Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 50
50 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
BAKSVIÐ
Björn Björnsson
Sauðárkróki
Kaupstaðurinn Sauðárkrókur á sér ekki langa
sögu sem þéttbýlisstaður, en árið 1871 settist
þar að Árni Einar Árnason klénsmiður, sá
fyrsti sem á þessum stað hafði þar fasta bú-
setu. Ári síðar fékk Hallur Ásgrímsson kaup-
maður útmælda verslunarlóð.
Svo hröð var fólksfjölgunin fyrstu árin, ekki
hvað síst með tilkomu fleiri kaupmanna og
aukinnar verslunar, að rúmum áratug síðar er
slík þörf orðin á gistirými að ráðist var í bygg-
ingu gistihúss og var það Halldór Stefánsson
frá Víðimýri, sem keypti norskt hús sem staðið
hafði í Grafarósi en þar áður á Hofsósi og flutti
til Sauðárkróks til þessara nota.
Þetta „nýja“ hús hafði raunar verið flutt til
Hofsóss frá Noregi um 1820, og þá ekki nýtt,
og því veit raunar enginn hversu gamalt það
er, en í dag er það eitt af tuttugu elstu timb-
urhúsum landsins. Það mun hafa verið Sig-
valdi Blöndal sem tók við rekstri hótelsins ár-
ið1889, sem fyrst gaf húsinu nafnið Tindastóll.
Ekki hefur á Tindastóli verið samfelldur
hótelrekstur en um 1970 var slíkri starfsemi
hætt, enda húsið orðið mjög illa farið, og þá
sett á leigumarkað. En á tíunda áratug síðustu
aldar var tekið til við endurgerð hússins og var
það þáverandi eigandi Pétur Einarsson sem að
því stóð og hófst aftur hótelrekstur á Tinda-
stóli þann 1. apríl árið 2000.
Marlene Dietrich meðal gesta
Hótel Tindastóll er glæsilegt hús sem á sér
merka sögu og má nefna að þar var meðal ann-
ars stofnað Náttúrulækningafélag Íslands að
tilstuðlan Jónasar Kristjánssonar læknis, þar
voru um árabil allir fundir sýslunefndar haldn-
ir, og á Tindastóli gisti hin heimsþekkta söng-
kona Marlene Dietrich er hún heimsótti og
skemmti breskum setuliðsmönnum á árum síð-
ari heimsstyrjaldar.
Núverandi eigendur Hótels Tindastóls eru
hjónin Selma Hjörvarsdóttir og Tómas H. Ár-
dal. Þau hafa gert stórátak í gistihúsamálum
Sauðárkróks, því auk Hótels Tindastóls og
annars nýuppgerðs húss þar við hliðina, eiga
þau og reka Gistiheimilið Miklagarð og yfir
sumarmánuðina Hótel Miklagarð í heimavist
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Í tilefni af 130 ára afmæli hússins buðu þau
hjónin öllum Skagfirðingum til leiksýningar á
Hótel Mælifelli þar sem Elvar Logi Hann-
esson frá Komediuleikhúsinu sýndi tvo einleiki
um Gísla Súrsson og Fjalla-Eyvind við mjög
góðar undirtektir áhorfenda.
Hótel Tindastóll á sér litríka sögu
Morgunblaðið/Anna Dröfn Björnsdóttir
Hótel Tindastóll Glæsilegt hús í hjarta gamla bæjarins á Sauðárkróki. Það er eitt af tuttugu
elstu timburhúsum landsins. Margir frægir einstaklingar hafa gist þar í gegnum tíðina.
Eigendurnir Hjónin Tómas Árdal og Selma
Hjörvarsdóttir eru með mörg járn í eldinum.
