Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014 HEIMURINN NKI W B að segja fr mun gera umfan um innflytj orðið að a innflytjend sér brottv náðist þve breytingar þingsins en í fulltrúadeildinni. forsetinn hafi ekki va þinginu og gera umfan af þessu tagi, þeir mu tilskipuninni. TALAND nað nin má lökisútvarpið í Egyptalandi hefur ban flut m gvar hefurn g rý da segjí textum s að tt ba RÚSSLAND MOSKVU mn var opnaður í Moskalds-skynFy y þ n að lokunin væri sMargir álitu á hinn bóginmánuðum, að s egum kipta þeirra af átökunum í A-Úkralfar innrásar Rússa á Krím og afsa í kjörefsiaðgerðum En staðurinn, var opnaður á ný á miðvikudag og myrsti McDonalds-staður landsins,angPúsksem er við stæ duðust r. Nýleegar í stað bið lumRefur til kynna að kaðoútibúum McDonal ný vegna mskýrsl órnareghrik uKi eytið í kin umg sPjon Þ þarað ha tilefnisem SÞ villMaskýr æru áráð Sð jóðlegaor Stórfyrirtæki reyna ávallt að lækka útgjöldin, laun og annað. Sú saga er eilíf og endalaus. Horfi nú hver í eigin barm, sjálf reynum við að kaupa vöru og þjónustu á eins lágu verði og við getum. Og einhverjir myndu segja að ef þessum „ánauðugu þjónum“ Google væri meinað að þræla á sult- arkjörum myndi fyrirtækið ráða innfædda Bandaríkja- menn á hærri launum. Útlend- ingarnir fengju sennilega mun verri vinnu í heima- löndunum. En varla afsakar það að risafyrirtæki notfæri sér varnarleysi fá- tæklinga - bak við tjöldin. Hefðbundin pappírsbók erúrelt og bráðum getum viðlesið allar bækur heimsins á tölvuskjá. Ekki er víst að dyggir bókavinir skrifi allir undir þessa draumsýn, mörgum finnst snert- ingin við áþreifanlegu bókina vera nauðsynlegur hluti af því að njóta hennar. En hjá risafyrirtækinu Google byrjuðu menn að koma rit- uðu máli á stafrænt form, skanna inn gamlar bækur sem ekki voru þegar til á stafrænu formi, fyrir mörgum árum og þegar eru yfir 30 milljón titlar í höfn. Stórkostleg hátækni, hugkvæmni tölvusnillinganna og gervigreind búnaðarins eða hvað? Þegar skoðuð eru ýmis ummæli Larry Page og annarra liðsmanna Google skyldi maður ætla það. Undrabörnin í Kís- ildal í Kaliforníu eru meira fyrir að nota hástemmd lýsingarorð en upp- lýsa okkur neytendur um ýmis at- riði upplýsingabyltingarnnar sem ekki þykja jafn heillandi. Jarð- bundin mál eins og kjör þeirra sem lélegust hafa launin hjá risanum. Talið er að til séu um 130 milljón bækur í heiminum öllum. Stafrænar bækur verða ekki til af sjálfu sér, detta ekki af himnum ofan. Notuð er tiltölulega einföld ljósmynda- tækni við að gera textann stafræn- an, þúsund blaðsíður á klukkustund. Heill hulduher útlendra verka- manna sér um að fletta hverri ein- ustu bók spjaldanna á milli svo að hægt sé að mynda hverja síðu. Hulduher vegna þess að langflest er þetta fólk eins og ósýnilegt, er á verktakasamningi sem hægt er að segja upp fyrirvaralaust. Stundum verða mistök, blaðsíðan er á hvolfi, og stöku sinnum verður fólkið óvart sýnilegra, a.m.k. hönd eða fingur. Andrew Norman Wilson er graf- ískur hönnuður sem var um hríð verktaki í aðalstöðvum Google í Kaliforníu. En hann var rekinn 2007 fyrir að eiga samskipti við annan hóp, fólk sem mætti kl. 4 á morgni og hélt aftur heim kl. 14. Það