Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 64

Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 64
64 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Repúblikanar náðu meirihluta í öld- ungadeild Bandaríkjaþings í fyrsta skipti frá árinu 2006 og juku meiri- hluta sinn í fulltrúadeildinni í kosn- ingunum í fyrradag, auk þess sem þeir báru sigurorð af demókrötum í ríkisstjórakosningum. Sigur repú- blikana var stærri en margir höfðu búist við og er einkum rakinn til óánægju meðal kjósenda með stefnu Baracks Obama forseta, vel skipu- lagðrar kosningabaráttu repúblik- ana og meiri einingar í þeirra röðum en í síðustu kosningum. Repúblikanar náðu að minnsta kosti sjö sætum í öldungadeildinni af demókrötum; í Arkansas, Colo- rado, Iowa, Montana, Norður- Karólínu, Suður-Dakóta og Vestur- Virginíu. Flokkurinn fékk a.m.k. 52 sæti af 100 í deildinni, en úrslit lágu ekki enn fyrir í tveimur ríkjum, Virginíu og Alaska og kjósa þarf aft- ur í Louisiana þar sem munurinn á fylgi frambjóðenda var mjög lítill. Óvæntasti sigur þeirra var í Norður-Karólínu þar sem repúblik- aninn Thom Tillis vann upp forskot og náði þingsæti af Kay Hagan, öldungadeildarmanni úr röðum demókrata. Repúblikanar náðu þingsætum af a.m.k. þremur sitj- andi öldungadeildarmönnum demó- krata og það hafði ekki gerst frá árinu 1980. Repúblikanar hafa verið með meirihluta í fulltrúadeildinni frá árinu 2010 og bættu við sig a.m.k. tíu þingsætum þar. Úrslit lágu ekki fyrir í öllum kjördæmum í gær en talið var að flokkurinn myndi bæta við sig 14-18 sætum. Fái hann 246 sæti, tólf sætum meira en síðast, er það mesti meirihluti sem repúblik- anar hafa fengið í fulltrúadeildinni frá 1946. Ríkisstjórar úr röðum repúblik- ana náðu endurkjöri í ríkisstjóra- kosningum í Flórída, Wisconsin og Kansas og náðu ríkisstjóraemb- ættum af demókrötum í Maryland og Massachusetts. Búist hafði verið við því að repú- blikanar myndu eiga undir högg að sækja í kosningunum, m.a. vegna „sex ára fiðringsins“, þ.e. þeirrar sögulegu staðreyndar að ef forseti nær endurkjöri fylgir sá böggull skammrifi að flokkur hans missir oft sæti á þinginu sex árum eftir að for- setinn tekur við embætti, þ.e. á miðju síðara kjörtímabili hans. Frá forsetatíð Ronalds Reagans á árunum 1981-89 hefur flokkur allra endurkjörinna forseta verið í minni- hluta á þinginu í lok síðara kjör- tímabils þeirra. Staða Obama nú er því alls ekki einsdæmi. Sigur repúblikana í kosningunum nú er þó mun meiri en búist var við. Þeir sigruðu örugglega í kosningum þar sem talið var að mjótt yrði á munum og höfðu nauman sigur í kjördæmum þar sem talið var að demókratar væru sterkari. Lítið fór fyrir teboðinu Fréttaskýrandi The New York Times segir að ósigur demókrata nú jafnist á við ósigur repúblikana 1974, árið sem Richard Nixon sagði af sér sem forseti, og ósigur demó- krata 1994 í forsetatíð Bills Clin- tons. Óvinsældir Obama hljóti að teljast mikil umskipti í ljósi þess að þegar hann var endurkjörinn fyrir tveimur árum varð hann fyrsti demókrat- inn í meira en hálfa öld – eða frá Frankl- Sigurinn rakinn til óvinsælda Obama og einingar repúblikana  Repúblikanar fengu meirihluta í báðum þingdeildum og meira fylgi en þeim var spáð AFP Nýr meirihlutaleiðtogi Repúblikaninn og öldungadeildarmaðurinn Mitch McConnell fagnar endurkjöri sínu í Ken- tucky. Hann hefur átt sæti í öldungadeildinni í 30 ár og verður leiðtogi meirihluta hennar eftir sigur repúblikana. Yfir 100 konur í fulltrúadeildinni » Mitch McConnell, sem hefur farið fyrir repúblikönum í öld- ungadeildinni, náði endurkjöri í Kentucky og verður leiðtogi meirihlutans í deildinni. » „Þessi tilraun í miklum ríkis- umsvifum hefur staðið nógu lengi. Það er kominn tími til að fara í aðra átt,“ sagði McConn- ell eftir sigur repúblikana í þingkosningunum. Hann hvatti þó til samstarfs milli repúblik- ana og demókrata. » Samkvæmt nýjustu tölum í gær var líklegt að konur fengju meira en 100 sæti í full- trúadeildinni í fyrsta skipti í sögunni. Alls eiga 435 þing- menn sæti í deildinni. Repú- blikaninn Joni Ernst varð fyrsta konan til að verða kjörin í öldungadeildina fyrir Iowa- ríki. Í kosningunum í Bandaríkjunum í fyrradag var kosið um fleira en þing- sæti og ríkisstjóraembætti. Í 41 ríki var kosið um 147 mál, svo sem rétt- indi fóstra í móðurkviði, lögleiðingu marijúana og skotvopnalög. Tillögum um réttindi fóstra hafnað Í Norður-Dakóta höfnuðu