Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 20
Íslenski hópurinn fyrir utan Caledonia-klúbbhúsið. Hópnum var tekið með kostum og kynjum. Þ að höfðu ekki margir trú á því að þessi ferð yrði farin enda tók langan tíma að skipuleggja hana. En við fór- um á endanum og þetta gekk eins og í lygasögu. Það unnust margir sigrar í þessari ferð, litlir og stórir.“ Þetta segir Helgi Þór Gunnarsson, for- stöðumaður í búsetuþjónustu fyrir geðfatlaða hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar, sem skipulagði fyrstu keppnisferð knattspyrnuliðs- ins FC Sækó, til útlanda ásamt Bergþóri G. Böðvarssyni, fulltrúa notenda á geðsviði Landspítalans og fleirum. Farið var til Skot- lands og leikið í tvígang gegn sambærilegu liði, frá klúbbhúsinu Caledonia Clubhouse í Falkirk, fyrst í Glasgow og síðan í Falkirk. Um er að ræða samstarfsverkefni Hlutverka- seturs, geðsviðs LSH og velferðarsviðs Reykjavíkur. Vorið 2012 var Evrópuráðstefna klúbbhúsa haldin á Íslandi af Klúbbnum Geysi og það var þar sem Bergþór heyrði fulltrúa frá Cale- donia-klúbbhúsinu í Falkirk greina frá sínu fótboltaverkefni. „Við höfðum rætt um að gera eitthvað til að heilsuefla hópinn enn frek- ar, til dæmis að fara utan og sjá leik í Meist- aradeild Evrópu saman en þarna áttaði ég mig á því að miklu meira spennandi væri að stefna að því að fara utan til að spila fótbolta sjálfir við sambærilegann hóp. Og hvar var betra að byrja en í Skotlandi?“ spyr Bergþór. Mikil eftirvænting greip um sig Helgi tók að sér samskipti við Skotana. „Þeim leist strax vel á hugmyndina en eflaust hafa þeir ekki gert ráð fyrir að við myndum nokk- urn tíma láta verða af þessu,“ rifjar hann upp. Bergþór segir þá á hinn bóginn alltaf hafa ÍSLENDINGAR SKORUÐU SKOTA Á HÓLM Menn eru ennþá í skýjunum KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ FC SÆKÓ ER SKIPAÐ NOTENDUM OG STARFS- MÖNNUM GEÐSVIÐS LANDSPÍTALANS OG VELFERÐARSVIÐS REYKJAVÍKUR. FÉLAGIÐ ER NÝKOMIÐ HEIM ÚR VELHEPPNAÐRI KEPPNISFERÐ TIL SKOTLANDS, ÞAR SEM LEIKIÐ VAR M.A. Á AÐALLEIKVANGI FALKIRK FC. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Bergþór G. Böðvarsson skiptir á treyju við einn af Skotunum eftir leikinn í Falkirk. verið staðráðna í að fara og héldu þeir málinu vakandi næstu mánuðina. Helsti flöskuhálsinn var kostnaður og sendur var póstur á flest stærstu fyrirtæki landsins en viðbrögð voru dræm. Það var ekki fyrr en Bergþóri og Helga var bent á að sækja um styrk hjá verk- efninu Evrópa unga fólksins að skriður komst á málið. Styrkbeiðnin var samþykkt í sumar og skyndilega var kominn grundvöllur fyrir ferðinni. Því næst setti Helgi sig í samband við Skot- ana og fundinn var tími sem hentaði hvorum tveggja, 28. október til 2. nóvember. Skotarnir brugðust skjótt við og lögðu drög að dagskrá. „Þegar dagskráin lá fyrir sáu menn að ekki varð aftur snúið. Við værum í raun og veru á leið til Skotlands að keppa í fótbolta,“ segir Bergþór og bætir við að mikil eftirvænting hafi gripið um sig í hópnum. „Þetta var mikið mál fyrir suma, til dæmis 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014 Ferðalög og flakk Lið FC Sækó og Cale- donia á hinum glæsilega leikvangi Falkirk FC.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.