Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 55
Áhersla á Goldberg-tilbrigðin Víkingur segir að nýja skrifstofan sé farin að bóka sig á tónleika tímabilið 2016-17. „Nú eftir áramótin leik ég í Turku í Finn- landi enn einn nýja konsertinn sem ég þarf að læra, Píanókonsert nr. 2 eftir Liszt sem er mjög flottur og skemmtilegur. Tæknilega finnst mér hann vera erfiðari en sá fyrsti, hann er dulúðugur og dimmari. Stjórnandinn er líka mjög spennandi, Rafael Payare, ein skærasta stjarnan í dag. Ég hlakka til.“ – Varla þarf að spyrja um framhaldið þar á eftir, það er greinilega þaulskipulagt. „Það er áframhaldandi vinna og ég legg áfram áherslu á Goldberg-tilbrigðin, sem ég flutti í Hörpu í fyrrasumar og nú aftur í Kanada. Ég er að fara að vinna að frekar stóru verkefni; bæði að flytja þau sem víð- ast, ég vil spila þau sem oftast því þetta verk bætir svo miklu við í hvert sinn sem ég flyt það. Mér finnst ég læra eitthvað nýtt á hverjum tónleikum; maður getur ekki bara æft þessa 70 mínútna fantasíu heima í stofu, það þarf að gerast með áheyrendum, en mig langar síðan að taka verkið lengra og finna nýjar leiðir í útgáfumálum, finna nýjar leiðir fyrir áheyrendur til að nálgast verkið með aðstoð tækninnar. Ég er að skoða alls konar möguleika í því samhengi. Ég er svo heppinn að ég mun geta einbeitt mér nokkuð að þessu undir vorið og ég hlakka mikið til. Þá mun ég líka geta æft verk sem ég er ekki að fara að flytja alveg strax, ég hef saknað þess að undanförnu að hafa ekki tíma fyrir það. Mig langar til dæmis mjög að spila Mozart, það hef ég ekki gert allt of lengi.“ Tónlistarskólum blæðir út Talið berst að Íslandi þar sem Víkingur hef- ur áhyggjur af verkfalli tónlistarkennara og hefur auk þess gagnrýnt borgaryfirvöld í Reykjavík fyrir framgang þeirra í málum tónlistarskólanna. „Ég skil ekki viðhorf borgarstjórnarmeiri- hlutans í Reykjavík til tónlistarskólanna, svo ég segi það nú bara beint út. Ég veit að í borgarstjórn er margt gott fólk og tónelskt, en það virðist samt hafa lítinn sem engan áhuga á að byggja upp og sinna tónlistar- skólum í höfuðborginni. Árið 2011 gerðu borg og ríki samkomulag sem hét því fagra nafni Samkomulag um eflingu tónlistarnáms. Það fól í sér að ríkið greiddi árlega fasta fjárhæð til að gera lengra komnum nem- endum kleift að stunda nám utan síns sveit- arfélags, yfirleitt í Reykjavík. Og í framhald- inu stóð til að leggja fram nýtt frumvarp á Alþingi um tónlistarnám. Það var aldrei gert, sem hefur reynst dýrkeypt. Reykjavík hefur síðan verið eina sveitarfélagið sem neitar að greiða krónu í kennslukostnað nemenda á framhaldsstigi í hljóðfæraleik, og mið- og framhaldsstigi í söng. Borgin túlkar sam- komulagið einhliða sem svo að ríkið eigi að sjá um þennan kostnað þótt landslög kveði skýrt á um annað. Þeim tónlistarskólum borgarinnar sem sinna lengra komnum nem- endum blæðir því út, þeir eru margir tækni- lega gjaldþrota í dag og um hver mánaðamót ríkir óvissa um hvort hægt verði að greiða laun kennara. Skólarnir hafa neyðst til að nota hluta skólagjalda til að borga laun, en skólagjöld eiga samkvæmt lögum að fara í rekstr- arkostnað og hljóðfærakost. Skólagjöldin eru auk þess himinhá, tæpar þrjú hundruð þús- und krónur fyrir lengst komna nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík svo dæmi sé tekið.