Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 51

Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 51
FRÉTTIR 51Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Húss & heilsu, segir að í dag vanti íslenskar rannsóknir á byggingum og viðurkennd viðmið eða verkferla um hvernig bregðast eigi við myglusvepp. Einnig vanti ramma utan um aðferðir við rann- sóknir, sýnatökur og túlkun á nið- urstöðum. „Mikilvægt er að við fylgjum nið- urstöðum nýjustu rannsókna og nið- urstaðna frá viðurkenndum rann- sóknaraðilum,“ sagði Sylgja Dögg. Hún sagði til dæmis að ekki væru til niðurstöður neinna rannsókna sem sýndu fram á það að einföld notkun einhverra efna dygði til þess að minnka eða koma í veg fyrir mögu- leg áhrif vegna myglusvepps á heilsu íbúa eða starfsfólks í húsnæði þar sem myglusveppur hefur hreiðr- að um sig. „Það er kostnaðarsamt fyrir sam- félagið að viðurkenna þetta vanda- mál,“ sagði Sylgja Dögg. „Kannski er það þess vegna sem margir taka það ekki alvarlega. En maður spyr sig hvort ekki sé betra að horfast í augu við vandann og setja fjármagn í forvarnir og rannsóknir á þessu sviði. Vandamálið hverfur ekki þó að við hundsum það.“ Ljósmynd/Hús & heilsa Óboðinn gestur Myglusveppurinn býr um sig þar sem er raki og lífræn efni. Hann getur nærst á timbri, dúkalími, striga, pappa og jafnvel flísalími. Mikilvægt að rann- saka myglusvepp Guðni Einarsson gudni@mbl.is Algengt er að eigendur fasteigna vilji ekki að sagt sé frá því ef myglu- sveppur finnst í húsum þeirra. Ástæðan er ótti við að slík umfjöllun komi niður á verði fasteignarinnar. „Mjög fá mál rata í fjölmiðla af þessari ástæðu,“ sagði Sylgja Dögg Sigurjóns- dóttir, líffræð- ingur og fram- kvæmdastjóri Húss & heilsu. Fyrirtæki hennar tekur út húsnæði vegna raka og mögulegs myglu- svepps, tekur sýni og lætur greina sýnin ýmist hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands eða hjá rannsóknastofum erlendis. „Við erum bara lítið fyrirtæki og fáum 5-10 fyrirspurnir á dag. Mér finnst það vera óhugnanlega mikið í þessu litla samfélagi. Fólk er hrætt við myglusvepp sem er í langflestum tilfellum óþarfi sé rétt brugðist við. Mygla er enginn dauðadómur yfir húsnæðinu. Ef við leitum nógu vel þá er eflaust einhver smá mygla í öllum húsum. Spurningin er hvort hún er nógu mikil til þess að einhver finni fyrir áhrifum hennar,“ sagði Sylgja Dögg. Hún sagði að fólk væri misjafn- lega næmt fyrir áhrifum myglunnar og sumir gætu orðið mjög veikir ef myglusveppur væri í húsnæði þar sem þeir dvelja. Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunin (WHO) hefur ekki enn sett viðmið um hve mikil mygla er ásættanleg því fólk er svo mis- jafnlega viðkvæmt. Í leiðarvísi frá WHO er mælt með því að fjarlægja myglu úr húsnæðinu og að koma í veg fyrir að hún geti vaxið. Oft afleiðing lélegs viðhalds Sylgja Dögg sagði að myglan yrði ekki til nema eitthvað væri að hús- næðinu. Venjulega er hún afleiðing af slæmu viðhaldi, leka eða athöfn- um íbúa. Það er t.d. mikilvægt að lofta vel út. Myglusveppur er al- gengt vandamál í byggingum þar sem viðhaldi hefur verið ábótavant. Hann getur einnig náð sér á strik í nýlegum húsum vegna hönn- unargalla eða þar sem mistök hafa verið gerð við smíðina. „Það má búast við myglu þar sem raki er eða hefur verið,“ sagði Sylgja Dögg. Myglan getur verið í gólf- efnum, inni í veggjum og víðar. Myglugró eru alls staðar. Þau lokast inni í veggjum, þökum og undir gólf- efnum á byggingartíma húsa. Þar bíða gróin og ef þau fá vatn þá er yf- irleitt nóg æti til staðar til þess að upp vaxi myglusveppur. Sveppurinn nærist á lífrænum efnum og af þeim er nóg í húsum. Hvort