Fréttablaðið - 11.05.2013, Qupperneq 6
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
SKIPULAGSMÁL Ekki verður frekari þróun
hafnarlands í Reykjavík með landfylling-
um. Útmörk heimilda um fyllingar í sam-
þykktum skipulagsáformum hafa verið
fullnýttar. Efnismóttöku á Kleppssvæði í
Sundahöfn á vegum Faxaflóahafna verður
því hætt í þessum mánuði, eftir 100 ára
sögu þeirrar starfsemi.
Á vegum Faxaflóahafna hefur móttöku
á burðarhæfu fyllingarefni, sem til hefur
fallið úr framkvæmdum á höfuðborgar-
svæðinu, verið sinnt um langan tíma.
Þetta fyllingarefni hefur verið nýtt til
landgerðar og þróunar hafnarlands við
Gömlu höfnina og Sundahöfn. Með þess-
um hætti hefur höfnin fengið fyllingarefni
með hagkvæmum hætti en í staðinn hafa
þeim sem í framkvæmdum hafa staðið
boðist stuttar vegalengdir við brottflutn-
ing efnis, og umhverfisáhrifum og kostn-
aði við flutning efnis með þessu haldið í
lágmarki.
Nú eru liðin nákvæmlega 100 ár frá því
að efnisflutningar hófust í Reykjavík við
upphaf hafnargerðar. Frá þeim tíma hefur
hafnarland verið fyllt út og þróað í sam-
ræmi við þróunaráform og þarfir á hverj-
um tíma. - shá
Þróun hafnarsvæða í Reykjavík er lokið samkvæmt fyrirliggjandi skipulagi:
Hætta móttöku fyllingarefnis í höfninni
NÁTTÚRA Umhverfisstofnun hefur látið afmá stafina
sem úðað var með olíumálningu á hól í miðju náttúru-
vættisins Hverfjalls (Hverfells) í Mývatnssveit. Nú
sjást nánast engin ummerki eftir áletrunina en ekki er
útilokað að til frekari aðgerða þurfi að grípa síðar.
Eins og greint var frá í fréttum voru í síðastliðn-
um mánuði sex stórir stafir úðaðir með olíumáln-
ingu á hól í miðju fjallsins. Áletrunin [Crater] var
mjög áberandi og greinilegt að mikil vinna hafði
farið í að búa hana til. Við að afmá stafina úr gígn-
um var að mestu notast við efni úr gígnum til að
hylja áletrunina, en um tíu lítrar af grárri málningu
og svolítið af þynni voru notaðir til að úða fyrst á
áletrunina til að hylja hana enn betur. Einnig var
litað inni í Grjótagjá, en landeigendur sjá þar um
hreinsun.
Lögreglan á Húsavík fer með rannsókn málsins
en er engu nær um hver eða hverjir voru þarna á
ferð. Nokkrar vísbendingar hafa verið kannaðar;
haft upp á fólki sem var á ferðinni á þessum slóðum.
Haft var samband við hóp fólks í gegnum tölvupóst
og rætt við fararstjóra. Þessi vinna hefur engu skil-
að enn. - shá
Rannsókn lögreglu hefur enn engu skilað um spellvirkja í Mývatnssveit:
Búið að afmá stafi í Hverfjalli
HVERFJALL Stafirnir voru 8-9 metrar á hæð.
SUNDAHÖFN Uppbygging hafnarsvæða
setur mikinn svip á borgarlandið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANDARÍKIN Líklegt er að sak-
sóknari fari fram á dauðarefsingu
yfir Ariel Castro, manninum sem
rændi þremur stúlkum á árunum
2002 til 2004 og hélt föngnum þar
til á mánudag.
Í Ohio-ríki er hægt að krefjast
dauðarefsingar fyrir dráp á ófædd-
um börnum. Michelle Knight hefur
greint lögreglu frá því að hún
hafi fimm sinnum orðið þunguð
í prísund inni. Í öll skiptin hafi
Castro svelt hana svo vikum skipt-
ir og svo kýlt hana ítrekað í mag-
ann þangað til hún missti fóstr-
in. Timothy McGinty saksóknari
hefur einnig sagt að Castro verði
ákærður fyrir hvert einasta brot
gegn konunum. Ákæruliðirnir
gætu þannig skipt hundruðum eða
þúsundum að lokum.
