Fréttablaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 4
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 DÓMSMÁL Slitastjórn Glitnis hefur höfð- að skaðabótamál á hendur fimm manns vegna láns sem huldufélaginu Stími var veitt í janúar 2008. Þrjú hinna stefndu eru fyrrverandi starfsmenn Glitnis, þau Lárus Welding, sem var bankastjóri, Guðmundur Hjalta- son, sem var fram- kvæmdastjóri fyrir- tækjasviðs bankans, og Guðný Sigurðar- dóttir, sem var við- skiptastjóri. Þau sátu í áhættu- nefnd bankans og eru ákærð fyrir að hafa tekið ákvörðunina um að veita lánið í janúar 2008, jafnvel þótt fyrir hafi legið að Stím væri á þeim tíma ógjaldfært og hefði fyrir löngu átt að vera gefið upp til gjaldþrotaskipta. Lánið var 725 milljónir og var komið í 833 milljónir í nóvember 2008. Þá höfðu hins vegar rúmar 466 milljónir verið greiddar inn á lánið og það eru eftirstöðvarnar sem stefnt er vegna: 366 milljónirnar. Hinir tveir sem slitastjórnin stefnir eru þeir sem sátu í stjórn Stíms: útgerðar maðurinn Jakob Valgeir Flosa- son frá Bolungarvík og Þórleifur Stefán Björnsson, sem var forstöðumaður fjár- stýringar Saga Capital og prókúruhafi Stíms. Þeim er stefnt fyrir að hafa ekki gefið félagið upp til gjaldþrotaskipta eins og lög kveða á um að þeir skuli gera þegar það er orðið ógjaldfært. Þar mun reyna á nýlegt ákvæði gjald- þrotaskiptalaganna, aðra málsgrein 64. greinar þeirra, sem kveður á um að stjórnarmenn beri persónulega ábyrgð á því tjóni sem það olli kröfuhöfum að setja félagið of seint í þrot. Aldrei hefur reynt á ákvæðið fyrir dómi áður. Félagið Stím var mikið til umfjöll- unar skömmu eftir bankahrun, þegar í ljós kom að það hafði fengið tuttugu milljarða að láni frá bankanum til að kaupa hlutabréf í honum. Nýverið höfðaði slitastjórnin annað bótamál tengt Stími, á hendur Jóhann- esi Baldurssyni og Elmari Svavars- syni, fyrrverandi starfsmönnum Glitn- is. Þeir eru sakaðir um að hafa flutt ábyrgðir frá stöndugum félögum yfir á Stím og Gnúp, sem voru þá gjaldþrota. Mál tengd Stími hafa lengi verið til rannsóknar hjá sérstökum saksókn- ara en engar ákærur hafa verið gefnar út vegna þess enn. stigur@frettabladid.is 04.05.2013 ➜ 10.05.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is JARÐSKJÁLFTAR allt að 4,2 á Richter urðu við Fuglaskerin á Reykjaneshrygg á fi mmtudag. 4,2 Saksókn- ari vill að Bakkabróðir- inn Lýður Guðmunds- son sitji í fangelsi í 18 mánuði. 18 MÁNUÐIR ARIEL CASTRO hélt þremur konum föngnum í tíu ár á heimili sínu í Cleveland í Bandaríkjunum. Hann er talinn hafa valdið því að ein þeirra missti fóstur fi mm sinnum. ALEX FERGUSON hætti í vikunni sem stjóri Manchester United eft ir 26 ár í starfi . Hann vann 13 Englandsmeistaratitla með liðinu. Á sama tíma stýrðu 24 menn Real Madrid. 713.000 KR. Íslenskur maður þurft i að borga 713.000 króna sekt í ríkissjóð fyrir að borga ekki toll af 2,8 milljóna króna úri. Úrið var gert upptækt. Lýðræðisvaktina vantaði 67 atkvæði til að ná 2,5 prósenta fylgi, sem hefði tryggt henni 10 milljóna ríkis- styrk á kjörtímabilinu. 