Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Dagur B. Eggertsson hefur lagtfram frumvarp að fjárhags-
áætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár
og upp úr stendur að útsvarsgreið-
endur fá áfram að greiða hæsta
mögulega útsvar og að skatttekjur
fara enn vaxandi.
Ekkert er gert tilað létta álög-
um af borgarbúum
en borgarstjórn-
armeirihlutinn held-
ur ótrauður áfram
að auka við útgjöld
sem tengjast mið-
lægri stjórnsýslu,
ekki síst skrifstofu
borgarstjóra. Þar á
að auka útgjöldin
um 13% frá áætlun
þessa árs og um 10%
frá endurskoðaðri
áætlun.
Þetta fer illa saman við tal um að-hald og góðan rekstur, en að-
haldið á ekki upp á pallborðið þeg-
ar gæluverkefnin eru annars vegar.
Þannig má nefna að það sem kall-að er mannréttindaskrifstofa
fær á næsta ári, samkvæmt áform-
um meirihlutans, 103 milljónir
króna, sem er hækkun um 13% frá
áætlun síðasta árs.
Annað gæluverkefni er kaup-samningur Halldórs Auðar
Svanssonar í meirihlutaviðræð-
unum, sem kallaður er stjórnkerfis-
og lýðræðisráð.
Það ágæta ráð er nýstofnað, enáætlað er að það kosti 23 millj-
ónir króna á næsta ári.
Þetta þykir ef til vill ekki háttverð fyrir heilan meirihluta,
en hlýtur að teljast allnokkuð fyrir
eitt varadekk.
Dagur B.
Eggertsson
Dýrt varadekk
STAKSTEINAR
Halldór Auðar
Svansson
Veður víða um heim 5.11., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Bolungarvík 3 rigning
Akureyri 1 alskýjað
Nuuk -5 léttskýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað
Ósló 1 súld
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 11 léttskýjað
París 10 alskýjað
Amsterdam 7 þoka
Hamborg 10 súld
Berlín 11 skýjað
Vín 18 skýjað
Moskva 3 þoka
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Aþena 17 skýjað
Winnipeg -2 skýjað
Montreal 10 léttskýjað
New York 16 heiðskírt
Chicago 10 skýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:28 16:56
ÍSAFJÖRÐUR 9:47 16:46
SIGLUFJÖRÐUR 9:31 16:29
DJÚPIVOGUR 9:01 16:22
Í dag, fimmtudaginn 6. nóvember kl.
11-18, ætlar Kokkalandsliðið að vera í
Smáralindinni og sýna yfir 30 rétti
sem eldaðir verða í Heimsmeist-
arakeppninni í matreiðslu sem fram
fer í Lúxemborg 22.-27. nóvember.
Kokkalandsliðið hefur æft fyrir
keppnina síðustu 18 mánuði en
keppnisgreinarnar eru tvær, annars
vegar er keppt í köldu borði sem sýnt
verður í Smáralindinni og hins vegar
er keppt í framreiðslu á heitum mat.
Það tekur rúma tvo sólarhringa að
útbúa alla réttina á kalda borðið sem
sýnt verður í Smáralindinni en liður í
æfingarferlinu er að flytja réttina á
milli staða þannig að þeir haldi útliti
sínu alveg.
Íslenskt hráefni notað
„Í keppninni eru gerðar miklar
kröfur um útlit og hráefnisnotkun.
Kokkalandsliðið leggur áherslu á að
nota íslenskt hráefni í réttina sína og
borðbúnaðurinn er meðal annars
unninn úr rekaviði af Ströndum, ker-
amiki, postulíni, silfri og gulli,“ segir í
fréttatilkynningu.
Heimsmeistarakeppnin, Culinary
World Cup, er haldin á fjögurra ára
fresti. Þar mætast færustu kokkar
heimsins og keppa sín á milli um
gull-, silfur- og bronsverðlaun. Í
keppninni um heitu réttina er útbú-
inn þriggja rétta matseðill með for-
rétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er
frá grunni á keppnisstað fyrir 110
gesti.
Landsliðið Kokkarnir hafa æft baki
brotnu undanfarna 18 mánuði.
Landsliðið
sýnir kalda
borðið sitt
Undirbúningur
fyrir HM í matreiðslu