Fréttablaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 95
LAUGARDAGUR 11. maí 2013 | MENNING | 63
Eins og nafnið gefur til kynna er Eurovision-söngva-
keppnin haldin um alla Evrópu. Þessa dagana er ég
stödd á evrópskri ráðstefnu í Manchester og ákvað
að nýta tækifærið til að spyrja ráðstefnugesti alls
staðar að úr Evrópu um þeirra hefðir og áhuga á
keppninni. Hér er það sem þrír þeirra höfðu að
segja.
Eurovision um
alla Evrópu
ROB COX– BRETLAND
Ég horfi alltaf á Eurovision og elska að
horfa á lögin. Ég er ekki jafn hrifinn
af því að fylgjast með stigagjöfinni því
Bretland fær aldrei nein stig. Við send-
um Bonnie Tyler til leiks í ár og hún er
alveg hræðileg. Það er ekkert vit í sviðs-
framkomunni hennar heldur er hún eins
og fyllibytta á sviðinu og hreyfingarnar
ekki einu sinni í takt við lagið. Það kæmi
mér ekkert á óvart ef í ljós kæmi að hún
væri alltaf full á sviðinu. Ég veit að við
eigum að hugsa vel um þá sem eru okkur
eldri, en það er ekki þar með sagt að við
eigum að rétta þeim míkrófón og skella þeim upp á svið, í fötum sem
ættu að hafa verið bönnuð fyrir fjölda ára síðan.
Ég hef aldrei farið í Eurovision-partý en konan mín er að fara núna
í ár. Mér er samt ekki boðið svo ég verð bara heima og held partý með
sjálfum mér.
Sem betur fer þá kann ég ekkert af íslensku Eurovision-lögunum, enda
ekki mikill aðdáandi íslenskrar tónlistar miðað við það sem ég hef heyrt
[skírskotun í afar takmarkaða sönghæfileika undirritaðrar]. Ég er heldur
ekki hrifinn af íslenskri eldfjallaösku.
ÉG Á LÍF: Mér verður eiginlega bara óglatt af þessu lagi en hippinn sem syngur
það er góður. Ég spái ykkur 22. sætinu og með smá heppni gæti Bretland fylgt
þar á eftir í því 23.
IULIA PUSTOVOIT– ÚKRAÍNA
Eftir að Ruslana vann keppnina árið
2004 þá varð hún mun vinsælli í
Úkraínu, fyrir það horfði aldrei neinn
á hana. Ég held að ég hafi horft á Euro-
vision þrisvar sinnum hingað til, en
það eru aldrei nein partý eða neitt svo-
leiðis. Núna er áhuginn reyndar farinn
að minnka til muna meðal landsmanna
því okkur hefur ekki gengið svo vel að
undanförnu. Ég held samt að stærst-
ur hluti horfi enn þá, þó ekki sé nema
með öðru auganu, en svo kjósa flest-
ir samt bara nágrannalöndin sem við
erum í sambandi við.
Ég veit ekkert um úkraínska framlagið í ár, né nokkuð annað. Ég þekki
heldur engin íslensk lög. Ég man samt eftir einu Eurovision-lagi og það
var Norðmaðurinn sem spilaði á fiðlu fyrir nokkrum árum. [Hér á Iulia
við Alexander Rybak sem vann fyrir hönd Noregs árið 2009 með lagið
Fairytale.]
ÉG Á LÍF: Ég elska þetta lag og sérstaklega elska ég myndbandið. Ég hef samt
ekki séð neitt af hinum lögunum í keppninni, en gef þessu 8 stig.
HEIDI SILVEN– FINNLAND
Ég horfi alltaf á Eurovision og allir vinir
mínir. Við erum alltaf með risastórt partý
þar sem við höldum gott skriflegt yfirlit
yfir allt sem gerist og gefum hlutum ein-
kunn. Við tökum líka niður upplýsingar
eins og fjölda vindvéla og kjóla sem eru
alltof stuttir og alls kyns þannig tölfræði.
Marry Me er framlagið okkar í ár og
ég algjörlega elska það en Krista Sig-
fried syngur þar um að hjónabönd sam-
kynhneigðra ættu að vera leyfð. Lagið er
líka svo ótrúlega hresst og skemmtilegt.
Krista var ekkert svo fræg áður en hún
vann Eurovision en nú þekkja hana allir. Það er yfirleitt þannig í Finn-
landi að allir þekkja Eurovision-lagið og flytjandann nokkuð vel, allavega
núorðið. Keppnin varð miklu vinsælli meðal Finna eftir að Lordi vann
árið 2006. Við bjuggumst aldrei við að við myndum ná að vinna fram
að því.
Ég þekki ekkert íslenskt lag, en ég er mikill Abba-aðdáandi svo ég verð
að segja að Waterloo sé uppáhaldslagið mitt úr Eurovision.
ÉG Á LÍF: Ballöður vinna aldrei keppnina en mér finnst það mjög flott. Það fær
7 stig. Myndbandið er samt mjög flott og ég myndi gefa því 10 stig.
tinnaros@frettabladid.is
TINNA
TÆKLAR
EUROVISION
7 dagar í aðalkeppni Eurovision í Malmö