Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Laugavegi 54, sími 552 5201
Finnið okkur á facebook
Kápur áður 19.990 kr.
Nú 15.990
Líka til í svörtu
Túnikkur áður 14.990 kr.
Nú 9.990 kr.
Stærðir 42-48
af öllum vörum aðeins þessa helgi
20-30% afsláttur
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Akureyrarbær braut gegn lögum
um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla við ráðningu sumarstarfs-
manns á leikskóla í bænum vorið
2014 að mati kærunefndar jafnrétt-
ismála.
Fram kemur í úrskurði kæru-
nefndar að Akureyrarbær auglýsti
eftir sumarstarfsmönnum til starfa á
leikskólum bæjarins síðasta vetur.
74 umsóknir voru um störfin. Fjórar
konur voru ráðnar á leikskólann sem
kærandinn sótti um sumarstarf á,
þar af höfðu þrjár kvennanna minni
menntun og minni reynslu af starfi
með börnum en kærandinn. Kær-
andi, sem er karlmaður, taldi að
Akureyrarbær hefði brotið gegn
lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla með því
að ráða fjórar konur til starfa á ein-
um leikskólanna.
Raðaði ekki eftir hæfni
Kærunefnd tók fram að Akureyr-
arbær hefði ekki raðað umsækjend-
um í hæfnisröð með tilliti til mennt-
unar er tengist starfi með börnum
eða með tilliti til reynslu af þeim
störfum en þess í stað kosið að
byggja ráðningu einkum á umsögn-
um meðmælenda ásamt frammi-
stöðu í starfsviðtali.
Kyn kæranda til grundvallar
Úrskurðarnefnd lýsir málavöxtum
m.a. svo: „Alls bárust 74 umsóknir
um sumarstörf á leikskólum kærða.
Umsóknum var skipt í fjóra hluta og
unnið úr einum þeirra vegna ráðn-
ingar á þeim tiltekna leikskóla er mál
þetta varðar. Voru átta umsækjend-
ur boðaðir í viðtal vegna starfa þar
og var kærandi einn þeirra. Að því
loknu var ákveðið að bjóða fjórum
konum sumarstörf.“
Sjónarmiðum kæranda er m.a.
lýst svo: „Kærandi greinir frá því að
hann sé með BA-gráðu í uppeldis- og
menntunarfræðum og stundi nám í
kennslufræði við Háskólann B. Hann
telur sig hafa verið hæfari til starfs-
ins en þær er ráðnar voru. Aðeins
einn af öðrum umsækjendum hafi
lokið námi á háskólastigi.“
Í niðurstöðum úr-
skurðarnefndarinnar
segir að verulega skorti
á að Akureyrarbær
hafi stutt ákvörðun sína
viðhlítandi gögnum.
„Verður því ekki talið að
honum hafi tekist að
sýna að aðrar ástæður en
kyn kæranda hafi legið til
grundvallar ákvörðun
um að hafna um-
sókn hans,“ segir
þar orðrétt.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Aðeins tveir karlmenn unnu á leikskólanum sem maðurinn sótti um sumarstarf á en fjörutíu konur. Fjórar
konur voru ráðnar. Kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði manninum í hag og sagði Akureyrarbæ hafa brotið lögin.
Akureyrarbær braut
gegn jafnréttislögum
Kærunefnd segir karlmanni hafa verið hafnað vegna kyns
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þóra Elísabet Kristjánsdóttir, náms-
læknir á Landspítalanum, sem jafn-
framt starfar hjá Heilsugæslunni á
Egilsstöðum, birti launaseðil sinn
vegna útgreiddra launa frá Heilsu-
gæslunni á höfuðborgarsvæðinu 1.
september sl. á samskiptavefnum Fa-
cebook í liðinni viku. Þar kom fram að
heildarlaun hennar voru fyrir 100%
dagvinnu tæpar 437 þúsund krónur.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að fyrir sama tíma hafi hún fengið
um 1,5 milljónir króna fyrir störf sín
fyrir austan.
Þóra Elísabet sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að ástæða þess
að hún birti þennan seðil hefði verið
sú að hún vildi sýna hversu lág launin
væru fyrir 100% dagvinnu. „Það eru
bara sjálfsögð mannréttindi að geta
lifað af dagvinnulaununum,“ sagði
hún.
Aðspurð hvort hún vildi staðfesta
launagreiðslu upp á 1,5 milljónir
króna á Egilsstöðum, sagði Þóra El-
ísabet:
Dagvinnulaunin aðalatriðið
„Ég hef aldrei haldið því fram að
þetta væru heildarlaunin mín, sem
voru á launaseðlinum sem ég birti.
Ég ætla ekkert að tjá mig um það
hvað ég fékk í laun fyrir austan á
þessu tímabili. Mín barátta er um að
fá mannsæmandi dagvinnulaun. Ég
er með aðskilda launaseðla, annars
vegar fyrir dagvinnu og yfirvinnu fæ
ég borgaða sér.“
Aðspurð hvort hún teldi svona
kjarabaráttu vera fullkomlega heið-
arlega, að upplýsa aðeins um lítinn
hluta launa sinna, sagði Þóra El-
ísabet: „Það skiptir engu máli hvort
ég er á sólarhringsvöktum úti á landi,
daginn út og daginn inn. Baráttan
stendur um að bæta dagvinnulaunin.“
Þóra Elísabet segir að það sé ekk-
ert launungarmál að hún bæði vinni
stundum úti á landi og í Noregi og
hafi mun meira upp úr því en fyrir
störf sín í Reykjavík. Það sé hins veg-
ar ekki það sem hún vilji. Hún vilji
búa og starfa í Reykjavík og ná end-
um saman á dagvinnulaunum sínum.