vann fyrir vinnuteymi Google sem nefnist ScanOps. Wilson hefur gert vídeómynd um þessa reynslu sína. „Þeim var markvisst haldið að- greindum. Þau báru gult spjald sem takmarkaði aðgang að öllum bygg- ingum á svæðinu að þeirra eigin undanskilinni,“ segir Wilson. Flestir voru blökkumenn eða ættaðir frá löndum Rómönsku Am- eríku, útlendingar með tímabundið atvinnuleyfi. Konur voru í meiri- hluta. Annað starfsfólk Google er oftast úr röðum hvítra Bandaríkja- manna og langoftast karlar sé um vellaunaðar ábyrgð- arstöður að ræða. Wilson fylgdist lengi með fólkinu og að lokum stóðst hann ekki mátið, reyndi að taka viðtöl við nokkra. Nokkrum mínútum síðar stöðvuðu öryggisverðir hann og Wilson var fljótlega rekinn. Gömul þjóðsaga segir að Eva hafi falið óhreinu börnin þegar Guð kom í heimsókn, hún skammaðist sín fyrir þau, vildi að þau væru ósýni- leg. En Guð gerði þau að álfum sem eru okkur (flestum) ósýnilegir. Page og félagar eru ekkert að hampa sín- um óhreinu börnum frekar en Eva. Ímyndarsérfræðingar Google hafa líklega sagt þeim að heppilegast væri að auglýsa þetta vinnuafl sem minnst. Leiðindapuð Er þetta siðlaust athæfi, arðrán, verið að níðast á varnarlausu fólki, meira eða minna réttlausum útlend- ingum? Talið er að yfir hálf milljón manna um allan heim vinni nú alls kyns vestræn tæknistörf sem ekki krefjast yfirburðaþekkingar, oft í fjarvinnu. Þetta er strit, leiðindapuð sem flestir ráða við. Margir kannast við símsvörun vestrænna fyrirtækja sem oft hefur verið „úthýst“ til Ind- lands. Og í Bandaríkjunum vinna nú vel yfir hundrað þúsund útlendingar með sérstaka, tímabundna vega- bréfsáritun, H-1B, hafa atvinnuleyfi í svonefndu smáforritahagkerfi hjá Google, Uber eða álíka fyrirtækjum. Í augum Google er það mikill kostur að um er að ræða fólk sem ekki er í neinu stéttarfélagi, hefur að nafninu til stöðu verktaka sem gerir frjálsan samning við verk- kaupandann Google. Fyrirtækið þarf ekki að greiða nein launatengd gjöld, er ábyrgðarlaust og vinnuafl- ið afar sveigjanlegt. Og hlýðið. En bent er á að Google er vell- auðugt risafyrirtæki sem ætti að hafa efni á að gera betur við starfs- menn sína. Og ef ráðamönnum þess finnst þetta allt í góðu lagi ætti ekki að þurfa að læðupokast með ódýra vinnuaflið eða hvað? Athyglisvert er að þrátt fyrir ítarlega leit (á Go- ogle) fannst ekki eitt dæmi um að Larry Page færi vinsamlegum orð um útlendingana fórnfúsu og fram- lag þeirra. Í hans augum eru þeir kannski ekki til. Óhreinu börnin hans Larry Page TUGMILLJÓNIR BÓKA ERU NÚ KOMNAR Á STAFRÆNT FORM, ÞÖKK SÉ GOOGLE OG AMAZON. EN LÍTIÐ ER FJALLAÐ UM ÓDÝRA VINNUAFLIÐ SEM SÉR UM AÐ FLETTA HVERRI SÍÐU SVO AÐ HÆGT SÉ AÐ MYNDA ÞÆR. Larry Page LAUN OG SIÐFERÐI Vegna mistaka við yfirfærslu blaðsíðu á stafrænt form birtist þessi hönd eins erlenda starfsmannsins á einni síðunni, flettifingurinn varinn með hulstri. Til er sérstakur vefur, theartofgooglebooks.tumblr.com, um mistök í bókum Google. *Hagsmunir [kaupsýslumanna] eru ávallt að einhverju leyti ólíkir og að hluta í andstöðu við hagsmuni almennings. Adam Smith, höfundur bókarinnar Auðlegð þjóðanna. Alþjóðamál KRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.