Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 21
hafði einn í hópnum aldrei farið í millilanda-
flug. Maður gleymir því stundum að það hafa
ekki allir sömu möguleika á að ferðast,“ segir
Helgi.
Græja þurfti búninga og leituðu Bergþór og
Helgi til Knattspyrnusambands Íslands sem
brást ljúfmannlega við beiðni þeirra. Lagði
vitaskuld til landsliðsbúninga enda um milli-
landaglímu að ræða. Áður hafði KSÍ styrkt
FC Sækó um tíu knetti. Síðan voru fengnir
utanyfirbúningar, þannig að
heildarbragur yrði á hópnum á
ferðalaginu.
Flogið var til Edinborgar en
þaðan fór hópurinn, 21 maður,
akandi til Glasgow. Fyrri leikur
ferðarinnar – og um leið fyrsti
opinberi kappleikur FC Sækó –
fór fram á stóru æfingasvæði í
Glasgow en lið Caledonia-
klúbbhússins kom þangað. „Fyr-
irfram gerðum við ráð fyrir að
leika á sparkvöllum en þetta var fínasti völlur
í fullri stærð,“ segir Bergþór. Þá var ekki um
annað að ræða en gyrða sig í brók. Þrátt fyrir
að hafa enga reynslu af leikjum á stórum velli
stóðu Sækó-liðar ágætlega í Skotunum. Lutu
þó í gras á endanum, 5:2. Leiknar voru
2 x 25 mínútur.
Seinni leikurinn fór fram í Falkirk daginn
eftir og þar var sannarlega ekki í kot vísað.
Leikurinn fór fram á aðalleikvangi Falkirk
FC, sem leikur í næstefstu deild í Skotlandi.
Velli sem tekur tæplega 9.000 manns í sæti.
„Falkirk er mjög fjölskylduvænn klúbbur
og ýmsir aðilar hafa aðgang að vellinum,
þeirra á meðal Caledonia-klúbbhúsið sem er
með fastan æfingatíma þar á föstudögum.
Vegna þessarar stefnu er mikið álag á vell-
inum og þetta væri auðvitað ekki hægt nema
vera með gervigras. Það er nýjasta kynslóð
gervigrass sem er orðið svo fullkomið að mað-
ur gerir sér varla grein fyrir því að grasið er
ekki ekta,“ segir Helgi.
Ofsalega stór stund
Sækó-liðar fóru vel yfir taktík milli leikja og
vel hljóta menn að hafa sofið um nóttina því
gestirnir gersigruðu heimamenn í seinni leikn-
um, 10:3. Bergþór og Helgi viðurkenna að
vísu að Skotarnir hafi hvílt einhverja leik-
menn í seinni leiknum – en það skyggði ekki
með nokkru móti á afrekið. Fyrsti sigur FC
Sækó var í höfn.
„Þetta var ofsalega stór stund og ekki
spillti völlurinn fyrir,“ segir Helgi dreyminn.
Bergþór segir ótrúlega létt hafa verið yfir
hópnum í ferðinni og menn sem alla jafna eiga
erfitt með að vakna á morgnana hafi sprottið
upp fyrir allar aldir. Klárir í slaginn. „Þetta
var heilsuefling í svo mörgum skilningi.“
Hópurinn vakti mikla athygli á götum Falk-
irk og Glasgow og margir spurðu hverjir þeir
væru og hverra erinda. Sækó-liðar voru
hvergi bangnir. „Við kynntum okk-
ur bara sem landslið geðsjúklinga
frá Íslandi – sem við sannarlega er-
um,“ segir Bergþór.
Sækó-liðar brugðu sér líka á völl-
inn, sáu stórlið Celtic vinna 1:0-
sigur á Inverness á Celtic Park í
Glasgow. Það var mikil upplifun.
Bergþór og Helgi eru á einu máli
um að ferðin hafi heppnast frábær-
lega. „Menn eru ekki komnir niður
úr skýjunum ennþá. Þetta er líka
svo miklu meira en bara fótbolti. Hjá sumum
er það eina virknin að mæta í fótbolta og það
getur verið stórt fyrir suma að fara úr húsi.