Elsta starfandi hótel landsins hélt upp á 130 ára afmælið Í sögufrægu húsi
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Sigurður Hrafn Kiernan hafði aldr-
ei hlaupið lengra en 10 kílómetra í
einu þegar hann og vinur hans
ákváðu að reyna við Laugavegs-
hlaupið árið 2008. Þegar fimm kíló-
metrar voru eftir af hlaupinu var
Sigurður þegar farinn að velta því
fyrir sér hvernig hann gæti bætt
tíma sinn í þessu 55 kílómetra langa
hlaupi. Síðan hefur hann 19 sinnum
hlaupið óbyggðahlaup sem eru
lengri en maraþon og þar á meðal
hefur hann alls sex sinnum farið
lengra en 100 kílómetra. Í fyrra
endaði hann í fjórða sæti í Lauga-
vegshlaupinu og skákaði þar m.a.
annars þaulvönum og landsþekktum
hlaupurum.
Árangurinn er ekki síst athygl-
isverður fyrir þær sakir að Sig-
urður er 45 ára gamall og hóf ekki
að hlaupa af alvöru fyrr en hann var
39 ára.
„Hugmyndin var að fara í Lauga-
vegshlaupið einu sinni, bara til að
geta sagst hafa gert það. Í mínum
huga voru hlaup aldrei nein
skemmtun og það var viðhorfið al-
veg þar til í lok fyrsta hlaupsins, þá
fór ég að velta því fyrir mér hvernig
ég gæti bætt tímann fyrir næsta ár,
segir Sigurður.
Lamaðist á vinstri fæti
Hann hljóp aftur í Laugavegs-
hlaupinu árið á eftir og bætti tíma
sinn um klukkustund. Í framhaldinu
ákvað hann að prófa eitthvað nýtt
og sett sig í samband við hlaupara
sem höfðu farið til útlanda að
hlaupa. Úr varð að hann hljóp í hlíð-
um Mont Blanc í Frakklandi árið
2010 en hlaupið er 89 km. „Ég
komst að því að styttri hlaupin snú-
ast um meiri þjáningu. Menn
hlaupa mun hraðar, púlsinn er hrað-
ari og það er kvöl og pína. Eina
ánægjan er að komast yfir marklín-
una. En þessi löngu hlaup eru
ákveðið ferðalag. Þú nýtur þess að
vera í hlaupinu. Maður fer ekki það
hratt að maður hafi ekki tíma til
þess að njóta náttúrunnar í kring-
um sig. Svo er hægt að tala við aðra
hlaupara á leiðinni og kynnast þeim.
Og ég hef einnig gaman af því að
vera í umhverfi þar sem fólk hvetur
mann áfram,“ segir Sigurður.
Aðspurður segir Sigurður það
erfiðasta við hlaupin gjarnan ytri
aðstæður á borð við veður. „Árið
2011 fór ég í hlaup á Kanaríeyjum
sem var 123 kílómetra langt. Það
var mjög erfitt því ég var kominn
með blöðrur og opin sár. Þetta var
gríðarleg kvöl í lokin og svo þegar
ég kom í mark þá lamaðist ég á
vinstri fæti. Vöðvinn bólgnaði það
mikið að hann klemmdi fyrir blóð-
flæði,“ segir Sigurður en þetta var
fyrsta hlaup hans sem var yfir 100
kílómetrum. Einnig segir Sigurður
að gríðarlega erfitt hafi verið að
hlaupa í Western States-hlaupinu í
Kaliforníu sem er elsta ut-
anvegahlaup heims yfir 100 km og
var það fyrst haldið fyrir 45 árum
og er það um 160 km langt. „Það
var 37 stiga hiti í hlaupinu og ég
átti mjög erfitt með að klára,“ segir
Sigurður.
Nótt númer tvö erfið
Hann segir að andlega séu hlaup-
in erfiðust þegar búið er að hlaupa
tæpan helming vegalengdarinnar.
