Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 98
98
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Coolboy, fyrsta breiðskífa Oyama,
kom út hér á landi í byrjun vik-
unnar á vegum 12 tóna en í síðustu
viku í Japan, á vegum Imperial
Records. Oyama mun fagna útgáf-
unni með þrennum tónleikum á
tónlistarhátíðinni Iceland Airwa-
ves, þeir fyrstu
fóru fram í gær
og í kvöld kl.
18.15 leikur
hljómsveitin í
verslun 12 tóna
og á morgun
leikur hún á
Gauknum kl. 21.40. Formlegir út-
gáfutónleikar fara hins vegar fram
á Húrra, 13. nóvember og mun
hljómsveitin Nolo hita gesti upp.
Að þessari tónleikasyrpu lokinni
heldur Oyama til Japans í tónleika-
ferð og kemur þar m.a. fram á
Hokuo, norrænni tónleikahátíð í
Tókýó og í Osaka með japönsku
sveitinni Vampillia.
Gaman að fylgjast með Pétri
„Okkur langaði að gera stóra og
flotta plötu, höfðum mikla trú á
lögunum sem við vorum búin að
semja, og vorum svo heppin að fá
Pétur Ben til að pródúsera plöt-
una. Hann mætti á æfingar, hlust-
aði á lögin og hjálpaði okkur að fá
lokamynd á þau áður en við fórum
í stúdíóið. Það var mjög gott að fá
svona utanaðkomandi eyru til að
pæla í því sem við höfðum verið að
semja og Pétri, verandi snilling-
urinn sem hann er, tókst að taka
lögin upp á annað „level“,“ segir
Úlfur Alexander Einarsson, söngv-
ari og gítarleikari Oyama, um Co-
olboy en auk hans skipa hljóm-
sveitina söngkonan og
hljómborðsleikarinn Júlíana Her-
mannsdóttir, Bergur Thomas And-
erson bassaleikari og söngvari,
Rúnar Örn Marínósson trommu-
leikari og Kári Einarsson gítarleik-
ari.
„Það var rosagaman að vera á
æfingu með honum og sjá hann
sitja þarna og hlusta á meðan við
spiluðum, labbandi á milli magnara
til að heyra betur hvað væri í
gangi. Síðan eftir hvert lag sat
hann aðeins lengur hugsi og kom
síðan með punkta eins og: „Í þess-
um kafla... hvað með að Úlfur og
Kári hætti bara að spila og komi
síðan inn af fullum krafti þegar
viðlagið byrjar?“ eða: „Þessi kafli
er of langur, það er of mikil end-
urtekning í gangi, getum við stytt
hann eitthvað?“ og uppáhalds-
ábendingin mín: „Viðlagið í þessu
lagi...getum við gert nýtt viðlag?“.
Í flestum tilfellum þá svínvirkuðu
ábendingarnar hans og gerðu lögin
dínamískari og bara betri. Pétur
var síðan með okkur í Sundlaug-
inni að taka upp grunna fyrir öll
lögin og við tókum upp smá gítar
og hljómborð hjá honum. Hann
var líka með í stúdíónu hjá Kára í
gegnum allt ferlið að passa að allt
hljómaði vel. Hann var svona eins
og draugur sem mætti annað
slagið og lagði blessun sína yfir
hluti sem við höfðum verið að
taka upp, eða fann staði þar sem
honum fannst vanta eitthvað og
sá til þess að það sem vantaði
yrði tekið upp,“ segir Úlfur.
Japönsk pressa
Coolboy var tekin upp í Sund-
lauginni og í Studio eitt hjá Kára,
gítarleikara Oyama. „Upp-
tökuferlið stóð yfir í u.þ.b. sex
mánuði, en við vorum að taka upp
plötuna á meðan við vorum á fullu
í skólum og að sinna öðrum störf-
um þannig að upptökur fóru oft-
ast fram um helgar eða á kvöldin
eftir vinnu. Við gerðum samning
við japanskt plötufyrirtæki fyrr í
vor sem var mjög spennt fyrir
plötunni og vildi koma henni út í
haust. Þau ýttu mikið á okkur að
klára sem fyrst og ég held að ef
við hefðum ekki haft þau press-
andi á okkur værum við ennþá að
taka upp plötuna í dag,“ segir
Úlfur.
