Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2014, Blaðsíða 25
23.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 B ergþór Philip Pálsson spilar amerískan fótbolta með Einherjum, þar sem hann spilar stöðu liðs- stjórnanda (e. quarterback) og hann er jafn- framt varaformaður félagsins. Leikur í Ís- landsmóti Einherja í amerískum fótbolta fór fram í Kórnum á föstudagskvöld en hann var sá fyrsti í þriggja leikja rimmu. Næsti leikur verður í lok jan- úar en allar upplýsingar um leikina eru á fésbók- arsíðu Einherja. Íþróttagrein Amerískur fótbolti. Hversu oft æfir þú í viku? Ég æfi amerískan fótbolta tvisvar í viku, lyfti þrisvar í viku og fer í hrað- aþjálfun einu sinni í viku hjá Andra Frey í Sporthúsinu. Hann er rosalega öflugur einkaþjálfari. Hvenær kynntistu íþróttinni? Ég kynntist íþróttinni þegar ég var um það bil tólf ára þeg- ar pabbi vinar míns var að horfa á íþróttina og sagði okkur að hann hefði spilað hana þegar hann var yngri. Ég varð strax mjög áhugasamur og bað for- eldra mína um bolta. Ég tók boltann í skólann og kynnti bekkjarfélaga mína fyrir leiknum. Við spiluðum í öllum frí- mínútum og ég kolféll fyrir íþróttinni. Ég fann síðan lítið lið hérna á Íslandi og byrjaði að æfa með þeim. Ég hef æft með þeim alveg síðan fyrir utan eitt ár sem ég spilaði í skiptinámi í Kaliforníu. Hver er lykillinn að góðum árangri? Að vilja ná árangri í þinni íþrótt er ekki nóg, það er bara löngun. Þú verður að vita hvað þú vilt og skilja af hverju þú ert að gera það. Hvernig er best að koma sér af stað? Finna einhvern drifkraft. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Finna eitthvað sem þú hefur áhuga á og komast í góða rút- ínu. Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí? Ég er ómögulegur þegar ég fer í frí. Þegar ég er í fríi er engin rútína og þá fer allt í klessu. Ég reyni bara að fara sem minnst í frí. Ertu almennt meðvitaður um mataræðið? Já, ég hugsa mikið um mataræði. Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Ég borða mikið af hrísgrjónum og kartöflum og öðrum flóknum kol- vetnum. Serrano er uppáhaldsskyndibitinn minn. Hvaða óhollusta freistar þín? Ef ég sé dökkt súkkulaði á ég mjög erfitt með að labba í burtu. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mat- aræðið? Ef maður heldur sig frá sykri í ákveðið langan tíma hættir mann að langa í hann. Svo er það bara að komast í góða rútínu og þá ertu í góðum gír. Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig? Eftir góða hreyfingu líður mér vel. Ef ég er ekki búinn að hreyfa mig lengi líður mér ömurlega. Hver eru algeng mistök hjá fólki við æfingar? Að byrja of grimmt og gef- ast fljótt upp. Hvað heillar þig við amerískan fót- bolta? Það heillar mig að þetta er íþrótt þar sem þú getur notað allan þinn styrk nánast hvernig sem þú vilt. Þetta er ekki eins og í körfu eða fótbolta þar sem þú mátt varla snerta aðstæðinginn. Ég fíla líka hvað þessi leikur hentar breiðum hópi. Þú getur verið lítill og snöggur eða stór og sterkur. Þessi íþrótt er líka hin fullkomna liðsíþrótt. Allir þurfa að vera að hugsa það sama til að vel gangi. Er framtíðin björt fyrir amerískan fót- bolta á Íslandi? Svo lengi sem við höldum áfram að vinna í íþróttinni eins og við erum að gera núna sé ég ekkert sem veldur því að hún geti ekki orðið ein af stærstu íþróttum á landinu. Hverjar eru fyrirmyndir þínar? Fyr- irmyndir mínar eru íþróttamenn úr NFL-deildinni eins og Arian Foster, Brian Cushing og fleiri. Ég er líka mikið fyrir Tim