd
ELÍSABET KARLSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR STARFAR HJÁ EGGERTI
FELDSKERA ÁSAMT ÞVÍ AÐ VERA EINN AF SKIPULEGGJENDUM
LISTAHÁTÍÐARINNAR LUNGA. ELÍSABET HEFUR BRENNANDI ÁHUGA
Á TÍSKU OG SEGIR NÆRUMHVERFIÐ VEITA MESTAN INNBLÁSTUR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Hlý og notaleg
peysa frá The Row.
Leðurjakkinn frá Won
hundred er í uppáhaldi.
Mary-Kate Olsen
og Ashley Olsen,
hönnuðir tísku-
hússins The Row.
Jack McCollough
og Lazaro Hern-
andes, hönnuðir
Proenza Schouler,
eru textílsnillingar.