Morgunblaðið - 06.11.2014, Page 108
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Sátu fyrir skokkaranum
2. Hjón kaupa 30 íbúðir í Kópavogi
3. Fríhöfnin verði lögð niður
4. Ólafur Ragnar neitar að hætta
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Stúdentaleikhúsið frumsýnir upp-
færslu sína á Stundarfriði, verki Guð-
mundar Steinssonar, 14. nóvember
nk. Sýningarstaðurinn er heldur
óvenjulegur, einn af vatnstönkum
Perlunnar í Öskjuhlíð. Með mikilli
hörku og góðum stuðningi atvinnu-
leikhúsanna hefur Stúdentaleikhús-
inu tekist að byggja glæsilegt leikhús
inni í tankinum, eins og segir í til-
kynningu. Leikritið Stundarfriður var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1979,
fjölskyldusaga sem segir frá þeim
röskunum sem fylgja tæknivæðingu
samtímans. Leikstjóri sýningar Stúd-
entaleikhússins er Karl Ágúst Þor-
bergsson.
Morgunblaðið/Ómar
Stundarfriður í ein-
um tanka Perlunnar
Myndlistarmaðurinn Snorri Ás-
mundsson opnar tvær myndlistar-
sýningar í dag, annars vegar er það
Framsóknarmaðurinn/The progresive
party man í gluggagalleríinu Betra
veður á Laugavegi 41 og Gyðjurnar í
Galleríi bakaríi á Skólavörðustíg 40.
Betra veður er nýstofnað gluggagallerí
og er sýning Snorra sú fyrsta sem
haldin er þar. Snorri mun opna sýn-
inguna með gjörningi fyrir framan gall-
eríið kl. 17. Hálftíma síðar opnar Snorri
sýninguna í Galleríi bakaríi, sýnir þar
ný málverk af norrænum og rómversk-
um gyðjum. Fyrirmynd-
irnar að þeim sækir
Snorri í samtímann
og má sjá á sýning-
unni þokkadísir úr ís-
lenskum og banda-
rískum
afþreyingarveru-
leika, eins og
Snorri lýsir því.
Framsóknarmaður
og samtímagyðjur
Á föstudag Norðan og norðaustan 10-20 m/s, hvassast norðan-
og vestanlands. Víða snjókoma norðvestantil, annars slydda eða
rigning, en úrkomulítið á suðvesturhorninu. Hiti 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, 8-15 m/s, og víða rigning, en
talsverð rigning suðaustanlands. Heldur hægari vindur suðvest-
antil. Bætir í vind og úrkomu seint annað kvöld. Hiti 0 til 9 stig.
VEÐUR
„Það er nýtt tilboð vænt-
anlegt síðar í vikunni. Það
bar talsvert í milli í fyrsta
tilboðinu en þeir virkuðu
mjög áhugasamir,“ sagði
Ingvar Jónsson, markvörður
Íslandsmeistara Stjörn-
unnar og besti leikmaður
síðasta Íslandsmóts í knatt-
spyrnu. Ingvar æfði með
sænska liðið Åtvidaberg á
dögunum og vakti frammi-
staða hans athygli forráða-
manna félagsins. »1
Ingvar væntir
annars tilboðs
Knattspyrnumaðurinn Hólmar Örn
Eyjólfsson, sem í ágústmánuði gekk í
raðir norska úrvalsdeildarliðsins Ros-
enborg, er mjög ánægður í herbúðum
liðsins og er vel til í að framlengja
dvöl sína hjá félaginu þegar eins árs
samningurinn sem hann
gerði rennur út næsta
sumar. Hólmar Örn
segist hafa fallið vel
inn í liðið. »3
Hólmari Erni líkar vel
vistin hjá Rosenborg
Erla Ásgeirsdóttir og Helga María Vil-
hjálmsdóttir eru tvær af fimm lands-
liðsmönnum Íslands í alpagreinum
sem brátt hefja nýtt keppnistímabil af
krafti, en þar stendur HM í Colorado
upp úr. Þær eru báðar komnar heim
eftir nám í skíðamenntaskóla í Noregi
og segja erfitt og kostnaðarsamt að
sinna skíðaíþróttinni sem skyldi með
búsetu hér á landi. »2-3
HM í Colorado er
hápunktur vetrarins
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Það er gott að fara út fyrir þæg-
indarammann og upplifa eitthvað
alveg nýtt. Maður lærir að meta líf-
ið á annan hátt eftir þessa reynslu,“
segir Þorsteinn Eyfjörð Þórarins-
son, einn fjórmenninganna sem
settu upp ljósmyndasýningu í Gall-
eríi Tukt í Hinu húsinu, úr ferðalagi
sínu til Eþíópíu í ágúst síðast-
liðnum.