Oyama leikur sveimrokk og
segir Úlfur að hljómsveitin hafi
áður verið mikið í skóglápinu svo-
kallaða. „Við erum búin að færa
okkur meira frá því,“ segir Úlfur
um skóglápið. Hvað titilinn varð-
ar, Coolboy, segir Úlfur að hljóm-
sveitin hafi dottið niður á hann á
hugmyndafundi. „Hann hljómar
vel og passar líka við textana á
plötunni sem eru mjög mikið um
kulda og þá líka kulda í mann-
legum samskiptum. Textarnir
fjalla mikið um trega í mann-
legum samskiptum og titillinn
hefur tvíræða merkingu,“ segir
Úlfur. Umslagið prýðir graf-
íkmynd af landslagi og segir Úlf-
ur að textarnir fjalli oft um til-
finningalegt landslag. „Þetta er
abstrakt, tilfinningalegt landslag,“
segir Úlfur um myndina.
Tilfinningalegt landslag
Oyama Hljómsveitin landaði plötusamningi við japanskt útgáfufyrirtæki eftir að útsendari þess sá hana á tónleik-
um á hátíðinni The Great Escape á Englandi. Oyama heldur brátt í tónleikaferð um Japan.
Oyama sendir frá sér breiðskífuna Coolboy Airwaves, útgáfutónleikar og tónleikar í Japan
framundan „Okkur langaði að gera stóra og flotta plötu,“ segir Úlfur, einn liðsmanna Oyama
Einlínur nefnist sýn-
ing sem Erla Þór-
arinsdóttir opnar í
SÍM-salnum að Hafn-
arstræti 16 í dag kl.
17. „Einlínur eru
málaðar á álplötur í
ham einbeitingar þar
sem liturinn rennur
og línan heldur
áfram óbrotin útí
eitt. Unnið er með
orku litarins, end-
urkast álplötunar-
innar og flæði lín-
unar sem myndar
form. Hugleiðsla,
stilling og nám í aust-
rænni heimspeki eru
áhrifavaldar, svo og
viðveran í samtím-
anum,“ segir m.a. í
tilkynningu, en þar kemur fram að
verkin voru útfærð í Reykjavík á
árunum 2013 og 2014.
Erla nam myndlist og hönnun við
Konstfackskolan í
Stokkhólmi og Gerrit
Rietveld Akadem-
íuna í Amsterdam.
Hún hefur starfað og
sýnt á Norðurlönd-
unum og í Mið-
Evrópu, í New York,
Kína og hérlendis.
„Málverk Erlu hafa
einkennst af óhlut-
bundnum formum og
strúktúrum, minni
mannsins og nálgun
við frumið og það
sem sameinar okkur
burtséð frá uppruna.
Hérlendis hefur hún
notast við blaðsilfur í
málverk og látið þau
oxast í andrúmslofti
okkar.“
Sýningin stendur til 25. nóv-
ember og er opin alla virka daga
milli kl.10 og 16 sem og laugardag-
inn 8. nóvember milli kl.14 og 17.
Áhrifavaldar Hugleiðsla,
stilling og nám í austrænni
heimspeki eru áhrifavaldar
við gerð myndanna, svo og
viðveran í samtímanum.
Einlínur á álplötur
Aðdáendur hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Pink
Floyd hafa margir beðið spenntir eftir nýrri skífu sveit-
arinnar, The Endless River, en samkvæmt gagnrýnanda
The Independent gátu þeir sleppt því að bíða. Tónlistin
er unnin úr efni sem stóð eftir þegar félagarnir unnu að
síðustu plötu, Division Bell, eitt lag er sungið en hin
sautján leikin. Gagnrýnandinn, Andy Gill, segir þau
hvert öðru líkt, „tilgangslaust djamm hljómsveitar-
meðlima“.
Gefur nýrri plötu Pink Floyd falleinkunn
Sigling Umslag
nýju plötunnar.
Árin segja sitt1979-2014
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sýnum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
)553 1620
Verið velkominn