Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 38
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Einn góður kunningi kom til mín
upp á svið á Kringlukránni um dag-
inn og spurði hvort ég væri ekki að
spila í Austurbæ 29. nóvember. Ég
játaði því og þá spurði hann: Hvern-
ig er það, verður ekki dansað þar?
Ég sagði að hann yrði bara að dansa
í sætinu, standa upp og klappa og
dilla sér,“ segir skagfirski sveiflu-
kóngurinn Geirmundur Valtýsson
sem undirbýr mikla jólagleði í Aust-
urbæ 29. nóvember næstkomandi.
Þetta eru fyrstu tónleikar Geir-
mundar í höfuðborginni í rúm 20 ár,
eða síðan hann tróð upp á Hótel Ís-
landi með tónleika sem gengu fyrir
fullu húsi frá febrúar 1993 fram að
sjómannadegi það ár.
Með Geirmundi að þessu sinni er
einvalalið söngvara og tónlistar-
manna. Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Diddú, syngur með honum í fyrsta
sinn og aðrir stórsöngvarar eru
Helga Möller og Óskar Pétursson
frá Álftagerði. Þá koma fram tvær
afastelpur Geirmundar, þær Valdís
Valbjörnsdóttir og Anna Karen
Hjartardóttir. Hljómsveit undir
styrkri stjórn Vilhjálms Guðjóns-
sonar leikur undir og kynnir á tón-
leikunum verður Þorgeir Ástvalds-
son útvarpsmaður. Miðar á
tónleikana eru seldir á midi.is og þar
fer hver að verða síðastur að tryggja
sér sæti.
Tónleikar með Helgu kveiktu í
Tónleikarnir nú eru aðallega til-
komnir vegna jólaplötu sem Geir-
mundur gaf út í fyrra. Þá voru haldn-
ir tvennir tónleikar í Miðgarði í
Skagafirði, fyrir fullu húsi, og í kjöl-
farið fékk Geirmundur beiðnir um að
koma suður með sama prógramm.
„Það reyndist bara ekki hægt, mann-
skapurinn var þá allur upptekinn.
Síðan kom ég fram á jólatónleikum
Helgu Möller í Austurbæ í fyrra og
söng með henni nokkur lög. Það var
ægilega skemmtilegt, fullur salur og
góð stemning. Þetta kveikti í mér að
skella upp tónleikum núna. Helga
var strax sjálfkjörin í að syngja með
mér og Óskar var meira en til. Afa-
stelpurnar Valdís og Anna Karen
verða þarna líka, gaman að því en
þær sungu lög inn á jólaplötuna og
voru í Miðgarði,“ segir Geirmundur.
Það kemur betur fram hér aftar
hvernig hann fékk Diddú í slaginn en
Geirmundur reyndi að fá hana til að
syngja inn á jólaplötuna í fyrra en þá
var Diddú upptekin erlendis.
„Í fyrri hluta tónleikanna verða
jólalög eftir mig og fleiri höfunda.
Hver flytjandi fær líka að velja sitt
uppáhaldsjólalag sem hann hefur
sungið, þar var af nægu að taka. Eft-
ir hlé förum við í syrpu með mínum
þekktustu lögum og byrjum á Bíddu
við, sem kom mér á kortið á sínum
tíma,“ segir Geirmundur um laga-
valið en m.a. mun Diddú syngja með
honum Með vaxandi þrá, Helga tek-
ur Lífsdansinn og Óskar lagið Björt
nótt, svo dæmi séu tekin. „Við getum
lofað skemmtilegum tónleikum,
enda frábært fólk með mér,“ segir
Geirmundur en í hljómsveit Villa
Guðjóns gítarleikara verða engir
aukvisar; þeir Jóhann Hjörleifs á
trommum, Þórir Úlfars á hljómborð,
Finnbogi Kjartans á bassa og blás-
ararnir Ásgeir Steingríms og Kiddi
Svavars.
Átti bara Geirmund eftir
„Ég mætti dálítið seint á ballið og
náði síðasta dansinum með mann-
inum mínum. Síðan var ég bara grip-
in á fæti á dansgólfinu, það var ekk-
ert með það,“ segir Diddú um tildrög
þess að Geirmundur fékk hana til að
syngja í Austurbæ. Mætti Diddú þá
á uppskeruhátíð í Mosfellsdalnum í
haust, þar sem hljómsveit Geir-
mundar lék fyrir dansi.
„Hann bara hljóp út á dansgólfið
og bað mig að syngja með sér á jóla-
tónleikum 29. nóvember. Þannig
vildi til að ég átti frí þetta kvöld og
sló bara til. Maður hefur nú dansað
ófáa dansa við lögin hans Geirmund-
ar. Það er nánast enginn karlakór
eftir á landinu, sem ég á eftir að
syngja með, og Geirmundur er einn
af þeim,“ segir Diddú og hlær.
