Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 74

Morgunblaðið - 06.11.2014, Qupperneq 74
NÁMerlendis Unnið í samvinnu við SÍNE Guðrún Guðlaugsdóttir gudrunsg@gmail.com Síne er rúmlega fimmtíu áragamalt félag, opið öllumþeim sem stunda nám sitterlendis og reiðir sig að all- mestu leyti á félagsgjöld til að standa undir rekstri sínum,“ segir Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leik- ari og formaður SÍNE. „Okkar markmið á þessu ári er að fjölga félagsmönnum og virkja þá enn frekar í starfinu. Tilgangur fé- lagsins er að vera í forsvari fyrir námsmenn erlendis og standa vörð um þeirra hag.“ Hvernig standa málefni stúdenta erlendis núna? „Segja má að LÍN hafi á vissan hátt sett tóninn síðastliðið vor, þegar lækkuð var grunnframfærsla stúd- enta erlendis um nokkur prósent – eftir svæðum þó hve mikið. Þetta var gert án þess að vinna hefði verið lögð í útreikinga á framfærslu stúdenta erlendis. Við hjá SÍNE bindum miklar von- ir við vinnuna framundan hjá LÍN. Þar er nú verið að reikna út fram- færsluþörf stúdenta erlendis eftir svæðum. Verið er að búa til að- ferðafræði til að reikna þetta út. Við vonum að vandað verði til þessa verks og niðurstaðan verði að hægt sé að framfleyta sér við nám erlendis – og að sú vinna verði gagnsæ.“ Veistu til að stúdentar erlendis hafi þurft að hætta námi vegna námslánalækkunar? „Já, við höfum fengið inn á skrif- stofu SÍNE mörg skeyti frá náms- mönnum erlendis, þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum og þá sérstaklega frá þeim sem lentu hvað verst í niður- skurðinum síðastliðið vor. SÍNE á fulltrúa í stjórn LÍN, en fulltrúar stjórnvalda eru hinsvegar í meiri- hluta. Við reynum eftir bestu getu að koma skilaboðum áleiðis til LÍN í gegnum okkar fulltrúa. Þess má geta að SÍNE er í sam- starfi við námsmannahreyfingar annars staðar á Norðurlöndum og er markmiðið að stofna á þessum vetri norræn samtök til að miðla þekkingu og efla samstarf á milli landanna. Einnig er SÍNE með nýja heimasíðu í bígerð. SÍNE er líka í samvinnu við Rannís, sem heldur utan um það verkefni, að vinna að upplýsingasíðu um nám erlendis.“ Var sjálfur námsmaður erlendis Hvers vegna sóttist þú eftir for- mennsku hjá SÍNE? „Ég var sjálfur námsmaður er- lendis í fjögur ár og veit hversu gott það er að fá tækifæri til þess að læra á erlendri grundu. Ég skil vel stöðu námsmanna í því samhengi. Þetta starf hjá SÍNE tekur óneitanlega mikinn tíma, en þar sem þetta er mitt hjartans mál, þá er það í lagi. Ég fór ekki að verða virkur í þessu starfi fyrr en námi mínu lauk. Þá átt- aði ég mig á að þetta batterí sé til og til staðar til að þjóna námsmönnum. Mig langar að leggja mitt af mörk- um. Vonandi get ég haft jákvæð áhrif á starfsemi SÍNE í samvinnu við félagsmenn og stjórnarmenn. Það er mín einlæg von að Íslend- ingar geti nýtt sér tækifæri til náms erlendis, sama hvort þeir koma frá efnamiklum heimilum eða ekki. Að allir hafi tækfæri til að stunda nám í útlöndum.“ Hvernig var efnahagurinn hjá þér þegar þú varst í náminu þínu? „Ég stundaði nám hjá Juilliard- listaháskólann í New York, var þar á leiklistarbraut skólans. Ég útskrif- aðist árið 2011 með leiklistargráðu B.F.A. Lánið lék við mig hvað skóla- gjöldin sjálf snerti, ég fékk skóla- styrk í gegnum skólann, annars hefði þetta aldrei gengið upp hjá mér, þar sem ekki er lánað að fullu fyrir skóla- gjöldum. Ég var ekki með sterkt fjárhagslegt bakland og skil því þá sem eru í sömu stöðu. Ég var með grunnframfærslu frá LÍN og studdi mig við það. Ég veit hvað miklu skiptir að fá góð og hagstæð lán. Ég var fjögur ár í námi í New York, árin 2007 til 2011. Þetta var erfitt því allt lánaumhverfi breyttist á þessum ár- um. Ég kom með talsverðar skuldir á bakinu frá því námi.