Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 105
MENNING 105
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
BRÁÐSKEMMTILEG
MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Ísl. tal
POWERSÝNING
KL. 10:10
-H.S., MBL
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
16
L
JOHN WICK Sýnd kl. 8 - 10:10 (power)
GRAFIR OG BEIN Sýnd kl. 6 - 8
BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:10
FURY Sýnd kl. 10:10
KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Töff, naglhörð og
dúndurskemmtileg
hefndarmynd sem ætti
alls ekki að valda
hasarunnendum
vonbrigðum.
-T.V. - Bíóvefurinn.is
Hörku spennumynd
Keanu Reeves
Movie Star hvíldarstóll
Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Kvikmyndavefurinn Variety fjallar sér-
staklega í stuttri grein um salern-
isaðstöðu við tökur á kvikmyndinni Int-
erstellar sem fóru að hluta til fram á
Íslandi. Myndin gerist að stórum hluta í
geimnum og þá m.a. um borð í geim-
skipi. Bendir greinarhöfundur réttilega
á að engin salerni sé að finna í geimn-
um og því hafi leikarar myndarinnar
fengið að kynnast en með aðalhlutverk
í Interstellar fara Matthew McConaug-
hey og Anne Hathaway.
Einn leikara myndarinnar, Bill Irw-
in, segir að leikarar hafi verið komnir
með stálnýru eftir tökurnar þar sem fá
tækifæri hafi gefist til salernisferða og
langar biðraðir hafi verið við þau sal-
erni sem voru til staðar. Irwin segir að
af þeim leikurum sem fara með hlut-
verk geimfara í myndinni hafi McCo-
naughey verið með bestu þvagblöðr-
una, hann hafi aldrei heyrt hann biðja
um hlé á tökum til að bregða sér á sal-
ernið.
AFP
Úthald Matthew McConaughey með eiginkonu sinni Camillu Alves fyrir
frumsýningu á kvikmyndinni Interstellar í París, 31. október sl.
McConaughey með samkvæmisblöðru
Morgunblaðið/Skapti
Norrænt Ásgeir blálýstur á tón-
leikum á Græna hattinum árið 2012.
Ásgeir valdi lög vikunnar
á norræna lagalistann
Tónlistarmaðurinn Ásgeir valdi
lög vikunnar á norræna lagalist-
anum, Nordic Playlist, sem finna
má á slóðinni nordicplaylist.com.
Vefurinn var opnaður í byrjun
árs og er markmiðið með honum
að kynna nýja og áhugaverða
tónlist frá Norðurlöndunum og
auðvelda fólki að uppgötva það
besta sem er í boði hverju sinni í
norrænni tónlist.
Tíu laga lista vefjarins setja
saman tónlistarmenn, plötusnúð-
ar, blaðamenn og bókarar tónlist-
arhátíða á Norðurlöndunum.
Ásgeir er meðal þeirra tónlist-
armanna sem koma fram á Ice-
land Airwaves og heldur tónleika
á laugardaginn kl. 18 á sér-
stökum útvarpsbar Nordic Playl-
ist að Laugavegi 91 og verða tón-
leikarnir sendir út beint á netinu.
Lögin tíu sem eru á lista Ás-
geirs eru eftirfarandi: „Give Up“
með Low Roar, „Glimpse of a
Time Broken“ með Twin, „House
by The Sea“ með Moddi, „There’s
No Leaving Now“ með The Tal-
lest Man On Earth, „The Lion’s
Roar“ með First Aid Kit, „Johnny
and Mary“ með Todd Terje,
„Sugardaddy“ með Jimi Tenor,
„Fence Me In“ með Erlend Øye &
Hjálmum, „Wolf & I“ með Oh
Land og „Góða tungl“ með Sam-
aris.
ungum. Ekki alltaf
auðveldu, eins og
gengur. Í annan stað
hafa áhrifin frá Iron
Maiden, Járnfrúnni,
aldrei verið meiri.
Epísk uppbygging, harmónískur
gítarleikur og bassinn brokkandi um
héruð. Ég get svo svarið að væri
Björgvin ekki þarna, drynjandi eins
og eðludreki, gæti maður á köflum
haldið að Iron Maiden væri þar lif-
andi komin. Barki Baldurs fær hér
meira vægi en áður. Hvaðan kemur
sú rödd eiginlega? Það hlýtur að
vera rannsóknarefni fyrir vís-
indamenn. En djöfull falla þessar
ólíku raddir vel hvor að annarri!
Grenjandi drunur. Talandi um drun-
ur. Trommuleikurinn er með því
besta sem heyrst hefur í þungarokki
hérlendis – og þótt víðar væri leitað.
Þrass-tilvísanir eru líka á sínum
stað, svo við höldum áfram með
áhrifin. Og lengi mætti telja.
Það er heila málið. Skálmöld er
hvergi bangin við að bergja á visku-
brunni sér eldri og reyndari málm-
banda. Búið er að finna upp hjólið,
nú ríður á að smyrja það – með sínu
lagi. Og það gera fáir betur en
Skálmöld. Fagmennska, listfengi,
leikgleði. Allt er þetta upp á tíu, að
ekki sé talað um rándýran kveðskap
Snæbjörns. Leitun er að dýpra gildi
texta fyrir tónlist. Þetta tvennt verð-
ur ekki í sundur skilið.
Á Með vættum heggur Skálmöld í
sama knérunn og áður. Sem betur
fer! Fáir hafa nefnilega betra nef
fyrir grípandi melódíum og geggj-
uðum riffum. Ef eitthvað er hefur fé-
lögunum farið fram í lagasmíðum.
Eigi að síður kæmi mér ekki á óvart
þótt Með vættum yrði minna við al-
þýðuskap en Baldur og Börn Loka.
Hún er þyngri og sumpart seinmelt-
ari en systkini hennar. Því fer þó
fjarri að það sé ljóður á ráði Skálm-
eldinga – þvert á móti. Leyfi ég mér
að fullyrða fyrir hönd okkar sem lif-
um og hrærumst í málmi. Hér er
meira ket á beinunum fyrir innvígða.
Hvergi er snöggan blett á Með
vættum að finna. Hún er heilsteypt-
asta og besta plata þessarar Óðins-
gjafar, sem Skálmöld er, til þessa. Af
þremur framúrskarandi góðum.
Annars er ekki við hæfi að greina
þennan málmnorræna þríleik að.
Hann er eitt verk. Eitt þrekvirki.
Hafið þakkir fyrir, Skálmeldingar.
Þakkir af einingu góðar.
Við sjáumst í næsta stríði!
góðar
Skálmöld „Hvergi er snöggan blett á Með vættum að
finna. Hún er heilsteyptasta og besta plata þessarar Óð-
insgjafar, sem Skálmöld er, til þessa. Af þremur fram-
úrskarandi góðum,“ segir meðal annars í umsögn.