Fréttablaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 52
| ATVINNA |
Kerhólsskóli, leik- og grunnskóli
Starfsmaður óskast í stöðu aðstoðarleik-
skólastjóra frá og með næsta skólaári.
Kerhólsskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með heildar-
fjöldann 50 nemendur á aldrinum 1. árs upp í 8. bekk.
Starfshlutfall er 100% og umsækjandi þarf að hafa
leikskólakennaramenntun.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila
berist til skólastjóra ekki síðar en miðvikudaginn 29. maí nk.
Nánari upplýsingar gefur Sigmar Ólafsson skólastjóri í síma 482-2617,
863-0463 eða sigmar@kerholsskoli.is;
Heimasíða skólans: http:/www.kerholsskoli.is
GRÍMSNES- OG
GRAFNINGSHREPPUR
Leikskólinn Krakkaborg
Flóahreppi
Óskar eftir að ráða deildarstjóra og matráð.
Leikskólinn Krakkaborg er 3ja deilda leikskóli
sem staðsettur er 8 km austur af Selfossi.
Starfað er eftir hugmyndafræði John Dewey.
Óskað er eftir deildarstjóra í 100% starf og matráði í 100%
starf frá og með 6. ágúst 2013. Óskað er eftir jákvæðum,
skapandi og metnaðarfullum einstaklingum með góða
hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknafrestur er til 21. maí 2013.
Launakjör deildastjóra eru í samræmi við kjarasamningu
Launanefndar sveitafélaga og Kennarasambands Íslands
vegna félags leikskólakennara.
Launakjör matráðs er samkvæmt kjarasamningum Foss.
Hægt er að sækja um á heimasíðu leikskólans
www.leikskolinn.is/krakkaborg undir flipanum Um leik-
skólann – starfsumsóknir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Karen Viðarsdóttir
leikskólastjóri í síma 482-3085 eða með því að senda fyrir-
spurnir á karen@floahreppur.is.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar
auglýsir stöðu lögfræðings lausa til umsóknar.
Skóla- og frístundasvið
Leitað er eftir metnaðarfullum og vandvirkum einstaklingi til að starfa að lögfræðilegum verkefnum á sviðinu.
Næsti yfirmaður er mannauðsstjóri sviðsins.
Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla, frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar, starfsemi
Námsflokka Reykjavíkur, skólasafnamiðstöð og skólahljómsveitir. Mannauðsþjónusta sviðsins vinnur með stjórnendum
stofnana sviðsins og hefur það að leiðarljósi að stuðla að því að allir starfsmenn sviðsins búi við áhugavert, hvetjandi og
öruggt starfsumhverfi.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Með umsókn þarf að fylgja yfirliti yfir nám og fyrri störf auk afrits af prófskírteini frá háskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 26.maí 2013
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst 2013.
Nánari upplýsingar veitir Valgerður Janusdóttir, mannauðsstjóri, valgerdur.janusdottir@reykjavik.is eða í síma 411-1111
Helstu verkefni:
• Lögfræðileg ráðgjöf, upplýsingagjöf og þjónusta við starfs-
menn á skrifstofu skóla- og frístundasviðs og stjórnendur
leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva varðandi
vinnurétt, stjórnsýslu og lagaumhverfi starfseminnar.
• Frumkvæði varðandi þróun í stjórnsýslu sviðsins.
• Gerð umsagna um lagafrumvörp sem heyra undir skóla- og
frístundasvið.
• Fræðsla fyrir stjórnendur og starfsmenn um lög og
reglugerðir er varða starfsemi sviðsins.
Hæfniskröfur:
• Embættispróf eða meistaragráða í lögfræði.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu æskileg.
• Þekking og reynsla af vinnurétti æskileg.
• Leiðtogahæfileikar, skipulagshæfni og frumkvæði.
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að koma fram og tjá sig í ræðu og rituðu máli.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
Markmið starfsnámsins er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfsferil sinn og vill afla sér reynslu, færi á að kynnast
því fjölbreytta starfi sem unnið er í alþjóðlegri markaðssetningu hjá Íslandsstofu. Um er að ræða fimm mánaða tímabil
frá ágúst og fram í desember 2013. Umsóknum skal skila inn rafrænt á islandsstofa@islandsstofa.is fyrir 27. maí 2013.
HÆFNISKRÖFUR
• Umsækjandi þarf að vera í BS/BA eða meistaranámi í grein sem tengist störfum markaðssóknar Íslandsstofu
(ferðaþjónusta, markaðssetning, almannatengsl, alþjóðamál o.s.frv.)
• Góð kunnátta í ensku, íslensku og einu Norðurlandamáli. Kunnátta í frönsku eða þýsku æskileg.
• Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
• Góð þekking á Íslandi
• Fyrirtaks námsferill og einkunnir
• Reynsla af fjölmiðlum eða markaðssetningu æskileg
Nánari upplýsingar veitir Líney Arnórsdóttir, verkefnisstjóri
liney@islandsstofa.is, og Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður,
markaðssóknar ferðaþjónustu og skapandi greina, inga@islandsstofa.is. Sundagarðar 2 Sími 511 4000 www.islandsstofa.is
11. maí 2013 LAUGARDAGUR6