Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.11. 2014 Matur og drykkir BÚÐINGUR 400 g rjómaostur 300 g hvítt súkkulaði 1 peli rjómi 80 g sykur Hitið ofninn í 140°C. Brjótið súkku- laðið niður og raðið á smjörpappír á ofnplötu. Bakið það í 20 mínútur eða þar til það hefur náð fallega gylltum lit. Hrærið rjómaost og sykur saman í skál yfir vatnsbaði. Takið 2⁄3 hluta af bakaða súkkulaðinu og setjið í skál ásamt rjóm- anum og bræðið yfir vatnsbaði, hrærið í þar til allt er bráðnað en það mega vera kögglar í súkkulaðinu. Afgangurinn af súkkulaðinu er settur til hliðar. Blandið rjómaostsblöndunni og súkku- laðiblöndunni saman og setjið í skálar sem á að bera fram eða í skál sem hægt er að skenkja úr í skálar seinna meir. Kælið yfir nótt ef blandan er í stóru skálinni en annars dugar að kæla í 4-5 tíma í litlu skálunum. Ylfa mælir með að setja allt í stóra skál og nota ískúlara til að ná fallegum kúlum. KARAMELLU- OG HVÍTSÚKKULAÐIKURL Þegar hvíta súkkulaðið sem þið geymduð er orðið kalt má mylja það í mat- vinnsluvél eða á gamla mátann með því að setja það í poka og lemja með köku- kefli. HINDBERJASÍRÓP 500 g frosin hindber 80 g sykur 100 g vatn ½ sítróna, safinn Setjið allt hráefnið í pott og hitið að suðu. Blandið svo saman í blandara eða með töfrasprota. Hægt er að sigta hratið frá og þá verður sírópið þunnt en einnig er hægt að hafa það í og þynna sírópið örlítið með vatni. Þá má líka sleppa því að þynna alveg og hafa sírópið þykkt. Fer eftir smekk. STEIKT EPLI 2 græn epli 1 msk. sykur 1 msk. smjör ½ tsk. kanil Skrælið eplin og skerið í báta eða ten- inga. Setjið epli, sykur, smjör og kanil í pönnu eða pott og steikið á hæsta hita þar til eplin eru byrjuð að mýkjast. Alls ekki elda þau of mikið en gott er að miða við 5-10 mínútur. Berið búðing og epli fram með grískri jógúrt og ferskum hindberjum. Karmellaður hvítsúkkulaðibúðingur og hindber Lambafillet með graskersteningum og púrtvínssveppum Fyrir fjóra 4 vænar sneiðar lambafillet Setjið lambakjötið á kalda pönnu og látið fituhliðina vísa niður. Kveikið undir á næsthæsta hita. Þannig nær fitan að eldast smá áð- ur en hún byrjar að steikjast og verður þar af leiðandi stökkari. Snúið kjötinu við eftir um 10 mín- útur og setjið til hliðar ef það á ekki að nota það strax eða lækkið undir pönnunni og leyfið því að klára að eldast þar. Kjötið þarf að standa í 4-5 mínútur áður en skor- ið er í það. GRASKERSTENINGAR 1 stk. butternut-grasker smjör salt og pipar eftir smekk 2 msk. púðursykur eða hun- ang Hitið ofninn í 180°C. Skerið graskerið í teninga og stráið á smjörpappírsklædda ofnplötu. Veltið bitunum upp úr smjöri, salti og sykri á pappírnum. Bakið í 10- 15 mínútur eða þar til bitarnir eru mjúkir. PÚRTVÍNSSVEPPIR 1 box flúðasveppir, heilir eða skornir í bita ½ dl púrtvín eða sérrí ½ dl rjómi 1 stór hvítlauksgeiri eða 2 litl- ir 1 msk. olía til steikingar salt og pipar eftir smekk Pressið hvítlauk og hitið hann í olíu við vægan hita á pönnu. Bætið sveppunum út í nær strax á eftir og passið að hvítlaukurinn brenni ekki. Steikið sveppina vel. Bætið púrtvíni eða sérríi saman við. Bæt- ið rjómanum saman við þegar púrtvínið hefur soðið aðeins niður og lækkið hitann verulega þannig að blandan rétt malli. Þegar rjóm- inn hefur soðið það mikið niður að hann er orðinn þykkur eru sveppirnir tilbúnir. Saltið þá og piprið eftir smekk. Berið fram með snjóbaunasalati. Það er útbúið með því að skera snjóbaunir þunnt langsum, þeim er velt upp úr eplaediki, salti og ólífu- olíu og gott að bæta hnetum og smávegis sýrðum rjóma saman við ef vill. Maturinn rann ljúflega niður og var komin smáaðventustemning á borðið. Morgunblaðið/Eggert Kertaskreytingin passaði vel við litasamsetninguna á matnum. * Fólk þarf aðhafa tímannfyrir sér með eft- irréttinn og ágætt að útbúa hann til dæmis kvöldið áður en hann er ekki flókinn, engin egg sem þarf að þeyta eða neitt slíkt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.