„Þegar maður hefur lokið við 130
kílómetra er orðið gaman aftur því
þá sér maður fyrir endann á þessu,“
segir Sigurður. „En svo er einnig
mjög erfitt þegar maður er að
hlaupa inn í nóttina. Sérstaklega
nótt númer tvö. Þú sefur ekkert í
hlaupi og maður verður gríðarlega
syfjaður. Líkamsklukkan fer í gang
og um þrjú um nóttina er mikill
barningur að halda sér vakandi,“
segir Sigurður.
Raunar hefur honum ekki alltaf
tekist að halda sér vakandi. Tvíveg-
is hefur hann sofnað á hlaupum. „Í
Western States-hlaupinu fór mig að
dreyma og ég sá fyrir mér neonljós
í skóginum um miðja nótt. Ég datt
reglulega og þetta var mjög erfið
nótt. Svo þegar ég var að klifra
hæsta fjallið í Mont Blanc-hlaupinu,
sem er um 2.000 metra hækkun, var
ég orðinn svo ruglaður að ég taldi
það góðan tíma til að sofna og hvíla
sig. Það leiddi náttúrlega til þess að
ég datt. Það er þó betra að það ger-
ist á uppleið en á leiðinni niður,“
segir Sigurður kíminn.
667 km á fjórum mánuðum
Hann segir að nokkrir Íslend-
ingar stundi slík hlaup en mjög erf-
itt getur reynst að komast inn í
frægustu hlaupin. „Ég var mjög
heppinn árið 2013 og komst inn í öll
hlaupin, segir Sigurður en þá hljóp
hann fimm sinnum hlaup sem eru
lengri en maraþon frá maí fram í
lok ágúst, alls rúma 667 km. Hann
segist um mánuð að jafna sig. „Eftir
hlaup langar mann stundum að fara
að sofa og hvíla sig. En stundum er
maður í betra formi, þá fæ ég mér
alltaf bjór. Hann er mjög góður
orkudrykkur. Maður þolir kannski
ekki mikið, er orðinn góður eftir
einn,“ segir Sigurður og hlær.
Hefur tvívegis sofnað í miðju hlaupi
Sex sinnum hlaupið lengra en 100 km á fjórum árum Ákvað að sofna á leið upp fjallið
Ljósmynd/Sigurður Hrafn Kiernan
Í mark Sigurður hleypur lokaspölinn í bænum Chamonix eftir Mont Blanc-hlaupið 2013 með syni sínum Hilmari.
Utanvegahlaup Sigurðar
Ultra Trail Tour du Mont Blanc (UTMB)
Laugavegurinn 55 km, Landmannalaugar - Húsadalur
Ultra-Trail Mt. Fuji (UTMF)
Sur les Traces des Ducs de Savoie (TDS)
Iceland Stage Race
Laugavegurinn 55 km, Landmannalaugar - Húsadalur
Western States 100 Mile Endurance Run
Transvulcania 2013
Ultra Trail Tour du Mont Blanc (UTMB)
Laugavegurinn 55 km, Landmannalaugar - Húsadalur
Mt. Esja Ultra Trail Xtreme
The North Face Endurance Challenge 50 Miles
Sur les Traces des Ducs de Savoie (TDS)
Laugavegurinn 55 km, Landmannalaugar - Húsadalur
Transgrancanaria 123
Ultra Trail Tour du Mont Blanc (UTMB)
Laugavegurinn 55 km, Landmannalaugar - Húsadalur
Laugavegurinn 55 km, Landmannalaugar - Húsadalur
Laugavegurinn 55 km, Landmannalaugar - Húsadalur
168 km
55 km
160 km
119 km
250 km
55 km
160 km
83,3 km
103,4 km
55 km
70 km
80 km
110 km
55 km
123 km
89 km
55 km
55 km
55 km
2014
Ár Hlaup Vegalengd
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Morgunblaðið/Þórður
Um heim allan Sigurður hefur tek-
ið þátt í hlaupum víðs vegar um
heiminn, í þremur heimsálfum.