Auk Þorsteins eru þau Óli Björn
Vilhjálmsson, Stella Rut Guð-
mundsdóttir og Kristín Gyða Guð-
mundsdóttir með ljósmyndir á sýn-
ingunni. Hún nefnist: „Hvað
upplifir manneskjan þegar hún stíg-
ur inn í annað umhverfi?“
Í ágúst fór átta manna hópur á
vegum KRUNG – kristniboðsferða
unga fólksins til suðurhluta Eþíóp-
íu. Markmið ferðarinnar var að
skoða uppbyggingu afskekktra
svæða, læra nýja siði og kynnast
heimafólki, eða með öðrum orðum:
að upplifa annan veruleika en þau
búa við.
Þau voru í þrjár vikur og ferð-
uðust víða um Eþíópíu á þeim
svæðum þar sem íslenskir kristni-
boðar starfa og hafa stafað. Þau
fengu leiðsögn um svæðið og kynnt-
ust náið starfi þeirra. „Þetta var
ótrúlegt tækifæri til að fá að upplifa
eitthvað allt annað en þægindin og
öryggið á Íslandi. Maður kynntist
aðstæðum fólksins. Það var eins og
maður hefði verið sleginn utan und-
ir, aftur og aftur,“ segir Þorsteinn.
Koma reynslunni frá sér
Hann stundar nám við Mynd-
listaskóla Reykjavíkur. Hann segir
að eftir heimkomuna hafi þau verið
full af spurningum, pælingum og
hugmyndum um lífið og tilveruna.
„Ég vildi koma þessari reynslu og
upplifun sem ég bjó yfir frá mér á
einhvern hátt. Sýningin er í raun
útkoman úr því að hafa farið út og
upplifað sjálfan sig algjörlega í nýj-
um aðstæðum. Hvernig ytri að-
stæður hafa áhrif á innra sálarlíf.“
Sýningin samanstendur af mynd-
um frá ferðalaginu og hverri mynd
fylgir texti með hugleiðingum um
lífið sjálft.
Spurður hvort hann hafi komist
að einhverjum algildum sannleika
um lífið, segir hann svo ekki vera.
„Það er erfitt. En það sem við kom-
umst að er að kannski er eitthvað
meira við þetta líf en við finnum
venjulega hér á Íslandi. Maður lær-
ir líka að meta lífið á nýjan hátt,“
segir Þorsteinn íhugandi. Hann
vonast til að komast aftur út og
segist hafa skilið part af hjarta sínu
eftir í Eþíópíu.
Ljósmyndasýningin stendur fram
yfir 15. nóvember og er hluti af
dagskrá Unglistar – listahátíðar
ungs fólks sem haldin er í 23. sinn.
Hátíðin miðar að því að hefja list
ungs fólks á Íslandi til vegs og virð-
ingar ásamt því að fagna og vekja
athygli á menningu þess.
Hjartað slær enn í Eþíópíu
Opnuðu ljósmyndasýningu í Galleríi
Tukt eftir ferð með KRUNG til Eþíópíu
Morgunblaðið/Þórður
Ljósmyndasýning Hópurinn sem fór til Eþíópíu nýverið kom heim reynslunni ríkari og sýnir afrakstur ferðarinnar í Galleríi Tukt í Hinu húsinu. Frá
vinstri: Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson, Óli Björn Vilhjálmsson, Kristín Gyða Guðmundsdóttir og Stella Rut Guðmundsdóttir.
Á morgun hefst Unglist, með
Off Venue Airvawes-tónleikum í
Hinu húsinu kl. 17. Þá flytur
Ungleikur sex ný stuttverk eftir
jafnmörg leikskáld á mánudag-
inn, 10. nóv., kl. 20 í Borgarleik-
húsinu. Spunakeppni fram-
haldsskólanna, Leiktu betur,
verður á fimmtudaginn á nýja
sviðinu í Borgarleikhúsinu. Þá
verður spunakvöld í Hinu húsinu
föstudaginn 14. nóv.
Rúsínan í pylsuendanum
verður tískusýning nemenda í
fataiðndeild Tækniskólans í
Laugardagslaug laugardaginn
15. nóvember. Fleiri viðburðir
verða á dagskrá sem má sjá á
vefnum: hitthusid.is.
Sköpunin
nýtur sín
DAGSKRÁ UNGLISTAR 2014