Morgunblaðið - 06.11.2014, Side 67
FRÉTTIR 67Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Nokkrir vogunarsjóðir í Bandaríkj-
unum hafa að sögn dagblaðsins
Wall Street Journal hagnast vel á
stöðutöku með lækkun olíuverðs.
Segir þar að starfsmenn vog-
unarsjóða hafi komist á þá skoðun
að ekki væri raunhæft að tunnan af
olíunni kostaði meira en 100 banda-
ríkjadali og vísuðu í því efni til lítils
hagvaxtar í heiminum. Þá var á það
bent að framleiðsla væri að aukast í
Líbíu, Írak og Bandaríkjunum.
Hins vegar segir blaðið að fáir sér-
fræðingar á olíumarkaði hafi spáð
því að olíuverðið myndi lækka um
27% frá því í júní í sumar.
Lægsta verð síðan 2010
Á vef Financial Times sagði að
tunnan af Norðursjávarolíu hefði
farið niður í 82,11 dali í gær og er
það lægsta verðið frá því í nóv-
ember 2010. Þá kom þar fram að
það ætti þátt í verðlækkunum í
Bandaríkjunum að Sádi-Arabar
hefðu lækkað verðið á olíu sem þeir
selja til Bandaríkjanna.
Græða
á lækkun
olíuverðs
Vogunarsjóðir
veðjuðu á verðfall
AFP
Í Pennsylvaníu Þessi olíuhreins-
unarstöð afkastar 33.000 t./d.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ferðamenn sem ferðuðust til annars
lands, og dvöldu þar að minnsta kosti
næturlangt, voru 36 milljónum fleiri
á fyrstu átta mánuðum ársins en í
fyrra og voru alls 781 milljón.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Alþjóðaferðamálastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, UNWTO.
Segir þar að vöxturinn hafi verið
5% sem sé talsvert yfir spá um 3,8%
vöxt á árunum 2010 til 2020. Fram
kemur að vöxturinn hafi verið 4% í
júní, júlí og ágúst en það er sagður
háannatími í ferðaþjónustunni.
Hægari vöxtur í Evrópu
Aukningin er sundurgreind eftir
heimssvæðum. Vöxturinn er mestur
í Norður-, Mið- og Suður-Ameríku,
eða 8%. Hann er hins vegar helmingi
minni í Evrópu, eða 4%.
Þá var vöxturinn yfir 5% í Asíu og
á Kyrrahafssvæðinu, sem svo er
nefnt, og 8% í Suður-Asíu. Þá fjölg-
aði ferðamönnum samkvæmt þessari
skilgreiningu um 9% í Norður-Am-
eríku og um 7% í S- og N-Evrópu, í
ríkjum Evrópu við Miðjarðarhafið,
Norðaustur-Asíu og S-Ameríku.
Taleb Rifa, framkvæmdastjóri
UNWTO, segir að á þessu stigi sé
ekki búist við meiriháttar áhrifum af
útbreiðslu Ebólu-veirunnar á vöxt
ferðaþjónustunnar. Sé vöxtur í ein-
stökum ríkjum skoðaður var hann
mestur í Kína, eða 16%.
Ferðaþjónusta í fluggír
AFP
Í Virginíu Flugvél tekur á loft á Ronald Reagan-flugvellinum í Arlington.
Alls 781 milljón ferðamanna á fyrstu átta mánuðum ársins
Lögreglan í Fort
Lauderdale, á
Flórída, handtók
þrjá menn sem
voru að gefa
heimilislausu
fólki að borða.
Mennirnir þrír,
tveir prestar og
níræður maður
að nafni Arnold
Abbott, voru
teknir höndum eftir að ný lög tóku
gildi sem banna einstaklingum að
bjóða almenningi upp á mat.
Abbott hefur ákveðið að kæra
borgaryfirvöld í Fort Lauderdale en
hann hefur undanfarna tvo áratugi
beitt sér í þágu heimilislausra, meðal
annars með matargjöfum.
Málið á sér þá forsögu að árið
1999 var Abbott handtekinn á
ströndinni við Fort Lauderdale fyrir
sama athæfi. Hann fór þá í mál við
borgaryfirvöld og hafði sigur, að
sögn fréttavefjar Local.
Handtekinn
fyrir að gefa
fólki að borða
Arnold
Abbott