Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 40
Tíska *Jack Kilmer, sonur leikarans Vals Kilmers, er nýtt andlit auglýsingaherferðar tísku-hússins Saint Laurent. Ofurtöffarinn ValKilmer sló eftirminnilega í gegn í kvik-myndunum Top Gun og Batman Forever áníunda og tíunda áratugnum. Jack Kilmer,sem er 19 ára, gekk tískupallana fyrst fyrir sumarlínu Saint Laurent 2015 í júní síðast- liðnum. Sonur Vals Kilmers slær í gegn sem fyrirsæta Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Það eru handgerðu Rocco P.-leðurstígvélin mín. Ég nota þau út í eitt. Hvarnig skilgrenir þú stíl? Stíll er auðvitað mjög mismunandi. Ég myndi segja að stíll væri mjög ein- staklingsbundinn og þegar kona er búin að finna sinn stíl er hún í góðum mál- um. Stíllinn einkennir manneskjuna. Það hafa allir sinn stíl. Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Ég vil alltaf eitthvað nýtt, eitthvað sem ég hef ekki séð áður og ekki eitthvað sem allir aðrir eiga. Ég veit það í raun þegar ég sé flíkina. Ég vel oftast eitthvað sem passar við það sem ég á þegar enda veit ég nokkurn veginn hvað klæðir mig. Ég lít á gæðin í efninu og svo verður sniðið að vera gott. Hver finnst þér hafa flottan stíl? Allar konur sem hafa fundið sinn rétta stíl og eru öruggar með sig. Þær eru búnar að finna sitt snið og sinn lit sem klæðir þær. Það tel ég vera flottar kon- ur. Sjálfsöryggið geislar af þeim. Það er engin ein sem er flottari en önnur. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Alexander Wang og Kenzo. Þeir eru í miklu uppáhaldi. Hvernig myndir þú lýsa fatastíl þínum? Fatastíllinn minn er frekar einfaldur. Hann er laus við allt óþarfa glingur, hann þarf að vera þægilegur og gott að vera í flíkinni og svo er hann svolítið stráka- legur. Ég er mjög mikið fyrir fallegar kasmírpeysur og flottar gallabuxur, þess vegna rifnar. Svo er ég líka hrifin af töff- aralegum kjólum. Áttu þér einhverja tískufyrirmynd? Edda vinkona mín, verslunarstjóri í Kultur. Ég ber oft undir hana ef ég er að kaupa eitthvað. Hver er eftirlætisárstíð þín varðandi fatastíl og hvers vegna? Haustið. Þá morar allt af fallegum peysum, kápum og skóm. Það er langskemmtilegasti tíminn. Þá streyma inn föt sem henta okkar landi. Ég hlakka alltaf til haustsins. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Mér finnst nauðsynlegt að eiga Estée Lauder DayWear- kremið. Ég er búin að nota það í mörg ár. Svo þarf maður að eiga góðan klæðilegan varalit, maskara og kinnalit í stíl við varalitinn. Svo er það ilmvatnið, það verður alltaf að vera með og það þarf að vanda valið í þeim efnum. Ég er með sumar- og vetr- arilm sem skapa karakter og stíl. Það sem ég er að nota núna keypti ég í Madison-ilmhúsi og heitir Solaris og er frá Agonist perfume. Svo er ég með vetrarilm sem er örlítið dekkri og þyngri. Ilmurinn fæst í Spaksmannsspjörum og heit- ir Aedes de Venustas. Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? Nei, ég tími að nota allt. Mér finnst ekki tilgangur í því að eiga flík sem ég tími ekki að nota. Ég á margar dýrmætar flíkur sem eru miklar tilfinningar í. En það er engin flík þannig að ég tími ekki að nota hana. Föt eiga það skilið að vera notuð. STÍLLINN EINKENNIR MANNESKJUNA Inga er með einfaldan og flottan stíl sem einkennist helst af töffaralegum kjólum, flottum gallabuxum og kasmírpeysum. Morgunblaðið/Þórður Föt eiga það skilið að vera notuð INGA GOTTSKÁLKSDÓTTIR, EIGANDI VERSLUNARINNAR GOTTU, ER ALLTAF GLÆSILEGA TIL FARA. INGA VELUR SÉR FÖT ÚR GÓÐUM EFNUM OG SEGIR HÚN SNIÐIN SKIPTA HÖFUÐMÁLI VIÐ VAL Á FALLEGUM FATNAÐI. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Úr vetrarlínu Kenzo 2014. Inga segir ilmvötn ýta undir kar- akter og stíl. Ilmurinn Solaris frá Agonist perfume er í miklu uppáhaldi hjá Ingu. Flottar rifnar gallabuxur klikka seint. Alexander Wang fyrir veturinn 2014. AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.