Hvað þá að fara til útlanda að spila,“ segir
Helgi og Bergþór bætir við að hópurinn muni
lifa á þessu lengi. „Þetta fótboltaverkefni okk-
ar snýst um að auka lífsgæði manna og það
hefur svo sannarlega tekist,“ segir hann.
Helgi segir ótrúlega gaman að taka þátt í
að veita mönnum svona mikla gleði. „Og þá er
ég ekki bara að tala um okkar hóp. Það fór
ekkert á milli mála að þetta gerði heilmikið
fyrir Skotana líka. Þeir höfðu mikið yndi af
því að kynnast fólki frá öðru landi og lýstu yf-
ir miklum áhuga á að sækja okkur heim í ná-
lægri framtíð. Vonandi tekst þeim að skipu-
leggja slíka ferð svo við getum launað þeim
greiðann.“
Helgi og Bergþór hugsa raunar ennþá
stærra. Þeir komust að því ytra að skoska
knattspyrnusambandið starfrækir í samvinnu
við klúbbhúsin svonefnda „geðdeild“, það er
knattspyrnudeild þar sem geðfatlaðir reyna
með sér. „Við höfum áhuga á að koma ein-
hverju sambærilegu á fót, helst í samstarfi við
KSÍ. Ef ekki deildarkeppni þá alla vega móti
sem haldið yrði reglulega,“ segir Bergþór.
Ekki nóg með það. Þeir hafa líka milliríkja-
mót í huga. Helgi spyr: „Hvers vegna höldum
við ekki Evrópumót fyrir þennan hóp notenda
hér á Íslandi?“
Já, hvers vegna ekki?
* Þettafótbolta-verkefni okk-
ar snýst um
að auka lífs-
gæði manna.
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Hugmyndin að verkefninu kom í
gegnum NsN-verkefni Hlutverka-
seturs sem Bergþór G. Böðvarsson
var að vinna í árið 2011. Honum,
ásamt starfsmanni eins búsetukjarna
velferðarsviðs Reykjavíkur, fannst
upplagt að setja á laggirnar knatt-
spyrnuhóp innan geð- og velferð-
arkerfisins. Helgi Þór Gunnarsson
kom fljótlega til liðs við hann og 21.
nóvember 2011 var fyrsti fótbolta-
tími félagsins í Íþróttahúsi fatlaðra í
Hátúni, þar sem hópurinn hefur
spilað einu sinni í viku síðan þá.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar,
Hlutverkasetur og geðsviðs LSH
stóðu til að byrja með straum af
kostnaði vegna leigu á salnum en
Íþrótta- og tómstundaráð tók síðan
við keflinu.
Átján manns mættu í fyrsta tím-
ann, fjórtán til að spila og fjórir til að sjá um hvatninguna. Allar götur síðan
hafa tímarnir verið vel sóttir en þeir standa ekki bara notendum og starfs-
mönnum geð- og velferðarsviðs opnir heldur líka öllum sem áhuga hafa á
málaflokknum. „Menn þurfa ekki að vera með geðgreiningu til að vera
gjaldgengir,“ segir Bergþór. Þannig létu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
og Stefán Eiríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs, sjá sig á æfingu daginn áður
en hópurinn fór utan til Skotlands. „Stefán hefur sýnt knattspyrnuiðkun
okkar mikinn áhuga og hafði til dæmis samband við mig rétt eftir að við
komum að utan til að spyrja hvernig okkur hefði gengið,“ segir Helgi og
bætir við að mikilvægt sé að finna fyrir slíkum stuðningi ráðamanna.
Frá sumrinu 2012 hafa æfingar líka farið fram á grasvellinum við Klepp
en Bergþór og Helgi segja hann alls ekki nógu góðan. „Völlurinn er óslétt-
ur og getur beinlínis verið hættulegur. Það er draumur okkar og margra
sem hafa komið að þessu um að komið verði upp sparkvelli við Klepp sem
hægt verði að nota allan ársins hring.“
Félagið öllum opið
Helgi Þór Gunnarsson, til hægri, ásamt
Marteini Ægissyni, stuðningsfulltrúa á
Laugarás meðferðargeðdeild LSH.
www.gilbert.is
FYRIR ERFIÐUSTU AÐSTÆÐUR
SIF BJÖRGUNARÚRIÐ
ÍSLENSKT 1000 METRA VATNSHELT OFURÚR