kjós- endur því að bæta við ákvæði í stjórnarskrá ríkisins þar sem öllum manneskjum á öllum þroskastigum yrði tryggður rétturinn til lífs. Í Colorado var meirihluti á móti því að útvíkka skilgreininguna á hugtök- unum „manneskja“ og „barn“ í refsi- löggjöfinni þannig að þau næðu líka til fóstra. Hefðu tillögurnar verið samþykktar hefði það haft í för með sér mikil og ófyrirsjáanleg áhrif á rétt kvenna til að stjórna eigin lík- ama. Kjósendur í Tennessee sam- þykktu hins vegar Viðauka 1, þar sem segir að stjórnarskrá ríkisins tryggi ekki rétt kvenna til fóstur- eyðinga né fjármögnun fóstureyð- inga. Mega eiga marijúana í neysluskömmtum Í Oregon og Washington D.C. reyndist meirihluti fyrir því að lög- leiða marijúana, að því marki að fólk má eiga það í neysluskömmtum. Í Washington mega einstaklingar jafnframt rækta allt að sex mari- júanaplöntur til eigin nota. Tillagan var samþykkt með 65% atkvæða gegn 28% í Washington D.C. og 54% gegn 46% í Oregon. Kjósendur í Flórída höfnuðu hins vegar að lögleiða marijúana í læknis- fræðilegum tilgangi. Byssueign grundvallarréttur Kjósendur í Washington sam- þykktu jafnframt bakgrunnsathug- anir í öllum tilfellum byssukaupa. 18 mánuðir eru liðnir frá því að þingið hafnaði alríkislöggjöf um bak- grunnsathuganir, jafnvel þótt hún nyti stuðnings um 90% þjóðarinnar á þeim tíma. Byssur voru einnig á kjörseðl- inum í Alabama, þar sem kjósendur samþykktu viðauka þar sem byssu- eign er sögð grundvallarréttur hvers borgara. holmfridur@mbl.is Meirihluti fyrir því að leyfa marijúana í tveimur ríkjum AFP Barátta Stuðningsmenn þess að fólki verði leyft að eiga marijúana í neyslu- skömmtum tala við kjósanda fyrir utan kjörstað í höfuðborginni Washington.  Kosið um réttindi fóstra, skotvopnalög og fleiri mál Demókratar höfðu einkum bundið vonir við gott gengi í ríkjum á borð við Colorado, Iowa og New Hamp- shire þar sem lítill munur hefur verið á fylgi flokkanna tveggja, en góð útkoma repúblikana þar þykir góðs viti fyrir þá í næstu kosn- ingum þegar forseti Bandaríkj- anna verður kjörinn. Segja má að baráttan um Hvíta húsið sé hafin nú þegar þingkosn- ingunum er lokið. Öll líklegustu forsetaefnin hafa gert víðreist um Bandaríkin síðustu mánuði til að undirbúa baráttuna og einkum ferðast til þeirra ríkja sem ráða oftast úrslitum í forsetakosn- ingum vestra. Repúblikaninn Chris Christie, ríkisstjóri New Jersey, hefur verið víðförulastur allra líklegustu for- setaefnanna. Hann hefur farið til alls 37 sambandsríkja síðustu 70 daga og heimsótt lykilríkið Iowa fjórum sinnum í ár. Iowa, New Hampshire og Norður-Karólína eru á meðal þeirra ríkja sem efna fyrst til forkosninga þar sem forseta- efni repúblikana og demókrata eru valin. Forsetaefnin leggja því mikið kapp á að auka fylgi sitt þar í byrj- un kosningabaráttunnar. Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra og forsetafrú, telst líklegust til að verða forseta- efni demókrata. Hún hefur ferðast til sextán ríkja síðustu vikurnar. Meðal annarra sem eru taldir líklegir til að sækj- ast eftir forsetaembætt- inu eru demókratinn Martin O’Malley, ríkis- stjóri Maryland, og repú- blikanarnir Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður frá Texas, og Rand Paul, öldungadeildarmaður frá Kentucky. Forsetaefni á ferð og flugi BARÁTTAN UM FORSETAEMBÆTTIÐ HAFIN Chris Christie in D. Roosevelt – til að fá meirihluta greiddra atkvæða í tvennum for- setakosningum. Auk óánægju margra kjósenda með stefnu Obama er ósigur demó- krata m.a. rakinn til þess að þeim tókst ekki að tryggja mikla kjörsókn í kjósendahópum sem studdu forset- ann, einkum meðal ungs fólks, kvenna, blökkumanna og fleiri minnihlutahópa. Úrslit kosninganna eru einnig rakin til vel skipulagðrar kosninga- baráttu repúblikana sem höfðu dregið lærdóma af ósigrum flokks- ins í kosningunum 2010 og 2012 þegar átök á milli ráðandi afla í flokknum og teboðshreyfingarinnar svonefndu sköðuðu flokkinn og tor- velduðu honum að fá atkvæði óháðra kjósenda á miðjunni. Margir teboðsmenn voru þá í framboði fyrir repúblikana og höfðu litla eða enga möguleika á að sigra í kosningunum. Repúblikanar höfðu einfalda áætlun í kosningabaráttunni og hún fólst fyrst og fremst í því að láta hana snúast um Obama og forðast hvers konar mistök, svo sem um- deildar yfirlýsingar sem eru líklegar til að fæla óháða kjósendur á miðj- unni frá flokknum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.