Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 15
testamentið í þessu sambandi en
þar er alls kyns subbuskapur.
Kristnin ber af miðað við ýmis
önnur trúarbrögð og hún boðar
kærleik. Kærleikurinn er líka í
íslam en á síðustu fjórum árum
hefur hann algjörlega týnst. Þeg-
ar ég bjó í múslímskum löndum
fyrir tíu til tuttugu árum var þar
allt á blússandi uppleið. Þess
vegna meðal annars er ömurlegt
að fylgjast með framvindu mála
þarna núna. Þar eru femínistar
þótt áherslur þeirra sé ekki eins
og hér, en það er ekki víst að
vestrænir femínistar eigi alls
staðar heima. Vestrænir femínist-
ar eru örugglega ósammála þessu
en þar sem ég tel mig til fem-
ínista get ég sagt þetta hrein-
skilnislega.“
Þú hefur verið að glíma við
veikindi, hversu alvarleg eru þau?
„Ég greindist með staðbundið
krabbamein, æxli var nýlega tek-
ið úr lunga. Ég þarf ekki að fara
í frekari meðferð en það tekur
mig nokkra mánuði að jafna mig.
Þannig að ég má teljast heppin,
þótt ekki hafi verið gaman að
verða fyrir þessu.“
Fylgistu með jólabókavertíð-
inni?
„Ég skrifaði mikið um bækur í
gamla daga, stundum um þrjár
til fjórar bækur á viku, og fylgd-
ist því mjög vel með jólabóka-
vertíðinni. Eftir að ég hætti að
gagnrýna gat ég ekki lesið bæk-
ur í nokkur ár en svo jafnaði ég
mig og fór að lesa aftur. Ég fylg-
ist sæmilega með og hef afger-
andi skoðanir á bókum. Þetta ár-
ið líst mér vel á Orra Harðarson
og Ófeig Sigurðsson. Sjálf mun
ég svo vera eitthvað á ferðinni að
lesa upp. Mér finnst óskaplega
gaman að hitta fólk, ekki bara til
að spjalla um bókina mína heldur
rabba um lífið og tilveruna.“
„Ég veit ekki hvort ýmislegt
sem ég segi þarna mælist
vel fyrir eða ekki en það
verður þá að hafa það.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
*Þetta fólk kvartaði alls ekki og égheld að það hafi haft áhrif á mig.Nú eru allir svo opnir og ef eitthvað ber
út af þá eru menn byrjaðir að kvarta.
Þessi endalausa tilfinningalega opnun í
nútímanum er góð svo langt sem hún
nær, en hún nær ekki alltaf mjög langt.
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15