Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 26
tískuskeiði greinarinnar. Hann hef-
ur haft þetta áhugamál frá unga
aldri. „Þegar pabbi [Sturla Böðv-
arsson] var ráðinn bæjarstjóri í
Stykkishólmi 1974 byggði hann sér
fljótlega hesthús og keypti hesta.
Fyrsti hesturinn var frá Stakk-
hamri. Pabbi átti alltaf góða hesta
og ég hef því haft aðgang að góðum
hestum frá því ég var sjö eða átta
ára gamall.“
Gunnar segir að mikil gróska hafi
verið í hestamennskunni í Stykk-
ishólmi. Nefnir að fimm eða sex
strákar úr sama unglingahópnum
séu atvinnumenn í hestamennsku.
Ekki munaði miklu að Gunnar færi
einnig þá leið. Hann keppti mikið
sem unglingur og upp í fullorð-
insflokk á landsmóti. Hann langaði
að fara í búfræðinám í Bændaskól-
anum á Hvanneyri, áður en hann
fór í menntaskóla, en ekki varð af
því. Það hefði ef til vill breytt
starfsferlinum ef hann hefði farið á
Hvanneyri.
Gunnar hætti að keppa og fékk
útrás fyrir hestaáhugann í hesta-
ferðum um landið. Hann fór raunar
aftur inn á keppnisbrautina á árinu
2007, eftir margra ára hlé.
Árangur í ræktuninni
„Mig langaði alltaf að eignast
land fyrir hestana, helst hér á Nes-
inu,“ segir Gunnar um tildrög þess
að hann hefur hreiðrað um sig í
Hrísdal en hann á miklar rætur á
Snæfellsnesi. Jörðina keypti hann
2003. „Tveimur árum síðar byrjaði
ég að endurnýja fjárhúsin og
breyta þeim í hesthús og hlöðunni í
litla reiðhöll. Þegar það var að
verða tilbúið ákvað ég að láta
drauminn rætast og gerast bóndi.“
Hann réð Sigurodd Pétursson og
Ásdísi Ólöfu Sigurðardóttur til
starfa og annast þau tamningar og
dagleg störf á búinu.
Gunnar tekur sjálfur þátt í bú-
störfunum, meðal annars með því
að þjálfa hrossin með útreiðum.
Mestan áhuga hefur hann samt á
ræktun hrossa sem hann hóf eftir
að jörðin var keypt. „Ég fæ heil-
mikið út úr því að fylgjast með ung-
viðinu vaxa upp og verða að brúk-
legum hestum.“
Ræktunin hefur gengið vel. Bú
Gunnars, Hrísdalshestar, var til-
nefnt af fagráði í hrossasrækt sem
eitt af tíu bestu ræktunarbúum árs-
ins 2013 og fékk þann heiður að
vera með ræktunarbússýningu á
Landsmóti hestamanna á Hellu í
sumar. Af einstökum hestum úr
ræktuninni sem vakið hafa athygli
má nefna stóðhestinn Hryn frá
Hrísdal sem varð í 3. sæti í B-flokki
gæðinga á Landsmótinu á Hellu og
stóðhestinn Stegg frá Hrísdal sem
var hæst dæmdi 4. vetra klárhest-
urinn í kynbótadómi á árinu 2013.
„Ég legg áherslu á að rækta geð-
góð og falleg afkastahross sem
henta mér. Ég vil að þau séu stór,“
segir Gunnar sem sjálfur er hávax-
inn og velur sér því stóra hesta til
reiðar.
Borghildur dóttir Gunnars er
áhugasöm hestastúlka, keppir á
mótum og stundar eigin ræktun í
Hrísdal.
Gunnar hefur tekið þátt í fé-
lagsmálum hestamanna í nokkur ár
og er nú forseti FEIF, alþjóða-
samtaka um íslenska hestinn. Er
það í fyrsta skipti sem Íslendingur
er kosinn í það embætti. Gunnar
Bjarnason hrossaræktarráðunautur
var einn af stofnendum samtakanna
og lengi varaforseti. Jón Albert
Sigurbjörnsson var einnig varafor-
seti um tíma og Gunnar í tvö ár áð-
ur en hann var beðinn um að taka
við formennsku. Gunnar telur að
nafni hans hafi talið að áhrif Íslend-
inga væru ærin þótt þeir væru ekki
með formennskuna og það myndi
ýta meira undir starfið í hinum
löndunum ef forystan væri ekki á
Íslandi.
Hægur vöxtur er í Íslandshesta-
mennskunni í Evrópu um þessar
mundir, að sögn Gunnars. „Það er
heilmikill áhugi á íslenska hestinum
og það bætist hægt og bítandi í
hópinn. Hins vegar hefur efnahags-
Tæmir hugann með hestu
Gunnar Sturluson nýtur þess að sjá
ungviðið á hestabúgarðinum vaxa upp
og verða að brúklegum hrossum
Segir að sameining hestamanna
myndi stuðla að friði Íslendingar
taka í fyrsta skipti þátt í undirbúningi
Heimsleika íslenska hestsins
Ljósmynd/Jón Björnsson
Ræktandinn Gunnar Sturluson sýndi Nökkva frá Hrísdal á ræktunarbús-
sýningu Hrísdalshesta á Landsmóti hestamanna á Hellu í sumar.
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég skipulegg mig í kringum þetta
tvennt. Vinnan hefur alltaf forgang,
enda lögmennskan einstaklega
áhugavert starf, og ég hef alltaf
unnið mikið. Það er líka gott að
geta tæmt hugann með því að sinna
hestunum,“ segir Gunnar Sturluson
hæstaréttarlögmaður um samræm-
ingu ábyrgðarmikils starfs hjá LO-
GOS, stærstu lögmannsstofu lands-
ins, og hestamennskunnar. Hann
bætir því við að ekki sé tími af-
gangs fyrir önnur áhugamál.
Gunnar fer oftast úr jakkaföt-
unum á föstudögum og leggur lög-
mannsskikkjuna til hliðar og vinnur
sem hrossabóndi um helgar á
hestabúgarði sínum, Hrísdal á Snæ-
fellsnesi. Þar tekur hann þátt í bú-
störfum með starfsfólki sínu. Á
sumrin ver hann meiri tíma í sveit-
inni og sækir þá vinnu til borg-
arinnar.
Gunnar hefur komið sér vel fyrir
í Hrísdal. Úr íbúðarhúsinu getur
hann fylgst með stóði sínu. Þá sér
hann vel yfir Miklaholtshreppinn
þar sem frændfólk hans er á mörg-
um bæjum. Mikilvægast finnst hon-
um að sjá heim að Hjarðarfelli þar
sem hann var í sveit hjá afa sínum
og ömmu, Gunnari Guðbjartssyni
bændahöfðingja og Ásthildi Teits-
dóttur, og frændum sínum. Þaðan
er móðir hans, Hallgerður Gunn-
arsdóttir.
Gunnar er ekki einn af þeim sem
fóru í hestamennsku á einhverju
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með og
hvernig lífi þú lifir, því ReSound heyrnartækin, eru vel til þess fallin
að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi hljómgæði
og snjalla þráðlausa tengingu.
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Fyrstu snjall-
heyrnartækin