Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Orkey ehf. á Akureyri hlýtur viður-
kenningu Morgunblaðsins, Vitann
2014, á Norðurlandi. Fyrirtækið
vinnur lífdísil úr úrgangi og nýtir
sem bætiefni í eldsneyti. Einnig
vinnur það umhverfisvænt íblönd-
unarefni sem notað er í vegklæðn-
ingu. Starfsemin sparar urðunar-
gjald og erlendan gjaldeyri.
Nánast öll framleiðsla Orkeyjar
er nú keypt af útgerðarfélaginu
Samherja og notuð sem bætiefni í
eldsneyti fiskiskipa félagsins. Or-
key getur ekki framleitt meira
nema verksmiðjan verði stækkuð.
Úrgangurinn sem Orkey vinnur
með er einkum steikingarolía og
dýrafita. Með því að nýta þetta til
framleiðslu á lífdísil spara veitinga-
hús og mötuneyti urðunargjald á
tugum tonna á ári. Við úrvinnsluna
verður til bætiefni í eldsneyti sem
dregur úr mengun, fer betur með
vélar og sparar eldsneyti.
Orkey hóf starfsemi fyrir fjórum
árum. Verksmiðja fyrirtækisins var
hin fyrsta sinnar tegundar hér á
landi. Hugmyndin var upphaflega
að framleiða bætiefni fyrir dísil-
knúna bíla á Akureyri. Tilraunir
voru gerðar með notkun framleiðsl-
unnar á strætisvagn í bænum og
gafst það vel. Þróunin hefur hins
vegar orðið sú að nær öll fram-
leiðsla Orkeyjar, um 300 þúsund
lítrar á ári, fer til Samherja. Olíufé-
lögin flytja hins vegar inn íblönd-
unarefni þar sem innlend fram-
leiðsla er engan veginn full-
nægjandi til að anna eftirspurninni.
Önnur efni en úrgangurinn sem
Orkey notar eru af endurnýjan-
legum uppruna; metanól frá CRI
og heitt vatn og rafmagn frá Norð-
urorku. Má því segja að starsfemin
sé eins umhverfisvæn og mögulegt
er.
Fyrirtækið hefur samið við Efna-
móttökuna og Gámaþjónustuna um
söfnun notaðrar steikningarolíu um
land allt. Viðskiptavinum er útveg-
að geymsluílát þar sem úrgang-
urinn er geymdur, ílátin síðan
tæmd reglulega eftir óskum hvers
og eins. Þetta skipulag hefur auð-
veldað mjög aðgengi Orkeyjar að
hráefni.
Nokkrar breytingar hafa orðið á
hluthafahópi Orkeyjar frá því að
fyrirtækið var stofnað. Nú standa
að því sex aðilar, Mannvit, Sam-
herji, Norðurorka, Tækifæri, N1 og
Víkey. gudmundur@mbl.is
Úrgangur að bætiefni í eldsneyti
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Verksmiðjan Eldsneytið sem framleitt er rennur úr slöngu ofan í tank
Samherji kaupir framleiðsluna fyrir fiskiskipin Þurfa stærri verksmiðju til að framleiða meira
Grímur kokkur í Vestmannaeyjum
hlýtur viðurkenningu Morgun-
blaðsins, Vitann 2014, á Suður-
landi. Fyrirtækið framleiðir til-
búna rétti sem seldir eru um land
allt. Það hefur aukið verðmæti
sjávaraflans í sinni heimabyggð og
skapað 20 störf.
Grímur kokkur hefur vaxið á
hverju ári frá því starfsemin hófst.
Stofnandanum, Vestmanna-
eyingnum Grími Þór Gíslasyni
matreiðslumeistara, hafði lengi
blöskrað hve stór hluti af hráefn-
inu í þessari stærstu verstöð lands-
ins var fluttur út óunninn. Honum
fannst að það ætti að gera úr því
verðmætari vöru. Úr varð að hann
stofnaði í félagi við konu sína og
bræður fyrirtækið Grím kokk sem
í núverandi mynd hefur starfað í
áratug og framleitt tilbúna rétti
sem seldir eru í matvörubúðum um
land allt og njóta mikilla vinsælda.
