Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 28

Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 28
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Múlakot er bær sem á sér sögu, en hve merk hún er gerðum við okkur kannski ekki að fullu ljóst þegar við eignuðumst jörðina og húsin hér. Byggingarnar eru það sem kalla má menningarminjar og af ýmsu hér á bæ fór orð fyrr á tíð. Þetta var listasetur á svo margan hátt,“ segja hjónin Sigríð- ur Hjartar og Stefán Guðbergsson í Múlakoti í Fljótshlíð. Hótel, skrúðgarður og listasetur Næstkomandi laugardag, 8. nóv- ember, verður í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð málstofa um varðveislu og endurreisn í Múla- koti. Kynnt verða áform um stofn- un sjálfseignarstofnunar, en ætl- unin er að endurbyggja á hennar vegum gömlu Múlakotshúsin sem forsætisráðherra friðlýsti sumar að tillögu Minjastofnunar Íslands. Íbúðarhúsið í Múlakoti, sem er innarlega í Fljótshlíðinni, var reist í nokkrum áföngum á árunum 1898 til 1946. Þetta er stórhýsi sem stendur á rústum torfbæjar fyrri alda. Alls 27 vistarverur eru í byggingunni og þarna var rekið eitt fyrsta sveitahótelið á Íslandi. Innbú gamla tímans er að stórum hluta enn í húsinu, en í því var bú- ið fram til 1997. Þá eru á bæj- arstaðnum rústir hesthúss, hlöðu og súrheysturns og lystigarður Guðbjargar Þorleifsdóttur, einn fyrsti skrúðgarðurinn á Íslandi. Í garðinum er gestastofa, sem form- lega er kölluð lysthús, og að húsa- baki er svo skemma sem áður var vinnustofa Ólafs Túbals listmál- ara, sem átti heima í Múlakoti alla sína ævi. Fyrr á tíð var Ólafur Túbals, sem lést 1964, einn af þekktari myndlistarmönnum þjóðarinnar. Hann eignaðist vináttu margra kollega í kúnstinni. Má þar nefna málarana Ásgrím Jónsson, Gunn- laug Scheving, Guðmund frá Mið- dal og Einar Jónsson myndhöggv- ara. Þeir allir og margir fleiri komu í Múlakot og gerðu náttúr- una þar sér að yrkisefni, hver á sinn hátt. Margir máluðu til dæm- is Eyjafjallajökul sem blasir við af bæjarhlaði og er kannski hvergi fallegri að sjá. Fyrir vikið hefur staðurinn sterka tengingu við listasögu Íslendinga. Hvött til kaupa Þau Sigríður og Stefán hafa verið viðloða Fljótshlíðina frá 1974, þegar þau eignuðust þar sumarbústað. Milli þeirra og Reynis bónda í Múlakoti, sem var sonur Ólafs Túbals og Láru Eyj- Múlakot verði menningarsetur  Sjálfseignarstofnun um bæinn í Hlíð- inni  Endurbyggja á hús frá 1896  Einn fyrsti gististaður í sveitum lands  Listamenn voru oft á ferðinni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stórhýsi Íbúðarhúsið í Múlakoti, sem er innarlega í Fljótshlíðinni, var reist í áföngum á árunum 1898 til 1946. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Múlakotsfólkið Hjónin Stefán Guðbergsson og Sigríður Hjartar við lágmyndina af ræktunarkonunni Guðbjörgu Þorleifsdóttur, en hana gerði Einar Jónsson myndhöggvari sem var einn margra listamanna sem kom í Múlakot. Ljósmynd/Hergeir Kristgeirsson Gistihúsið Fólk úr Flóanum í skemmtiferð í Múlakoti. Mynd frá árinu 1955. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnúson Fljótshlíðingur Ólafur Túbals, sem var einn af þekktari listmálurum þjóð- arinnar á sínum tíma, var fæddur í Múlakoti og bjó þar alla tíð. 28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Ketilbjöllur þriðjud. og fimmtu d. kl 12:00 Cross train Extre me XTX Mánud. þriðjud. o g fimmtud. kl. 17. 15 Laugardagar kl.10 .00 Spinning mánudaga, miðvik udaga og föstudaga kl. 12:0 0 og 17:15 Opnir tímar: Frír prufutími Persónulegt þjónusta og vinalegt umhverfi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.