Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 24
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Styttan af Einari er á góðum stað á
Klambratúni. Er í raun sviðsmynd úr
sögunni. Ég geri mér því ekki alveg
grein fyrir hvort henni verður betur
fyrir komið á nýjum stað. Að vísu er
gróðurinn orðinn það mikill í kring-
um skáldið að það er nánast fallið í
skugga,“ segir Björgvin Halldórsson
söngvari.
Flutt að frumkvæði áhugafólks
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti
á fundi sínum í síðustu viku tillögu
Dags B. Eggertssonar borgarstjóra
um að stytta Ásmundar Sveinssonar
af skáldinu og athafnamanninum
Einari Benediktssyni verði flutt af
núverandi stað að Höfða. Það hús lét
Einar reisa árið 1909 og bjó þar með
fjölskyldu sinni um nokkurt skeið. Er
Höfði þó aðeins eitt fjölmargra húsa í
Reykjavík sem skáldið tengist á ein-
hvern hátt.
Mál þetta er í deiglu nú sakir þess
að 31. október síðastliðinn voru 150
frá fæðingu Einars Benediktssonar.
Sama dag er hálf öld frá því styttan
var afhjúpuð. Fyrirætlanir um að
flytja styttuna nú eru að frumkvæði
áhugafólks um skáldið Einar, sögu
hans arfleifð. Það kom hugmyndinni
á framfæri við borgarfulltrúa sem nú
hafa komið málinu í gegnum kerfið,
eins og það er kallað.
Þar sem styttan er nú á Klambra-
túni þykir hún falin í skjóli trjáa og
sumir telja að því fái hún ekki þá at-
hygli sem henni ber. Og nú á að færa
listaverkið en áætlaður kostnaður við
það er 15 milljónir kr. Þá upphæð
ætlar borgin að greiða að hálfu á móti
framlagi áðurnefnds áhugahóps.
En hverfum nú 45 ár aftur í tímann
því Björgvin Halldórsson og styttan
á Klambratúni fléttast saman í sögu
frá árinu 1969.
Þrír á höfði skáldsins
Á Popphátíðinni miklu sem haldin
var í Laugardalshöll í sept-
emberbyrjun 1969 var Ævintýri
kjörin hljómsveit ársins. Hana skip-
uðu Arnar Sigurbjörnsson, Sigurjón
Sighvatsson, Birgir Hrafnsson,
Sveinn Larsson og Björgvin Hall-
Sviðsmynd úr poppsögu af
Einar Benediktsson og Björgvin Halldórsson í sömu sögunni Sungið fyrir 45 árum á styttunni
sem verður flutt af Klambratúni Ævintýri eftir dansleik sem var í Tónabæ Ljúfsárar minningar
Ljósmynd/Kári Jónasson
1969 Björgvin
syngur og klapp-
ar saman lóf-
unum fyrir káta
krakka. Einn úr
hópnum settist á
höfuð skáldsins.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Smart föt, fyrir smart skvísur
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Stærðir 38-52
Eftir að laganna verðir höfðu
stöðvað klifurkettina sem príluðu
upp á styttuna af þjóðskáldinu Ein-
ari Ben. komst nokkurt los á tón-
leikana á Miklatúni. En kominn var
galsi í mannskapinn, eins og þar
stendur, og engin leið að hætta.
Færði fólk sig því ofar á Miklatún-
ið, þar sem var leikið og sungið um
stund. Svo leystist samkoman upp
og hljómsveitarstrákarnir komust
burt með leigubíl.
Nokkuð bar á gagnrýni eftir tón-
leikanna. Í greinum í dagblöðum á
þessum tíma er vandlætingartónn
og nokkuð ber á gagnrýni á „ung-
dóminn nú til dags“ svo notað sé
þekkt orðalag. Slík viðhorf eru allt-
af til staðar, hinir eldri gagnrýna
þá yngri og telja þá ganga of greitt
um gleðinnar dyr.
Í samtali við Vísi haustið 1969,
eftir uppákomuna á Miklatúni,
sagði Björgvin, sem á þessum tíma
var einhver dáðasta stjarna ís-
lenskra æsku, að nú væri „allt orðið
miklu frjálsara, hömlur eiga ekki
lengur við“, eins og hann komst að
orði. Söngvarinn neitaði því að
hann væri að leiða unglingana út á
hálar brautir, þó svo að einn dans-
leikur endaði uppi á myndastyttu af
„Allt er
orðið miklu
frjálsara“
Ljósmynd/Kári Jónasson
Fjör „Stelpur langar til þess að dansa go go,“ sagði söngvarinn Björgvin
Ráðsettum borgurum árið 1969 þótti Miklatúnsæskan vera á hálum ís