Fréttablaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 24
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
➜ Eins og frægt er orðið fékk Eyþór Ingi í skammir í
sjóhattinn fyrir að verka karfa í myndbandinu við Ég á líf.
Hann er þó enginn landkrabbi heldur var þrjú sumur á sjó með
Gunnlaugi föður sínum frá þrettán til fimmtán ára aldurs.
Bergsteinn
Sigurðsson
bergsteinn@frettabladid.is
Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugs-son býr sig nú undir stærstu stund feril síns þegar hann stíg-ur á svið í Malmö í
Svíþjóð í næstu viku og syngur
lagið Ég á líf fyrir hundruð millj-
ónir víðs vegar um heim. Þetta er
enn ein rósin í hnappagat þessa
tæplega 24 ára gamla Dalvíkings,
sem hefur verið lengi í bransan-
um og náð lengra en flestir jafn-
aldrar hans á Íslandi.
Eyþór Ingi er fæddur á Dal-
vík 29. maí 1989, sonur hjónanna
Gunnlaugs Antonssonar og Guð-
bjargar Stefánsdóttur. Guðbjörg
minnist hans sem afar glaðværs
og meðfærilegs barns, sem var
ávallt sjálfum sér nógur og hafði
alltaf eitthvað fyrir stafni. Hann
var ekki fyrr farinn að tala eins
og hálfs árs gamall þegar hann
byrjaði að syngja og snemma kom
í ljós að hann var náttúrutalent.
„Hann hlustaði mikið á ævin-
týri og leikrit, Kardimommu-
bæinn og Dýrin í Hálsaskógi.
Hann var alltaf mjög lagviss og
ótrúlega fljótur að læra texta.“
Framan af fékk hann sitt tónlist-
arlega uppeldi hjá ömmu sinni,
sem var mikill aðdáandi Elvis
Presley og var ekki hár í loft-
inu þegar hann var byrjaður að
syngja slagara með honum.
„Hann var ekki alveg með ensk-
una á hreinu og þau gátu verið
svolítið skondin sum orðin sem
komu út úr honum,“ segir Guð-
björg og hlær. Þá tók hann ást-
fóstri við Ladda, hlustaði mikið á
plöturnar hans og náði svo góðu
valdi á karakterunum hans að
hann sigraði í eftirhermukeppn-
inni Laddanum í Rás 2 árið 2009
og steig síðar á svið með honum í
Þjóðleikhúsinu.
Liðtækur harmonikkuleikari
Sjö ára gamall byrjaði Eyþór Ingi
að læra á harmoniku, sem er eina
formlega tónlistarmenntunin sem
hann hefur hlotið, og er víst nokk-
uð liðtækur harmonikuleikari.
Hann segist þó fljótlega hafa gef-
ist upp á að reyna að lesa nótur og
einfaldlega spilað eftir eyranu. Um
tíu ára aldur fór faðir Eyþórs að
kynna fyrir honum hetjur hippa-
rokksins, Deep Purple, Led Zep-
pelin og fleiri.
„Þá varð ekki aftur snúið,“
segir Guðbjörg. „Hann varð
algjörlega heltekinn af þessari
tónlist.“
Þrettán ára lagði Eyþór Ingi
dragspilið á hilluna og tók í stað-
inn upp kassagítarinn, sem hann
kenndi sér sjálfur á. Ottó Elías-
son, æskuvinur Eyþórs, segir
að í honum hafi alltaf blundað
skemmtikraftur. Hann hafi tekið
þátt í öllum skólaleikritum og haft
mikinn áhuga á kvikmyndum.
„Við vorum að fást við að gera
stuttmyndir saman en smám
saman leiddumst við út í tónlist og
hún varð síðan algjörlega ofan á.“
Tónlistaráhugi Eyþórs fór ekki
fram hjá neinum en enginn gerði
sér í rauninni grein fyrir hversu
miklu hæfileika hann hafði fyrr á
sextánda eða sautjánda ári. Árið
2004 tók hann þátt í uppfærslu
Leikfélags Akureyrar á Óliver
og ári síðar, þegar hann var á
fyrsta ári í VMA, lék hann aðal-
hlutverkið í Jesus Christ Super-
star í uppfærslu VMA og MA.
„Það var þá sem ég áttaði mig á
hversu góður hann er,“ segir Guð-
björg. „Ég vissi ekki að hann hefði
svona ótrúlegt breitt og sterkt
raddsvið. Ég hafði alltaf haldið að
hann myndi leiðast út í leiklist en
það var þarna sem mig fór að gruna
að tónlistin yrði fyrir valinu.“
Árið 2007 vakti hann rækilega
athygli þegar hann sigraði örugg-
lega í Söngkeppni framhalds-
skólanna með kraftmiklum flutn-
ingi á Deep Purple-laginu Perfect
Stranger, sem nefndist á íslensku
Framtíð bíður. Ekki var um villst
að hér var mikið efni á ferð sem
líklegt væri að myndi láta að sér
kveða áður en langt um liði.
Stjarna er fædd
Með þennan meðbyr ákvað hann
að hætta í VMA og helga sig tón-
listinni. Hann segist ekki hafa
fundið sig í skóla þar sem hann er
lesblindur og með athyglisbrest.
Stóra tækifærið kom ári síðar
þegar Eyþór Ingi heillaði Bubba
Morthens upp úr skónum og bar
sigur úr býtum í sjónvarpskeppn-
inni Bandið hans Bubba. Þetta kom
Eyþóri endanlega á kortið. Hann
hefur haft lifibrauð af tónlistinni
allar götur síðan. Árið 2009 fengu
Stuðmenn hann til liðs við sig til
að fylla í skarð Egils Ólafsson-
ar og síðar gekk hann til liðs við
Todmobile og tók upp plötu með
þeim. Þá fór hann með stórt hlut-
verk í Rocky Horror Picture Show
og lék í Vesalingunum í Þjóðleik-
húsinu í fyrra.
Fullorðnaðist snemma
Eyþór er trúlofaður Soffíu Ósk
Guðmundsdóttur en þau hafa
Finnst hann alltaf geta gert betur
Frá því að hann sló í gegn sautján ára gamall hefur Eyþór Ingi Gunnlaugsson verið í sviðsljósinu. Velgengni á unglingsárum
þýddi að hann þurfti að fullorðnast fyrir augum þjóðarinnar en það hjálpaði honum að öðlast meiri þroska en árin segja til
um. Undir rokkaralegu yfirbragðinu er hann rólyndur fjölskyldufaðir og manna ólíklegastur til að rústa hótelherbergi.
FJÖLSKYLDAN ROKKAR Eyþóri Inga líður best í faðmi fjölskyldunnar. Hann og Soffía Ósk Guðmundsdóttir hafa verið saman í þrjú ár. Hún átti fyrir tvær dætur, Báru Katrínu og Kristínu Emmu, en síðar eignuðust þau
saman Elvu Marín. Mæðgurnar fóru utan til Malmö á fimmtudag en stórfjölskylda Eyþórs heldur út á næstu dögum og ætlar að styðja við bakið á honum. MYND/ÚR EINKASAFNI