„Þetta verður bara gaman, tónleik-
arnir eru í byrjun aðventu og þetta
verður svona bland í poka hjá okkur
fyrir jólin,“ segir hún að endingu.
Lunkinn við að semja góð lög
„Við höfum sungið saman margar
melódíurnar gegnum tíðina. Hann er
lunkinn við að semja góð lög sem fólk
leggur á minnið. Það er ekki sama
hvernig það er gert,“ segir Helga
Möller um langt og farsælt samstarf
með Geirmundi.
„Hann er duglegur og þekktur
fyrir það á böllum að taka enga pásu.
Ég minnist þess þegar við sungum
saman á tónleikum mínum í fyrra.
Það kom millikafli í einu laginu og í
saxófónsólói labbaði ég á sviðinu að-
eins til Villa og þegar ég sneri mér
við var Geiri kominn fremst á sviðið
og búinn að fá allt fólkið til að standa
upp og klappa. Hann fékk allan sal-
inn með sér um leið, það eru ekki all-
ir sem ná þessu,“ segir Helga.
Diddú gripin á fæti á dansgólfinu
Jólagleði með Geirmundi Valtýssyni og félögum í Austurbæ 29. nóvember Fyrstu tónleikar hans
í Reykjavík í rúm 20 ár Fær Diddú, Helgu Möller og Óskar Pétursson til liðs við sig í söngnum
Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson
Í jólaskapi Geirmundur Valtýsson með gítar við höndina, farinn að undirbúa tónleikana í Austurbæ 29. nóvember
næstkomandi. Með honum leikur og syngur úrval söngvara og tónlistarmanna. Þorgeir Ástvaldsson kynnir.
Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Diddú.
Helga
Möller
Óskar
Pétursson
Þorgeir
Ástvaldsson
Söngkonur Valdís Valbjörnsdóttir
og Anna Karen Hjartardóttir.
38 FRÉTTIRInnlit
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is
30
ÁRA
Himneskar ullarvörur
www.facebook.com/smarollinger
Útsölustaðir:
Hagkaup – verslanir um land allt
Húsgagnaval – Höfn
Blossi – Grundarfirði
Hafnarbúðin – Ísafirði
Fjarðarkaup – Hafnarfirði
Nesbakki – Neskaupsstað
Kaupfélag V-Húnvetninga
Grétar Þórarinsson – Vestmannaeyjum
Undurmjúk
blanda af
Merino ull
og bómull
Enginn kláði - bara yndisleg mýkt
Hentar vel viðkvæmri húð
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð-
ardóttir, hefur skipað séra Sigurð
Árna Þórðarson í embætti sókn-
arprests Hallgrímsprestakalls í
Reykjavík og séra Irmu Sjöfn Ósk-
arsdóttur í embætti prests í presta-
kallinu.
Embætti sóknarprests veitist frá
1. desember nk. og embætti prests
frá 1. apríl 2015.
Sigurður Árni gegnir nú embætti
prests við Neskirkju í Reykjavík en
Irma Sjöfn er verkefnisstjóri Leik-
mannaskólans á Biskupsstofu.
Frestur til að sækja um embættin
rann út 13. október síðastliðinn.
Biskup skipaði í embættin að feng-
inni umsögn valnefndar en valnefnd-
ina skipuðu níu manns úr prestakall-
inu auk prófasts.
Sjö umsækjendur voru um emb-
ættin tvö. Auk Sigurðar Árna og
Irmu Sjafnar voru umsækjendur
Anna Þóra Paulsdóttir guðfræð-
ingur, séra Árni Svanur Daníelsson,
séra Kristján Björnsson, séra María
Ágústsdóttir, og séra Skúli S. Ólafs-
son.
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson og
séra Birgir Ásgeirsson hafa þjónað
Hallgrímssöfnuði undanfarin ár. Jón
Dalbú hefur látið af störfum og
Birgir hættir í apríl á næsta ári.
sisi@mbl.is
Nýir prestar skipaðir
í Hallgrímssókn
Sigurður Árni
Þórðarson
Irma Sjöfn
Óskarsdóttir
Ríkissaksóknari hefur ákært 40
manns fyrir meint kaup á vændi.
Þetta kemur fram í frétt á vef emb-
ættisins.
Ríkissaksóknara bárust í lok júlí
64 mál frá lögreglustjóranum á
Suðurnesjum sem varða meint brot
gegn 1. mgr. 206. gr. almennra
hegningarlaga. Samkvæmt því
ákvæði varðar það sektum eða
fangelsi allt að einu ári að greiða
eða heita greiðslu eða annars konar
endurgjaldi fyrir vændi. Ákær-
urnar voru gefnar út 3. október sl.
og eru málin nú til meðferðar við
Héraðsdóm Reykjavíkur.
40 manns ákærðir fyrir vændiskaup