sem er í timbri, flísalími, dúkalími, striga undir línóleum-dúkum, undirlagi undir parketi, pappa á gifsplötum og fleiru. Myglunni verður ekki útrýmt en það er hægt að koma í veg fyrir hana innandyra með góðu viðhaldi og réttri umgengni. Þar skiptir fræðsla og þekking mestu máli. Mygla í fjöleignahúsum Í fjöleignahúsum skiptir máli hvort rakinn kemur utan frá, þannig að rekja megi hann til sameign- arinnar. Þá getur tjónið mögulega verið á ábyrgð húsfélagsins sem þarf þá að gera við skemmdirnar og fjar- lægja mygluna. Ef lekinn verður inni í íbúðinni, t.d. út frá sturtunni, er það á ábyrgð eiganda íbúðarinnar að laga skemmdirnar. „Við erum stundum fengin til að taka út heilu sameignirnar fyrir hús- félög. T.d. ef mygla hefur komið upp í tveimur íbúðum. Við erum þá feng- in til að skoða allar íbúðirnar í for- varnaskyni,“ sagði Sylgja Dögg. Þar sem Hús & heilsa hefur komið að málum hafa íbúðareigendur venju- lega getað samið við húsfélagið um að taka þátt í kostnaði við viðgerðir vegna myglusvepps stafi myglan af leka í sameigninni. Sylgja Dögg kvaðst hafa heyrt af leiðindum, rifr- ildum og lögfræðideilum íbúðareig- enda vegna slíkra mála og einhver mál vegna myglu hafi farið fyrir dómstóla. Lög um fjöleignahús gilda um sameign og hvað heyrir undir hana. Fólk meðvitaðra en áður En er myglusveppur að breiðast út eða er fólk orðið meðvitaðra um hann? „Ég held að fólk sé meira með- vitað en það var. Ég hef unnið við það í átta ár að auka vitund og þekk- ingu á þessum málaflokki. Kannski finnum við svolítið fyrir því nú að viðhald húsa hefur verið svelt. Fólk er að súpa seyðið af því að hafa spar- að viðhald kannski í 5-10 ár,“ sagði Sylgja Dögg. Það tekur ekki nema tvo daga fyr- ir myglugró að verða að myglu- sveppi við kjöraðstæður. Sylgja Dögg sagði það skipta máli hvort lekinn sem um ræðir væri einstakt tilfelli, ef til vill í einu óveðri, eða hvort það lekur að staðaldri. Það getur ráðið því hvort myglusvepp- urinn vex. Lekið getur inn í vegg, þak eða undir gólfefni árum saman án þess að fólk taki eftir því. Rannsóknir sýna að þurr mygla hefur jafn heilsuspillandi áhrif og rök og virk mygla. Það er því ekki nóg að stoppa lekann heldur verður yfirleitt að fara í frekari aðgerðir til þess að minnka möguleg heilsuspillandi áhrif. Óttast að mygla lækki íbúðaverðið  Algengt að fasteignaeigendur vilji ekki að sagt sé frá því ef myglusveppur finnst í húsum þeirra  Óþarft að óttast myglusvepp ef rétt er brugðist við  Ástæða svepps er oft lélegt viðhald húsnæðis Ljósmynd/Hús & heilsa Myglusveppur Algeng ástæða þess að myglusveppur nær sér á strik er lélegt viðhald húsnæðis. Sveppagróin liggja í dvala og vakna til lífsins þegar þau fá nægan raka. Sveppurinn lifir á lífrænum efnum sem nóg er af í húsum. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Greina má ákveðið mynstur í út- breiðslu myglusvepps eftir byggingarlagi og jafnvel aldri húsa, að sögn Sylgju Daggar Sigurjónsdóttur, fram- kvæmdastjóra Húss & heilsu. Hún lagði áherslu á að finna mætti góð og þurr hús af öllum gerðum og frá öllum tímum byggingarsögunnar. Hvað áhrif byggingarlags varðar sagði Sylgja Dögg að- spurð að einhver ástæða væri fyrir því að búið er að lyfta þök- um á húsum í heilu hverfunum þar sem áður voru flöt þök. „Ef þú ert með flatt þak sem er vel unnið og lekur ekki, þá er allt í lagi með það. En flatt þak sem lekur er vandamál eins og önnur lek þök,“ sagði Sylgja Dögg. Þaklekinn skapar vanda ÁKVEÐIÐ MYNSTUR Í ÚT- BREIÐSLU MYGLUSVEPPS Opið til miðnættis í kvöld 20% afsláttur af öllum vörum Kringlunni 4c Sími 568 4900
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.