Tebow sem er sennilega þekktasti maður deild- arinnar hérna á Íslandi. Hann er hinn fullkomni íþróttamaður og eiginlega bara hinn fullkomni maður. Hann hefur rosalegan drifkraft og er alltaf með rétta viðhorfið. KEMPA VIKUNNAR BERGÞÓR PHILIP PÁLSSON „Ég er ómögulegur þegar ég fer í frí“ Á vef Embættis landslæknis er hvatt til vatnsdrykkju. „Kalt og gott vatn ætti að vera alls staðar aðgengilegt þar sem börn og fullorðnir eru við leik og störf. Stuðlum að betri heilsu og hollustu með því að drekka vatn – hollasta svaladrykkinn,“ segir á landlaeknir.is. Drekkum vatn*Vertu hamingjusamur með því að gera aðrahamingjusama. Voltaire Óbeinar reykingar og mengun frá umferð tengjast mögulega hærri líkamsþyngdarstuðli hjá börnum og ung- lingum, samkvæmt nýrri rannsókn. Vísindamenn fylgdust með 3.318 börnum frá tólf bæjum í suðurhluta Kali- forníu í Bandaríkjunum frá um 10 ára aldri þangað til þau náðu 18 ára aldri. Spurningalistar sem lagðir voru fyrir foreldra þeirra um reykingar voru notaðir til grundvallar sem og mælingar á mengunarefnum í umhverfinu. Rann- sóknin, var birt í Environmental Health Perspectives, tók tillit til margra annarra þátta eins og astma, hreyf- ingu, menntun og tekna foreldranna og opinna svæða í nágrenninu. Líkamsþyngdarstuðullinn var 0,8 stigum hærri hjá börnum sem bjuggu við mengun, 0,85 stigum hærri hjá þeim sem bjuggu við reykingar og 2,15 stigum hærri hjá börnum sem þurftu að þola hvorttveggja. Líkamsþyngd- arstuðull á bilinu 18,5-24,9 telst venjulegur og ofþyngd ef hann er hærri en 25. Höfundur rannsóknarinnar segir áhugavert að rann- saka þessa þætti nánar og greinilegt sé að málið sé flókn- ara en svo að offita tengist aðeins kaloríum sem fara inn og út. „Það er ekki sagan öll,“ sagði Rob McConnell. Reykingar og mengun tengjast þyngd Óbeinar reykingar virðast hafa áhrif á líkamsþyngd barna. AFP Myndin hér fyrir ofan er tekin á stangarstökksæfingu hjá ÍR fyrir um hálfri öld þegar Valbjörn Þorláksson var í fararbroddi í íþróttinni hér- lendis. Víst er að aðstæður til stang- arstökksiðkunar hafa breyst mikið á síðustu áratugum og líklegt að fæstir myndu sætta sig við þennan aðbún- að í dag. Í Morgunblaðinu þriðjudaginn 25. júlí 1961 er greint frá góðum ár- angri Valbjörns og hann sagður „maður meistaramótsins“. „Val- björn vann það frækilega afrek að stökkva 4,50 m í stangarstökki og setja með því glæsilegt Íslandsmet. Hann átti þrjár ágætar tilraunir við 4,60 m. Þetta sýnir að Valbjörn er einn líklegasti Norðurlandabúinn nú til að bæta hið ágæta Norður- landamet Finnans Landströms, 4,57 m. Næsta stóra tækifæri hans verð- ur landskeppnin við Austur- Þjóðverja en þá keppir sem gestur Evrópumethafinn í greininni, Preussger, A-Þýzkalandi.“ Valbjörn keppti í tugþraut og stangarstökki á sumarólympíuleik- unum 1960, 1964 og 1968. Bestu úrslit hans á ólympíuleikum voru þegar hann lenti í 12. sæti í tugþraut árið 1964. Hann lenti í 26. sæti í sömu íþrótt 1968. Hann var kosinn íþróttamaður ársins tvisvar, 1959 og 1965, en seinna árið varð hann Norður- landameistari í tugþraut. Síðar varð hann heimsmeistari í flokki öldunga. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Valbjörn var „maður meistaramótsins“ Morgunblaðið/Eggert 100% hreinar Eggjahvítur Þú þekkir okkur á hananum Án allra aukaefna! Gerilsneyddu eggjahvíturnar frá Nesbú eru frábær valkostur í jólabaksturinn. Hugsaðu um hollustuna, veldu eggjahvítur frá Nesbú. Ís le ns k framleiðsla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.