Upplýsir ekki um heildarlaun
Námslæknir á Landspítalanum með aðskilda launaseðla
Birti einvörðungu dagvinnulaunin og vill lifa á þeim
Þetta er í annað sinn á
tveimur árum, sem úrskurðað
er að Akureyrarbær hafi
brotið gegn jafnréttislögum. Í
fyrra tilvikinu var einnig um
karlmann að ræða.
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri á Akureyri, var í
gær spurður hver viðbrögð
bæjarins yrðu við úrskurð-
inum og hvort hann ætti von
á bótakröfum frá kærand-
anum:
„Við þurfum að fara yfir
ferilinn í þessu máli og skoða
hvað við höfum ekki verið að
gera rétt. Það er að sjálf-
sögðu ekki okkar markmið
að fara ekki að jafnréttis-
lögum. Við tökum svona úr-
skurð alvarlega og reynum
að bæta okkur,“ sagði Ei-
ríkur Björn Björg-
vinsson.
Reynum að
bæta okkur
BÆJARSTJÓRI AKUREYRAR
Eiríkur Björn
Björgvinsson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég hef talað við nokkra sem eru að
panta frá Kína og það eru allir að
borga tolla,“ sagði Edda Kamilla Örn-
ólfsdóttir. Þetta gerist þrátt fyrir að
fríverslunarsamningur milli Íslands
og Kína hafi tekið gildi 1. júlí.
Edda Kamilla fékk nýlega vörur
sem hún pantaði frá póstverslun í
Kína. Verðmæti sendingarinnar var
innan við 25 bandaríkjadalir (rúmar
3.000 krónur). Sendingin fór frá Kína
til Hollands og var umskipað þar til
Íslands. Sendingin var ekki tollaf-
greidd í Hollandi og upprunaland er
merkt Kína. Engu að síður halda
Pósturinn og tollurinn sig við það að
sendingin hafi komið frá Hollandi. Því
eigi fríverslunarsamningurinn ekki
við og borga eigi toll.
Edda Kamilla kvaðst hafa pantað
vörur frá sömu verslun í Kína í sumar,
skömmu eftir að fríverslunarsamn-
ingurinn tók gildi, og þá var tollurinn
felldur niður. Hún sættir sig ekki við
að þurfa að borga tollinn nú og hefur
staðið í samskiptum bæði við Póstinn
og embætti Tollstjóra vegna málsins.
Svörin hafa verið misvísandi. Starfs-
maður Tollstjóra sagði henni í síma að
hún ætti ekki að greiða toll þótt send-
ingunni hefði verið umskipað í Hol-
landi. Pósturinn var á öðru máli og nú
virðist tollurinn vera farinn að taka
undir skilning Póstsins.
Óskar eftir rökstuðningi
Edda Kamilla vitnar í 33. grein frí-
verslunarsamnings Íslands og Kína
máli sínu til stuðnings. Þar kemur
m.a. fram varðandi beinan flutning að
heimilt sé að umskipa sendingu eða
geyma hana tímabundið undir tolleft-
irliti á leiðinni. Edda Kamilla óskaði í
gær eftir rökstuðningi tollsins fyrir
því að hún eigi að borga toll.
Að sögn Brynjars Smára Rúnars-
sonar, hjá Póstinum, er mikil og góð
samvinna á milli tollsins og Póstsins.
Pósturinn starfi eftir vinnureglum frá
tollinum t.d. varðandi upprunamál og
beri öll álitamál undir tollinn.
Hann sagði að fyrirspurnum vegna
tollafgreiðslna frá Kína hefði fjölgað á
milli ára í kjölfar aukins innflutnings
frá Kína. Sendingum frá Kína fjölgaði
gríðarlega mikið á milli áranna 2013-
2014. Ekki er hægt að merkja sér-
staka aukningu eftir að fríverslunar-
samningurinn milli Íslands og Kína
tók gildi 1. júlí á liðnu sumri.
Aðspurður sagði Brynjar Póstinn
ekki hafa neinn hag af tollgjaldi sem
lagt er á póstsendingar. En leikur
einhver vafi á því hvort á að borga toll
af vörum frá Kína eða ekki?
„Nei, ef varan kemur í beinum
flutningi frá Kína þá fellur hún undir
fríverslunarsamninginn en ef ekki er
hægt að sjá með neinum hætti hvort
sending komi í beinum flutningi frá
Kína þá fellur hún ekki undir fríversl-
unarsamninginn. Eins og áður sagði
þá eru öll álitamál borin undir toll-
inn,“ sagði í skriflegu svari Brynjars.
Rukka toll þrátt
fyrir fríverslun-
arsamninginn
Vara frá Kína sögð koma frá Hollandi
Fylgiseðill Miði sem var límdur á
pakkann við umskipun í Hollandi.