“ Lánsamur eftir útskrift En hvernig hefur þér gengið að fá vinnu sem leikari? „Þetta kemur í sveiflum en ég hef verið mjög lánsamur eftir útskrift. Það þýðir þó ekki að treysta á að það vari að eilífu. En sem betur fer hef ég ekki bara áhuga á að leika sjálfur, heldur hef ég áhuga á menningu og listum yfirhöfuð og ólíkum vettvangi listsköpunar. Ég get vel hugsað mér bæði að kenna, leikstýra og taka þátt í uppbyggingu listsköpunar á Ís- landi. Þar er mikið starf fram- undan.“ Hefur kvikmyndin Svartur á leik hjálpað þér á listabrautinni? „Hún hefur hjálpað mikið. Í raun má segja að það, að ég hafi verið námsmaður erlendis á þessum tíma í New York, hafi hjálpað til þess að ég fékk hlutverk mitt. Ég hitti leik- stjóra myndarinnar, sem var sjálfur námsmaður á svipuðum tíma og ég í kvikmyndanámi í New York. Ég hitti hann í þeirri borg og hann bauð mér í leikprufu. Út frá því fékk ég hlut- verkið í kvikmyndinni Svartur á leik. Velgengni þeirrar myndar hefur gef- ið kvikmyndaferli mínum það „start“ sem raun ber vitni.“ Hvað er á döfinni hjá þér í kvik- myndabransanum? „Frumsýndar hafa verið tvær kvikmyndir á þessu ári sem ég leik í. Annars vegar Vonarstræti, þar sem ég leik eitt af þremur aðal- hlutverkum. Sú mynd er núna fram- lag Íslands til Óskarsverðlauna í ár. Svo var heimsfrumsýning nýlega í London á myndinni Dracula Untold, sem framleidd var hjá Universal Pictures. Sú mynd hefur vermt topp- sætið á aðsóknarlista kvikmynda- húsa í heiminum að undanförnu. Þetta ár hefur því verið gjöfult fyrir mig á leiklistarferlinum. Framundan hjá mér eru nokkur verkefni sem ég má ekki nefna opinberlega að sinni, þar sem samningamál eru ekki í höfn. Svo er ég ávallt að senda leik- prufur út um heim, sem verið er að bjóða út til leikara. Stór hluti af minni vinnu fer í leikprufur. Góður maður sagði eitt sinn við mig: „Vinn- an er að fara í leikprufur – verkefnið er fríið.“ Einnig er ég að kenna í Verslunarskólanum, hef umsjón með valfagi þar. Ákaflega gaman er að koma þannig á heimaslóðir, en ég tók stúdentspróf frá þeim skóla.“ Nám erlendis mikilvægt Hvernig rímar þessi vinna öll við fjölskyldulífið? „Það gengur almennt ágætlega þó vinnutími sé afar óreglulegur. Það er ákveðinn skilningur á því fyrir- komulagi heima fyrir. Það er nauð- synleg forsenda fyrir svona starfi.“ Hefur reynsla þín á námi og starfi erlendis mikið að segja fyrir for- mennsku þína hjá SÍNE? „Þetta er mikilvægt starf og þýð- ingarmikið er að hafa sjálfur upp- lifað þær aðstæður sem námsmenn búa við erlendis, til að hafa á því skilning. Ég lít svo á að það sé ákveð- in skylda okkar sem höfum fengið tækifæri til að nema erlendis að skila okkar þekkingu á einhvern hátt til baka, út í íslenskt samfélag og at- vinnulíf. Sú þekking er nauðsynleg fyrir íslenskt samfélag, til að breikka og dýpka skilning okkar á umheim- inum. Ekki síst þar sem við búum á eylandi langt norður í höfum. Sú þekking sem þannig er aflað vinnur gegn einangrun. Þess vegna er þýð- ingarmikið fyrir okkar að senda ungt fólk til náms á erlendum vettvangi. Í ljósi þessa vonumst við hjá SÍNE til þess að stjórnvöld sýni málefnum námsmanna erlendis skilning.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Nám erlendis er samfélagsnauðsyn  Málefni SÍNE hafa verið í brennidepli í talsverðan tíma  Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari er formaður SÍNE, en hann stundaði nám í leiklistarfræðum við Juilliard-listaháskólann í New York í fjögur ár Reynsla „Það er mín einlæg von að Íslend- ingar geti nýtt sér tækifæri til náms er- lendis, sama hvort þeir koma frá efnamiklum heimilum eða ekki,“ segir Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.