Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 73
UMRÆÐAN 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Umræðan um rík-
isreknu fjölmiðlana hef-
ur hreyft nokkuð við
mér að undanförnu. Tal
um að hola þessar
stofnanir að innan, selja
eða leggja niður kemur
ekki á óvart þegar
grjóthörð hægri stjórn
fer með völd og því
brýnt að „gáfnaljós á
vinstri vængnum“ láti
nú að sér kveða. Svo ég
ræði um það sem snýr að mínu sér-
sviði, dægurtónlistinni, er ljóst að
Sjónvarpið, Rás 1 og Rás 2 vinna öll
sérstaklega mikilvægt starf hvað
varðar þá eðlu list í íslensku tilliti,
hvort sem er í formi kynningar, varð-
veislu eða almennrar næringar og
uppbyggingar.
Popp er menning
Ummæli Karls Garðarssonar al-
þingismanns um Rás 2 í síðasta mán-
uði (2. október í DV) lýsa þess vegna
ævintýralegri skammsýni en ég er
hræddur um að fleiri – þótt ótrúlegt
sé – taki í svipaðan streng. „Hvort
skiptir okkur meira máli að hlusta á
dægurtónlist á Rás 2 eða bjarga
mannslífum?“ spurði Karl en var þó á
því að menning væri nauðsynleg (?).
Dægurtónlistinni væri
hins vegar ágætlega
sinnt af einkaaðilum og
„það sama gildir um
ameríska sápuóperu og
annað slíkt“. Útgangs-
punkturinn er þessi:
popp er ekki menning
heldur merking-
arsnautt drasl sem hef-
ur lítið að segja. Nú er
skilningur á því að popp
sé vissulega menning
hins vegar orðinn giska
almennur og velferð-
arrannsóknir sýna að
öflugt tónlistarlíf, hvort heldur í
gegnum tónlistarnám, bílskúra, út-
varpssenda eða afspilunarform ým-
iskonar stuðlar að góðri lýðheilsu.
Fjárhagslega veltir íslenski dæg-
urtónlistarbransinn þá miklum fjár-
hæðum og ég þarf ekki að fjölyrða um
afrek landans á því sviðinu á erlendri
grundu, árangur sem heldur áfram
að ýta undir mikinn og lifandi áhuga á
öllu því sem íslenskt er (sem skilar
sér svo í beinhörðum peningum í rík-
iskassann í gjaldeyristekjum o.s.frv.).
Þetta hef ég t.d. orðið verulega var
við í fræðasamfélaginu hér úti í Ed-
inborg. Dægurtónlistin okkar, eins og
staðan er í dag, er gulls ígildi. Það er
merkilegt hvað þessi einfalda heild-
armynd flækist fyrir ráðamönnum
landsins og það sýknt og heilagt. Við-
líka staðreyndir blasa hins vegar við
stjórnvöldum hér í Bretlandi og það
þó að einkavæðingin standi þeim tölu-
vert nær en fyrri ríkisstjórnum.
Menn gera sér þrátt fyrir það skýra
grein fyrir hlutverki BBC, vissulega
eru hártoganir um stefnu og slíkt en
almenn samstaða ríkir um grunninn.
Alltaf gróði
Ríkismiðlar geta nefnilega leyft
sér, eðlis síns vegna, að hlúa að hlut-
um sem hafa gildi í sjálfum sér, gildi
sem rúmast ekki svo auðveldlega í ex-
cel-skjali. Gróðinn af því starfi –
heilsufarslegur, fjárhagslegur, menn-
ingarlegur – sýnir sig þó alltaf á end-
anum en einungis, og þetta er mik-
ilvægt, ef fólki er veitt það sjálfsagða
svigrúm að sinna því starfi af sóma.
Það þarf því ekki ýkja mikið hyggju-
vit til að sjá að þegar allt kemur til
alls þá bjargar popp mannslífum.
Popp bjargar mannslífum
Eftir Arnar Eggert
Thoroddsen » Sjónvarpið, Rás 1 ogRás 2 vinna öll sér-
staklega mikilvægt starf
hvað varðar þá eðlu list í
íslensku tilliti
Arnar Eggert
Thoroddsen
Höfundur er doktorsnemi í tónlist-
arfræðum við Edinborgarháskóla og
tónlistarblaðamaður.
Ég ferðast til og frá vinnu í
höfuðborginni, ýmist á bíl
eða á reiðhjóli. Það sem
hræðir mig hvað mest í
skammdeginu eru ljóslausir
hjólamenn og gangandi veg-
farendur án endurskins. Ég
trúi varla mínum eigin aug-
um hvað margir hjólamenn
eru þarna úti án nokkurrar
ljóstíru. Sumir eru jafnvel
með hjálm og í endurskins-
vesti en engin ljós, hvorki
að framan né aftan. Flestir
eru alveg svartklæddir og
ekki mögulegt að greina þá
í myrkrinu. Gangandi koma
úr bílunum sínum og yfir
fjölfarnar götur eða afar
fjölfarin bílastæði og það er
ekki nokkur leið að sjá við-
komandi í svartamyrkri,
rigning á rúðunni og jafnvel
engin götulýsing. Ég vona á
hverjum degi að ég lendi
ekki í þeirri ógæfu að keyra
á hjólamann eða gangandi
vegfaranda, sem mér er ill-
mögulegt að greina í
myrkrinu. Munum eftir
ljósum á hjólin okkar og
endurskinsmerki á yfirhafn-
ir.
Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Ljós í myrkri
Endurskinsvesti Þessir skokkarar sjást vel.
70%
30%
20%50% 60%
60%
40%
Allt að
70%
afsláttur
Leikföng
Mikið úrval af
jólagjöfum Jólasveinar
velkomnir
6.-16. nóvember
Lagersala
Gylfaflöt 7
112 Reykjavík
587 8700
Opnunartími:
Virka daga 10:00-20:00,
helgar 10:00-18:00 www.krumma.is