Fréttablaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 110
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 78
„Við settumst niður og kokkuðum
upp ljómandi skemmtilegan kar-
akter sem Jón mun leika,“ segir
Sigurjón Kjartansson.
Borgarstjórinn Jón Gnarr leik-
ur í grínatriðum sem voru tekin
upp á skemmtistaðnum Harlem
í gær og verða sýnd í söfnunar-
þætti Landsbjargar í Sjónvarp-
inu 31. maí. Sigurjón leikur ekki
í atriðunum en kom að þeim sem
handritshöfundur.
Þetta verður í fyrsta sinn
sem þeir Tvíhöfðabræður vinna
saman að nýju grínefni síðan
þeir störfuðu sem útvarpsmenn
fyrir nokkrum árum, áður en
Jón varð borgarstjóri Reykja-
víkur. „En maskínan fer í gang
þegar við setjumst niður saman.
Okkur hefur ávallt reynst mjög
auðvelt að kokka eitthvað upp og
við erum fljótir að því,“ segir Sig-
urjón.
Hann viðurkennir að erfitt hafi
verið að finna tíma til að vinna
með borgarstjóranum.
„Mann hefði ekki grun-
að það á árum áður að
maður hefði þurft að
glíma við ritara til
að hafa samband við
hann en það er eitt-
hvað mjög rétt við
það. Við töluðum oft
á þessum nótum einu
sinni að hann þyrfti eig-
inlega að hafa einn svo-
leiðis alltaf við höndina.
Núna er hann umkringd-
ur slíku fólki. Það er allt
ofsalega vel skipulagt hjá
honum og ég er afskaplega
glaður með það. Það er
þungu fargi af mér létt því
ég sá alltaf um bókanirnar
og annað slíkt í gamla daga.“
Spurður hvort þeir ætli að
semja eitthvað meira saman segir
Sigurjón: „Örugglega einhvern
tímann. Hann verður ekki borgar-
stjóri að eilífu. Við erum skapandi
menn og það er ekki óeðlilegt að
við leiðum saman hesta okkar
aftur.“ freyr@frettabladid.is
Tvíhöfðabræður
búa til glænýtt grín
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson sömdu grínatriði fyrir söfnunarþátt
Landsbjargar sem verður sýndur í Sjónvarpinu í lok þessa mánaðar.
Spurður út í íslenskt grín segir Sigurjón að ágætis
menn hafi verið að koma fram á sjónarsviðið. „Ég
er á því að Hugleikur [Dagsson] beri höfuð og
herðar núna yfir aðra íslenska grínista. En það eru
dásamlegir hlutir sem maður hefur séð koma frá
Steinda og fleiri góðum mönnum.“
Hugleikur bestur á Íslandi
Á TÖKUSTAÐ Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson sömdu grínatriði fyrir
söfnunarþátt Landsbjargar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég er bara venjuleg stelpa sem
hefur gaman að því að elda,“
segir áhugakokkurinn, neminn
og bloggarinn Eva Laufey Kjaran
Hermanns dóttir en hún undirbýr
nú útgáfu sinnar fyrstu matreiðslu-
bókar.
Eva Laufey hefur haldið úti
matar blogginu evalaufeykjaran.
com í þrjú ár við góðar undirtekt-
ir en segir drauminn um bók hafa
blundað í sér lengi. Í byrjun árs var
hún því mætt upp í Sölku útgáfu
með hugmynd að bók og skrifaði svo
undir útgáfusamning fyrir tveim-
ur vikum síðan. Bókin á að koma
út þann 1. september. „Þetta var
lengi í bígerð og það er miklu erfið-
ara en ég gerði mér grein fyrir að
skrifa bók. Ég tek allar myndirnar
sjálf svo ég verð að elda og mynda
í sumar.“
Eva Laufey stefnir á að reyna
að fanga stemminguna í kring-
um matargerð í bókinni en segir
hana eiga að höfða til allra. „Bókin
Eva Laufey gerir bók úr blogginu
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir undirbýr útgáfu sinnar fyrstu matreiðslubókar.
BÝR TIL BÓK
Matreiðslu-
bloggarinn Eva
Laufey Kjaran
Hermanns dóttir
gefur út sína
fyrstu bók í haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
➜ Uppáhaldsmatur Evu Laufeyjar er ítalskar
kjötbollur með spagettí og parmesanosti.
6.802
líkar við matarblogg Evu
Laufeyjar á Facebook.
„Ég þykist ekki
vera fátækur
bóndi, eða
meðalmaður.
En þessi tala er
brjálæði.“
LEIKSTJÓRINN OG
HANDRITSHÖF-
UNDURINN JOSH
WHEDON VÍSAR ÞVÍ
Á BUG AÐ HANN FÁI
12 MILLJARÐA FYRIR
AÐ LEIKSTÝRA NÝRRI
KVIKMYND UM
OFURHETJURNAR Í
AVENGERS.
ORÐINN PABBI
Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen og
sambýliskona hans, Guðrún Harðar-
dóttir, eignuðust sitt fyrsta barn í byrjun
vikunnar. Parið eignaðist litla stúlku
og hefur heillaóskum rignt yfir hina
nýbökuðu foreldra frá fæðingu hennar.
Davíð vakti fyrst athygli sumarið 2009
með stuðlaginu Supertime.
Fleiri vinsæl lög fylgdu í
kjölfarið á borð við Young
Boy og Lover in the Dark.
Lagið Úlfur úlfur, sem
hann söng ásamt
Bubba Morthens,
fór á toppinn á
vinsældalista
Rásar 2 síðasta
sumar. - sm
DÚETTINN BAD DAYS
Söng- og leikkonan Bryndís Ásmunds-
dóttir er komin á fullt aftur barn-
eignarleyfið, en hún eignaðist son með
hestamanninum Fjölni Þorgeirssyni í
október á síðasta ári. Hún er
annar helmingur dúettsins
Bad Days ásamt Eyvindi
Karlssyni, sem er sonur
Karls Ágústs Úlfssonar
leikara. Þau tróðu upp
á Rosenberg í byrjun
vikunnar og þótti
takast vel til.
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
11.–12. maí
kopavogsdagar.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á:
kopavogur.is
Myndlistarveisla
á kópavogsdögum
Í Hamraborginni,
Auðbrekku og Ger
ðarsafni
Lokahelgi Kópavogsdaga:
Samsýningar Myndlistarfélags Kópavogs
standa yfir í Hamraborg 3 og 16.
Karlakór Kópavogs syngur fyrir gesti.
Opið hús hjá listamönnum í Auðbrekku.
25 ára afmælissýning Myndlistarskóla
Kópavogs verður opnuð í Gerðarsafni
og stendur til 2. júní.
verður frábrugðin öðrum mat-
reiðslubókum þar sem ég er yngri
en flestir sem eru að gera svipað-
ar bækur og ekki lærður kokkur.
Uppskriftirnar í bókinni ættu að
vera á færi allra.“ - áp
FEÐGIN SÝNA Í BÍÓ
Stuttmyndahátíðin Shorts & Docs
hófst í Bíó Paradís á fimmtudaginn. Á
morgun verður myndin „In memori-
am?“ eftir Ómar Ragnarsson sýnd
en hún fjallar um Kárahnjúkavirkjun.
Svo skemmtileg vill til að mynd sem
Alma dóttir Ómars, leikstýrir og fram-
leiðir verður sýnd beint í kjölfarið. Sú
mynd heitir You Have to Look Good
og fjallar um
stelpu
sem
tekur þátt
í módel-
fitness.
- kh