Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Ég hef aldrei sagt að ég séfæddur listamaður.Kommon, Yrsa sko,“ segirSalóme, móðir Yrsu Roca
Fannberg, á fyrstu mínútum heimild-
armyndarinnar. Myndin Salóme er
fyrsta heimildarmynd kvikmynda-
gerðarkonunnar Yrsu og fjallar um
samband hennar við móður sína. Þær
mæðgur eru síður en svo alltaf sam-
mála, eins og ljóst er af fjölmörgum
samtölum í myndinni en upphaflega
stóð til að gera heimildarmynd um líf
og list Salóme. „Mig langaði í raun og
veru að gera mynd um ævi móður
minnar og listina. Það var útgangs-
punkturinn. En svo varð efnið að ein-
hverju allt öðru,“ segir Yrsa. Hug-
myndin um rómantíska og ljóðræna
mynd þurfti að víkja fyrir annarri
sögu.
Borðtennis mæðgnanna
Áður en langt um líður í mynd-
inni, sem áhorfandi heldur jafnvel að
sé einmitt lífssaga Salóme, hefst það
sem Yrsa kallar „borðtennisleikur“,
„ping pong“ eða vals á milli dóttur og
móður. „Ég kalla þetta kannski ekki
valdabaráttu en þetta eru tvö egó að
vissu leyti. Hún vefar allan tímann
og ég tek upp allan tímann,“ segir
Yrsa en hún kvikmyndaði allt efni
myndarinnar sjálf og hófust tökur
árið 2010. Alls tók hún upp 120
klukkustundir af myndefni og nánast
allt inni á heimili móður hennar.
„Þetta er líka um það hvernig
mamma mín treystir og trúir ekki á
heimildarkvikmyndagerð en ég ætla
mér að gera mína mynd, sama hvað
hún segir en mamma stendur upp
Mæðgnasambönd
eru alltaf „tabú“
Heimildarmyndin Salóme er mjög óhefðbundin og hefur vakið mikla athygli hér á
landi og utan landsteinanna. Raunar hefjast sýningar á myndinni ekki fyrr en
annað kvöld í Bíó Paradís en Salóme var fyrst sýnd á Skjaldborgarhátíðinni í júní
á þessu ári. Yfir þessari mynd hafa karlmenn jafnt sem konur tárast, enda sýnir
hún á sérstakan hátt samband mæðgna en slík sambönd geta verið býsna snúin.
Yrsa Roca Fannberg
Vefað Salóme er mikil listakona og vefar dásamleg teppi af öllum stærðum
og gerðum. Samtöl myndarinnar fara flest fram við vefstólinn.
Hvað er öðruvísi við að mynda
fugla, hvað ber að varast og hvað
gerir það eftirsóknarvert? Því verð-
ur svarað á námskeiði í fugla-
ljósmyndun sem Fuglavernd heldur
12., 15. og 18. nóv. og ætlað er jafnt
byrjendum sem lengra komnum í
fuglaljósmyndun. Kynnt verða
grunnatriði, tæki, tækni og nálgun
við fugla. Rætt verður m.a um
myndbyggingu, felutjöld og ljós-
myndun úr bíl. Nánari upplýsingar
um verð og samsetningu er að finna
á vefnum www.fuglavernd.is og
einnig hægt er að senda fyrirspurnir
á fuglavernd@fuglavernd.is
Vefsíðan www.Fulgavernd.is
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Súla Sannarlega fagur fugl sem gaman er að glíma við að fanga á mynd.
Lærið að taka myndir af fuglum
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Hettumáfur Ánægður á einum fæti.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Vertu vinur ávið elsku
m skó
VELKOMIN Í SMÁRALIND
23.990 kr.
Dömuskór
st. 35-40
12.990 kr.
Barnaskór
st. 31-38
10.990 kr.
Barnaskór
st. 22-30
11.990 kr.
Barnaskór
st. 22-30
12.990 kr.
Barnaskór
st. 31-38
VETRARSKÓR
DÖMU OG BARNA
VERTU VELKOMIN TIL
OKKAR Í SMÁRALIND
23.990 kr.
Dömuskór
st. 35-41
23.990 kr.
Dömuskór
st. 35-41
23.990 kr.
Dömuskór
st. 36-41
23.990 kr.
Dömuskór
st. 35-41
2.500 kr.
ÁVÍSUN,KLIPPA ÚT MIÐANN
FYRIRWEINBRENNER,HERRA,DÖMU OG BARNA
GILDIR TIL 10.NÓVEMBER, EINN MIÐI Á PAR