Vörurnar eru sendar frá Eyjum
til Reykjavíkur tvisvar á dag og
sjá tveir sölumenn sem staðsettir
eru í höfuðborginni um að koma
þeim í búðir. Í Eyjum eru starfs-
menn átján að tölu. Starfsemin
skiptir miklu máli fyrir plássið. Í
hlutfalli við íbúafjöldann þar er
Grímur kokkur eins og mörg
hundruð manna vinnustaður í
Reykjavík.
Réttirnir sem Grímur kokkur
framleiðir eru um þrjátíu talsins.
Pakkningarnar eru af ýmsum
stærðum og því fleiri. Auk fisk-
rétta eins og fiskibolla, fiskistanga,
fiskibuffs, plokkfisks og ýsurúllu
með fyllingu, er humarsúpa á boð-
stólum. Einnig nokkrar tegundir
af grænmetisréttum svo sem
gulrótarbuff og grænmetisbollur.
Meðal stórra viðskiptavina
Gríms kokks er Reykjavíkurborg
sem kaupir rétti hans fyrir mötu-
neyti sín.
Fyrir hálfu öðru ári flutti Grím-
ur kokkur í núverandi húsnæði
sem er tæpir ellefu hundrað fer-
metrar að stærð. Þar er nýtísku-
legur og fullkominn fram-
leiðslubúnaður, að hluta til
innfluttur og að hluta til smíðaður
í Eyjum. gudmundur@mbl.is
Vildi nýta hráefnið betur
Ljósmynd/Grímur kokkur.
Frumherjinn Grímur Þór Gíslason
stofnaði fyrirtækið Grím kokk.
Framleiðir þrjátíu tilbúna rétti í mörgum stærðum
Hugmynd sem endaði í hillum allra stórmarkaðanna
Lunga skólinn á Seyðisfirði hlýtur
viðurkenningu Morgunblaðsins, Vit-
ann 2014, á Austurlandi. Um er að
ræða einkarekinn lýðháskóla með
áherslu á listir, sköpun og mann-
rækt og sérstöðu hvers einstaklings.
Í honum eru ellefu nemendur, ís-
lenskir og erlendir, sem allir greiða
skólagjöld. Kennarar eru þrír auk
stundakennara. Þetta er um 20
manna samfélag í allt.
Lunga skólinn hóf reglulega starf-
semi í haust eftir tilraunakennslu
með átján nemendum síðastliðið vor.
Kennslutímabilið á haustönn er tólf
vikur.
Hugmyndin að skólanum spratt
upp úr samnefndri listahátíð ungs
fólks á Seyðisfirði. Sú hátíð hefur frá
árinu 2000 dregið þúsundir gesta til
bæjarins á hverju sumri.
Skólagjöldin stoppa ekki
Lunga er lýðháskóli með áherslu á
listir, sköpun og manrækt og sér-
stöðu hvers einstaklings. Innblástur
er sóttur til KaosPilot-háskólans í
Danmörku. Í skólanum er farið
djúpt í tilfinningar og upplifanir
nemenda. Frjór jarðvegur hefur
reynst fyrir þau vinnubrögð.
Skólinn er ekki ókeypis. Hver önn
kostar rúmlega hálfa milljón króna.
Verða nemendur að greiða skóla-
gjöldin úr eigin vasa því skólin er
ekki lánshæfur í opinbera kerfinu.
Boðið er upp á greiðsludreifingu og
nemendur hafa fram að þessu getað
klofið að greiða gjaldið. Innifalið er
gisting á staðnum allan námstímann.