“ Vonandi sjá borgaryfirvöld ljósið „Ég hef áhyggjur af því að tónlistarnám sé í auknum mæli að verða nám fyrir börn ríkra, að börn úr efnaminni fjölskyldum eigi ekki kost á að stunda tónlistarnám. Þetta hefur reyndar verið sýnt fram á og er sorgleg þró- un. Eins hefur Reykjavíkurborg lítið sem ekkert byggt upp aðstöðu fyrir tónlistar- skólana undanfarna áratugi, enn er til dæmis kennt á hljóðfæri í Tónlistarskólanum í Reykjavík sem hugsuð voru til bráðabirgða á 7. áratug síðustu aldar, kennslustofurnar eru of fáar og ekki nógu vel hljóðeinangraðar. Mér verður stundum hugsað til nýtilkom- innar velgengni íslenska landsliðsins í fót- bolta, sem réttilega er tengd við góða og markvissa uppbyggingu á æfingaaðstöðu undanfarin 25 ár. Við verðum að byggja upp tónlistarskólana í Reykjavík á sama hátt og skólagjöld verða hreinlega að lækka. Von- andi sjá borgaryfirvöld brátt ljósið. Og von- andi sjá viðsemjendur tónlistarkennara í verkfalli það einnig og samþykkja að greiða þeim sambærileg laun og aðrir kennarar fá, og krefjast ekki á móti að skólaárið verði stytt enn meir en þegar er og að hljóðfæra- kennsla fari í auknum mæli fram í hóptím- um. Það væri stórt skref aftur á bak,“ segir Víkingur Heiðar. Morgunblaðið/Einar Falur * Það er erfiðast íupphafi þegarmaður þarf að gera allt í fyrsta sinn, alltaf vera að læra ný verk, debútera, en ég þrífst ágætlega undir pressu. 23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 55 Útúrdúr, fræðandi og bráð- skemmtilegir sjónvarpsþættir Víkings Heiðars og Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur mannfræðings, slógu í gegn þegar þeir voru sýndir í rík- issjónvarpinu í fyrravetur. Fimm þættir voru sýndir og segir Víkingur að aðrir fimm verði sýndir í vetur, sá fyrsti sunnudagskvöldið 28. desem- ber. „Efnistökin eru svipuð og í fyrri þáttaröðinni en við þurft- um að taka aftur upp hluta af efninu í sumar og haust, því það var orðið of langt síðan við tókum sumt af þessu upp. Svo margt hafði gerst í millitíð- inni,“ segir hann. „En ég er mjög spenntur fyr- ir þessum þáttum og ánægðari með þessa seinni röð en þá fyrri. Nú erum við komin með meiri reynslu en þegar við byrjuðum. Hver þáttur hefur sitt þema. Einn fjallar um „gesamtkunstverk“, samruna listforma, og margir skemmtilegir listamenn koma fram í honum. Í öðrum er Vetrarferð Schuberts tekin fyrir, við Kristinn Sigmundsson erum þar á opinni æfingu að fjalla um verkið. Í enn einum þætti fjöllum við um skapandi hlutverk flytjandans í klassískri tónlist og hvað þeir geta verið ólíkir. Sá þáttur er í raun um túlkanir. Þetta hefur verið langt ferli og það tekur fáránlega mikinn tíma að gera hvern þátt. Ég veit ekki hvort ég hefði fallist á að gera tíu þætti hefði ég vitað hvað þetta er mikil vinna en ég er ánægður með útkomuna,“ segir Víkingur Heiðar. Útúrdúr aftur á skjáinn um jólin Víkingur Heiðar og Halla Oddný Magnúsdóttir birtast aft- ur á skjám landsmanna í nýrri þáttaröð af Útúrdúr. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.