Morgunblaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
2 eða 4 hraða
Bor- og skrúfvélar
14,4 og 18 volt
Frábær ending á rafhlöðum
ASCD W4
■ 18 volta
■ Kraftur 158 Nm
■ Fyrir ¼" skrúfbita
■ 2200 rpm
■ Þyngd: 1,5 kg
ASCM 18 QX
■ 18 volta
■ 4 hraðar
■ Tvær patrónur
■ Kolalaus mótor
■ Kraftur 90 Nm
■ Þyngd: 2,0 kg
með fjölskyldur leiti frekar í nám á
hinum Norðurlöndunum þar sem
þeir geta þar reiknað með meiri
stuðningi í félagslega kerfinu en ef
t.d. væri haldið til Bretlands eða
Bandaríkjanna. Að sama skapi er
væntanlega meiri áskorun fyrir
fólk með maka og börn að halda
með allt sitt hafurtask í nám í fjar-
lægum og framandi heimsálfum.“
Upphæðir eftir aðstæðum
Í aðalatriðum veitir LÍN lán fyr-
ir framfærslu nemenda annars veg-
ar og fyrir skólagjöldum hins veg-
ar. Upphæð framfærslunnar tekur
mið af framfærslukostnaði í hverju
landi fyrir sig og þannig eru veitt
hærri námslán þar sem dýrara er
að búa en lægri mánaðarleg upp-
hæð annars staðar. Til viðbótar eru
veitt lán fyrir ferðakostnaði og
bóka- og efniskaupum, en þar er
ekki um verulegar fjárhæðir að
ræða.
Skólagjaldalán mega ekki vera
yfir ákveðnu hámarki á öllum
námsferlinum og er þetta hámark
breytilegt eftir námslandi. Í Banda-
ríkjunum er t.d. hámark skóla-
gjaldalána nú 44.100 dalir eða um
5,3 milljónir króna miðað við gengi
dagsins í dag. Við dýrustu há-
skólana vestan hafs gengur fljótt á
þessa heimild ef námsmaðurinn
nýtur engra námsstyrkja hjá skól-
anum. Námsmenn verða því að
hafa þetta í huga þegar þeir skipu-
leggja nám sitt til framtíðar.“
Hrafnhildur bendir jafnframt á
að skipulag námsins fellur ekki
alltaf alveg að reglum sjóðsins, t.d.
ef um launað starfsnám er um að
ræða, en þá er það skoðað sér-
staklega í hverju tilviki fyrir sig.
Eins getur gerst að skipting skóla-
ársins í annir og kennsluár reynist
ólík því sem algengast er á Vest-
urlöndum og reynir þá LÍN að
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Lánasjóður íslenskra náms-manna býður upp á ým-iskonar lánamöguleikahanda þeim sem stefna á
nám erlendis. Reglurnar eru að
mestu svipaðar og þær reglur sem
gilda um lán til náms á Íslandi, en
þó með nokkrum minniháttar und-
antekningum sem nemendur ættu
að kynna sér vel.
Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir,
framkvæmdastjóri LÍN, segir að
undanfarin ár hafi eitthvað dregið
úr umsóknum um lán vegna náms
erlendis, en það sé í takt við þann
samdrátt sem á sér stað í umsókn-
um vegna námslána almennt. „Við
erum að sjá fækkun umsækjenda í
heildina. Varð mikil fjölgun nem-
enda í háskólanámi árin eftir hrun
en sú bylgja virðist nú vera smám
saman að ganga til baka.“
Þá má greina áhugaverðar breyt-
ingar á þeim hópi námsmanna sem
stundar nám sitt erlendis. „Hefur
til að mynda orðið veruleg fækkun
á umsóknum um lán vegna náms í
Danmörku, mögulega vegna þess
að sumir íslenskir námsmenn eiga
þar kost á námsstyrkjum frá
danska ríkinu. Við höfum séð tölu-
verða aukningu í áhuga á lækna-
námi í Ungverjalandi og nú síðast
Slóvakíu og á þessu skólaári hefur
orðið tvöföldun á fjölda lánþega
sem stunda nám í Kína. Gerist það
á sama tíma að fækkun er í hópi
þeirra íslensku námsmanna sem
mennta sig í Japan.“
Stærstur hluti íslenskra náms-
manna erlendis leitar í nám í
Skandinavíu og svo hjá enskumæl-
andi þjóðum á Vesturlöndum, ss. í
Bandaríkjunum og Bretlandi. „Þá
er alltaf töluverður fjöldi sem
menntar sig í Þýskalandi sem og
Hollandi.“
Fjölskyldugerðin virðist líka vera
breytileg eftir námslandinu og ætti
ekki að koma á óvart. „Má reikna
með að þeir námsmenn sem eru
koma til móts við nemendur eins
og frekast er unnt. Miklu máli
skipti að hafa samband við sjóðinn
ef einhver vafi leikur á því hver
réttindi og skyldur námsmannsins
eru.
Er námið lánshæft?
Þarf iðulega að undirbúa námið
með góðum fyrirvara. Til viðbótar
við umsóknarferlið við sjálfa
skólana verður að tryggja að námið
sé lánshæft. „Sjóðurinn lánar fyrir
formlegu háskólanámi við al-
þjóðlega viðurkennda háskóla er-
lendis og þarf námið að vera skipu-
lagt sem fullt nám,“ útskýrir
Hrafnhildur og segir að ef ekki hafi
verið áður veitt lán vegna náms við
umræddan skóla verði námsmað-
urinn að framvísa nauðsynlegum
gögnum svo stjórn sjóðsins geti lag
mat á hvort skólinn og námið sé
lánshæft. „Til viðbótar við há-
skólanám er einnig mögulegt að fá
námslán fyrir sérnámi af ýmsum
toga, s.s. ýmiskonar starfsnámi og
iðnnámi.“
Fækkun í Danmörku
en fjölgun í Kína
Þeir sem stefna á nám erlendis verða að kynna sér vel réttindi
sín hjá LÍN og undirbúa sig vel Hægt að fá lán fyrir skólagjöldum
og tungumálanámi, en þó háð ákveðnum skilyrðum
Eitt það besta við að stunda nám erlendis er að
læra nýtt tungumál. Reyndar færist í vöxt að skól-
ar um allan heim bjóði upp á alþjóðlegt nám þar
sem kennt er á ensku en að vissum skilyrðum upp-
fylltum er hægt að fá framfærslulán fyrir tungu-
málanámi einu sinni á námsferlinum hjá lánasjóðn-
um.
„Lán fyrir tungumálanámi er veitt í eitt, tvö eða
þrjú misseri eftir málsvæði, þar sem nemendur fá
lengri tíma til að læra fjarskyld mál eins og arab-
ísku eða kínversku. Er sú krafa gerð að tungu-
málanámið fari fram við útlendingadeild háskóla
og sé til þess að búa námsmanninn undir formlegt
háskólanám sem fer fram á viðkomandi tungumáli.
Standa þessi lán ekki til boða vegna náms í Noregi,
Danmörku eða Svíþjóð eða í enskumælandi löndum
enda reiknað með að flestir hafi ágætan grunn í
þeim málum eftir stúdentsnámið.“
AFP
Verðmæti Lánasjóðurinn getur hjálpað til við tungumálanám í ákveðnum tilfellum. Kátur karl og kameldýr.
Hvað með að skerpa á arabískunni?
NÁMerlendis