Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 18
Karl Kona
100%
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Heimild: Háskóli Íslands
Allir
Prósenta þeirra sem segjast hlynntir því að
vændiskaup séu refsiverð á Íslandi
57%
40%
75%
Karl Kona
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Heimild: Háskóli Íslands
Allir
Prósenta þeirra sem segjast andvígir því að lögreglan
fái heimild til að bera skotvopn við störf sín
50% 53% 47%
VIÐTAL
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Kristján Þór Júlíusson ráðherra
sagði á fundi ungra sjálfstæð-
ismanna fyrr á árinu að hann vildi
skoða hvort afnema bæri refsingar
vegna einka-
neyslu fíkniefna.
Samkvæmt þess-
ari rannsókn
virðist Kristján
úr takti við al-
menning,“ segir
Helgi Gunn-
laugsson, pró-
fessor í fé-
lagsfræði við
Háskóla Íslands,
sem birti í vik-
unni nýja grein í tengslum við Þjóð-
arspegil HÍ ásamt Jónasi Orra Jón-
assyni sem ber heitið „Gengur
afstaða Íslendinga í berhögg við
ríkjandi refsipólitík?“
Í samvinnu við Félagsvís-
indastofnun HÍ spurði Helgi um
1480 manns fimm spurninga um
refsilöggjöfina og var svarhlutfallið
60%. Niðurstöðurnar sýna að Ís-
lendingar treysta löggjafanum þeg-
ar kemur að fíkniefnaneyslu en
töluvert hefur verið rætt og ritað
um að afglæpavæða einkaneyslu
fíkniefna. „Aðeins um þriðjungur
vill ekki refsa fyrir neyslu fíkniefna.
Við höfum nýlegar mælingar þar
sem spurt er hvort lögleiða eigi
kannabis og yfirleitt eru um 10-20%
sem styðja það. Sá minnihluti virð-
ist stundum áberandi miðað við
hinn þögla meirihluta.
Yngri vilja afglæpavæða
En skýr aldursmunur kemur
fram í könnuninni, yngra fólk vill
frekar afglæpavæða einkaneyslu en
þeir sem eldri eru. Einnig styðja
marktækt fleiri konur núverandi
fyrirkomulag og heildin er skýr þar
sem meirihlutinn vill ekki af-
glæpavæða neyslu fíkniefna.“
Kaup á kynlífstengdri þjónustu
voru gerð refsiverð árið 2009 þegar
hin svokallaða sænska leið var tekin
upp. Helgi segir að lögreglan hafi
sett nýju löggjöfina í meiri forgang
á síðustu misserum og beiti sér mun
oftar í dag en hún gerði fyrst. Frá
2010-2013 voru rúmlega þrjú hundr-
uð mál kærð, þar af 175 á árinu
2013. Alls voru seljendur vændis 30,
23 konur og sjö karlmenn.
Vændiskaup refsivert athæfi
Kaup á vændi geta varðað allt að
árs fangelsi en flestum málanna
hefur lokið með sektargreiðslu.
„Framan af var lögreglan greini-
lega ekki með brotið ofarlega á
verkefnalista sínum. En síðastliðið
ár virðist hún hafa gert átak í mála-
flokknum með jafnvel hundruð sak-
borninga í sigtinu og þegar er búið
að dæma nokkra tugi fyrir vænd-
iskaup. Lögreglan hefur því tekið
málið alvarlega og þá vaknar spurn-
ingin hvort þjóðin sé því fylgjandi.
Við spurðum í rannsókninni: Ertu
hlynnt(ur) því að vændiskaup séu
refsiverð á Íslandi? Niðurstöðurnar
sýna að það er drjúgur meirihluti
fylgjandi núverandi fyrirkomulagi. Í
svörunum kom líka mikill kynja-
munur í ljós. 75% kvenna styðja
löggjöfina en aðeins 40% karlanna.
Heildin styður samt ríkjandi löggjöf
og afstaða kvenna ræður þar úrslit-
um.“
Lögreglan beri ekki skotvopn
Helgi framkvæmdi rannsóknina í
febrúar og apríl á þessu ári og
spurði meðal annars um skotvopna-
burð lögreglu en meirihlutinn styð-
ur núverandi fyrirkomulag um að
lögregla beri ekki skotvopn við
skyldustörf sín. Mikil umræða hefur
skapast um vopnaburð lögreglunnar
að undanförnu en könnun Helga fór
fram áður en umræðan hófst. „Það
var engin umræða um þessi mál
þegar við spurðum að þessu og
svarendur því ekki uppveðraðir af
málinu. Þarna fær maður mynd af
þjóðarsálinni þegar umræðan er
ekki í miðri pólitískri orrahríð eins
og hefur verið undanfarið,“ segir
Helgi og bætir því við að það skipti
miklu máli að löggjöfin og fram-
kvæmd hennar endurspegli rétt-
artilfinningu borgaranna – að sam-
staða sé á milli löggæslunnar og
þjóðarinnar.
„Sumir fræðimenn hafa rann-
sakað afleiðingar þess að réttarfar
gangi í berhögg við siðferðis- og
réttlætiskennd borgaranna. Smám
saman grafi það undan réttarríkinu
í samfélaginu ef framkvæmd laga
og dómar gangi gegn réttartilfinn-
ingu borgaranna. Stofnanir eiga
ekki að fara sínu fram án samráðs
við þegnana. Ef almenningur styðji
málefnið sé það fínt en ef ekki verði
svo bara að vera. Nei, það er brýnt
að það sé samhljómur á milli rétt-
arvörslukerfisins og almennings.“
Mikill meirihluti vill auka vald-
heimildir lögreglu
„Traust á lögregluyfirvöldum
birtist með skýrum hætti í því að
mikill meirihluti vill auka valdheim-
ildir lögreglu til að rannsaka alvar-
leg afbrotamál, eins og fíkniefna-
brot, með símahlerunum og notkun
á tálbeitu í baráttunni við glæpi. Í
aðalatriðum styðja Íslendingar
ríkjandi refsipólitík um leið og þeir
vilja gefa yfirvöldum jafnvel meira
svigrúm til að rannsaka og upplýsa
afbrotamál af ýmsu tagi.“
Vilja refsa fyrir fíkniefnanotkun
Ný rannsókn Helga Gunnlaugssonar, prófessors í félagsfræði, sýnir að ríkjandi löggjöf um fíkni-
efnaneyslu og vændiskaup nýtur stuðnings þorra þjóðarinnar Skýrar og afgerandi niðurstöður
Morgunblaðið/Júlíus
Kannabis Ríkjandi löggjöf varðandi neyslu vímuefna og bann við vænd-
iskaupum nýtur stuðnings þorra þjóðarinnar, samkvæmt könnun Helga.
Helgi
Gunnlaugsson
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Opið til miðnættis í dag
Kringlan 4-12 • Sími 533 4533 • Finndu HYGEA á facebook
Fagleg þjónusta í 60 ár
20% afsláttur
af öllum vörum
Léttar veitingar, happdrætti, snyrtivörukynningar
34%
Segjast mjög eða frekar hlynnt
því að varsla fíkniefna til einka-
nota verði gerð refsilaus.
48%
18-29 ára segjast vera mjög eða
frekar hlynnt því að varsla
fíkniefna til einkanota verði gerð
refsilaus.
24%
60 ára og eldri vilja að
varsla fíkniefna til einkanota
verði gerð refsilaus.
YNGRI VILJA REFSILAUSA
FÍKNIEFNANOTKUN
»
Morgunblaðið/Ómar
Stuðningur Í aðalatriðum styðja Íslendingar ríkjandi refsipólitík.