Kennsla í Lunga skólanum fer
fram á ensku. Húsnæði skólans er í
félagsheimilinu Herðubreið, en gist
er í gamla spítalanum sem nýlega
hefur verið endurbyggður.
Lunga skólinn hefur notið styrkja
frá menntamálaráðuneytinu og hef-
ur það gert honum kleift að komast
yfir erfiðasta hjallann í upphafi. For-
svarsmenn skólans hafa áhuga á því
að starfsemin fái lagaumgjörð og
hann njóti stuðnings eins og hver og
önnur menntastofnun.
Helmingur nemenda í Lunga
skólanum á haustönn er Íslendingar.
Aðrir nemendur koma frá Ítalíu,
Bandaríkjunum og fleiri löndum.
Föstu kennararnir eru þrír, en fjöldi
stundakennara kemur að skólanum,
m.a. frá útlöndum. Skólanum hefur
verið styrkur að því að nokkrir
þekktir einstaklingar hafa tekið sæti
í stjórn. Þar má nefna Margréti Pálu
Ólafsdóttur skólastjóra, Guðmund
Odd, prófessor við Listaháskólann,
og Ólaf Stefánsson handknattleiks-
mann.
Samfélagið í kringum skólann set-
ur nokkurn svip á bæjarbraginn á
Seyðisfirði, eflir mannlífið þar og
færir staðnum tekjur og atvinnu.
gudmundur@mbl.is
Áhersla á sköpun
og mannrækt
Lunga skólinn óx upp úr listahátíð
Eflir mannlífið á Seyðisfirði
Lunga skólinn Fyrsta önn skólans í vor var fjölsótt. Voru nemendur 18.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
2014
Frábært tilboðsver
ð,
aðeins 10.990.000 kr.
20” álfelgur, loftpúðafjöðrun, lyklalaust aðgengi og ræsing.
Rafmagnshleri, Xenon og led ljós, panorama, Nappa leðursæti
með hita og kælingu, hiti í stýri, fjarlægðaskynjarar að framan
og aftan. Alpine hljómkerfi með 8,4” snertiskjá, 40 GB hörðum
disk, Bluetooth fyrir símann og tónlistina í símanum þínum.
Bakkmyndavél, 8 gíra, sjálfskiptur, mjög fullkomið fjórhjóladrif
með lágu drifi. V6, 3.6, 290 hö með eyðslu aðeins 10,4 í
blönduðum akstri og 8,2 í langkeyrslu, Rosalega flottir og
vel búnir bílar.
17” álfelgur, lyklalaust aðgengi og ræsing. Rafmagnshleri,
rafdrifnar afturhurðar, 7 manna. Glertopplúga, leðursæti með
hita, hiti í stýri, fjarlægðaskynjarar að aftan. Stow’n go, Xenon,
Alpine hljómkerfi með 7” snertiskjá, 40 GB hörðum disk, Blue-
tooth fyrir símann og tónlistina í símanum þínum. Bakkmynda-
vél, Blue Ray DVD spilari með 2 skjám afturí og aukatengi
möguleikum, HDMI, USB o.fl. V6, 3.6, 290 hö með eyðslu
aðeins 11,8 í blönduðum akstri og 9,4 á langkeyrslu, 6 gíra
sjálfskiptur. Rosalega flottir, vel búnir og mjög rúmgóðir bílar.
Jeep Grand Cherokee
Overland 2014
Chrysler Town
& Country Limited 2014
Við sérpöntumallar gerðirbíla frá USA
og Evrópu
Bestu lúxus
jeppakaupin
í dag
Hin fullkomni
fjölskyldubíll með
öllum lúxus
Frábært tilboðsver
ð,
aðeins 7.990.000 kr.
Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - Fax 534 4430 - isband@isband.is - www.isband.is
Opið alla virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga frá kl. 11-15
Komdu til okkar og skoðaðu
stk . e f t i r
1 stk . e f t i r2