738 UM 50 íslenskir Eurovision- aðdáendur verða í Malmö Arena 16. maí þegar Eyþór Ingi stígur á svið fyrir Íslands hönd. Enginn var oft ar strikað-ur út af framboðslistum í alþingiskosningunum en Bjarni Benedikts- son, 738 sinnum. HALLORMSSTAÐUR Laugin stenst ekki kröfur Sundlaugin á Hallormsstað uppfylli ekki reglur um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Bæjarstjórn Fljótsdals- héraðs hefur því ákveðið að gerð verði „úttektar- og ástandsskýrsla“ fyrir sundlaugina. EGILSSTAÐIR Hávaðasamir stóla- flutningar Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hyggst skipta út stólum í félagsþjónustunni Hlymsdölum til að stöðva hávaða sem skapast þegar borðum og stólum er ýtt til. Er þetta gert í kjölfar ítrekaðra beiðna húsfélagsins í byggingunni. Í bótamál við fimm manns vegna Stíms Slitastjórn Glitnis hefur stefnt fimm manns vegna láns sem veitt var til félagsins Stíms í janúar 2008. Fólkið er krafið um 366 milljónir króna í skaðabætur. Í málinu mun í fyrsta sinn reyna á nýlegt ákvæði í gjaldþrotalögunum fyrir dómstólum. JAKOB VALGEIR FLOSASON LÁRUS WELD- ING Er einn þeirra þriggja sem tóku ákvörðun um lánveitinguna. milljóna lánið var veitt í janáur 2008. Eft irstöðvarnar af því námu 366 milljónum í nóvember sama ár. 725 Veðurspá Mánudagur 8-15 m/s NV-til, annars hægari. VÆTUSÖM HELGI Rigning með köflum eða skúrir um allt land um helgina. Einkum á V-helmingi landsins í dag en N-til á morgun. Fremur hægur vindur í dag og á morgun en hvessir annað kvöld. Hiti 2-10 stig. 5° 3 m/s 7° 5 m/s 5° 4 m/s 6° 6 m/s Á morgun Fremur hægur vindur. Gildistími korta er um hádegi 9° 5° 8° 4° 4° Alicante Basel Berlín 22° 22° 20° Billund Frankfurt Friedrichshafen 15° 19° 16° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 14° 14° 24° London Mallorca New York 12° 24° 22° Orlando Ósló París 31° 14° 14° San Francisco Stokkhólmur 21° 16° 6° 3 m/s 8° 5 m/s 7° 3 m/s 7° 7 m/s 10° 3 m/s 7° 4 m/s 4° 3 m/s 7° 4° 6° 7° 4° Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður DÓMSMÁL Umræðufundur um Guðmundar- og Geirfinns málið mun fara fram í Þjóðleikhús- kjallaranum klukkan 21 annað kvöld í tengslum við sýningu leik- hópsins Lab Loka á leikverkinu Hvörf. Umfjöllunarefni leikverks- ins er þetta umdeildasta sakamál Íslandssögunnar. Í pallborði verða lögfræðingarn- ir Ragnar Aðalsteinsson og Brynj- ar Níelsson og fjölmiðlamennirnir Sigursteinn Másson og Jón Daní- elsson auk Tryggva Hübner. - mþl Umræður í kjölfar sýningar: Rætt um Geir- finnsmálið FÓLK Guðni Páll Viktorsson, sem rær þessa dagana hringinn í kringum landið, kom til lands í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Hann hefur nú róið í tíu daga en í gær reri hann alls 60 kílómetra. „Þetta hefur gengið vel og ég er bara brattur. Miðað við veðurfar er ég eiginlega á undan áætlun,“ segir Guðni Páll, sem tekur sér eins dags frí frá róðrinum í dag og fer ekki í felur með það að hvíldin sé kærkomin. Hann er þó ekki farinn að sjá eftir því að hafa farið í ferða- lagið. „Ég er mjög ánægður með þessa ákvörðun enda er þetta ótrú- lega skemmtilegt. Ég vissi að þetta yrði ekkert auðvelt en það skiptir mestu að ég er vel undirbúinn,“ segir Guðni. Meðan á ferðalaginu stendur safnar Guðni Páll áheitum sem munu renna til Samhjálpar. Fyrir vikið ber róðurinn nafnið Lífróður Sam- hjálpar 2013. - mþl Guðni Páll Viktorsson rær í kringum Ísland: Tíu daga róður að baki VIÐ HEIMAEY Guðna Páli var vel fagnað þegar hann kom til lands í Vestmanna- eyjum í gærkvöldi. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.