Þá staðfesti rannsókn á erfða-
efnum Castros og sex ára dóttur
Amöndu Berry að Castro er faðir
stúlkunnar. Berry hefur greint
frá því að hún hafi verið neydd
til að fæða barnið í lítilli uppblás-
inni sundlaug og Knight hafi tekið
á móti barninu. Knight greindi
frá því í viðtölum við lögreglu að
Castro hefði hótað henni lífláti ef
Dauðarefsing yfir
Castro möguleg
Líklegt þykir að saksóknari fari fram á dauðarefsingu yfir manni sem hélt þremur
stúlkum föngnum í um áratug í Cleveland. Maðurinn framkallaði fimm fósturlát
með barsmíðum og svelti. Hann er faðir sex ára stúlku sem fæddist í prísundinni.
Bæði móðir Ariels Castro og dóttir hans hafa tjáð sig við fjölmiðla um
mál hans. Móðirin Lillian Rodriguez bað ungu konurnar fyrirgefningar
í viðtali á fimmtudag. „Ég á sjúkan son sem hefur framið mjög
alvarleg afbrot. Ég þjáist mjög mikið.“
Arlene dóttir hans kom fram í viðtali hjá CNN í gær. Hún kallaði
hann öllum illum nöfnum og sagði að hann væri dáinn í hennar
augum. „Það verða engar heimsóknir og engin símtöl. Hann getur
aldrei orðið pabbi aftur. Ég hef enga samúð með manninum,“ sagði
hún meðal annars. Hún sagði pabba sinn hafa verið góðan við þau
systkinin og að hana hefði aldrei grunað hvað ætti sér stað á æsku-
heimili hennar. Þegar hún vissi sannleikann hefðu hins vegar ýmis
smáatriði raðast saman og hún hefði séð þau í nýju ljósi. Húsið
hefði alltaf verið harðlæst, hún hefði stundum ekki fengið að koma
inn í húsið strax og pabbi hennar hefði stundum horfið á meðan á
heimsóknum hennar stóð.
➜ Dóttir og móðir Castro miður sín
Meðal þeirra 200 hluta sem teknir
hafa verið úr húsinu sem sönnunar-
gögn herma fréttir að sé langt bréf
sem Castro sjálfur skrifaði árið 2004.
Í bréfinu kemur ýmislegt fram um
hagi Castros. Meðal þess sem sagt er
að komi þar fram er að honum hafi
sjálfum verið nauðgað af frænda
sínum þegar hann var barn og að for-
eldrar hans hafi líka misnotað hann.
Þá segist hann vera níðingur en biður
einnig um að allar eigur hans renni til
fórnarlamba hans eftir dauða hans.
➜ Vildi að eigurnar færu
til fórnarlamba
Málþing um nýsamþykkt lög um dýravelferð
fimmtudaginn 16. maí kl. 13:30 -16:15
Dagskrá
13:30 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra setur málþingið
13:40 Kristinn Hugason: Kynningarerindi um hin nýju lög,
aðdraganda þeirra, megin inntak og tilgang
14:00 Sigurborg Daðadóttir: Breyttar áherslur í starfi að
velferð dýra og nýtt hlutverk Matvælastofnunar
14:20 Fyrirspurnir til KH og SD
14:30 Kaffihlé
15:00 Bændasamtök Íslands, afstaða bænda til hinna nýju laga
15:15 Dýraverndarsamtök Ísland, afstaða dýravina til nýrra laga
15:30 Pallborðsumræður / fyrirspurnir
16:15 Ráðstefnuslit og léttar veitingar
Málþingið fer fram í Sjávarútvegshúsinu Skúlagötu 4
og eru allir velkomnir. Skráning á anr.is.
Dýravelferð
www.anr.is
PO
RT
h
ön
nu
n
NIÐURLÚTUR CASTRO Castro tjáði sig ekkert þegar hann kom fyrir réttinn á
fimmtudag. Sagt er að bréf frá honum greini frá misnotkun sem hann sjálfur varð
fyrir og játningar á brotum gegn stúlkunum. NORDICPHOTOS/AFP
barnið lifði ekki af, en hún blés lífi
í það skömmu eftir fæðinguna.
Ættingjar fyrrverandi konu
Castros hafa einnig stigið fram
og sagt frá því ofbeldi sem hann
beitti konu sína í mörg ár. Hann er
sagður hafa lamið hana oft, beitt
hana andlegu ofbeldi og læst hana
og börn þeirra inni í húsinu marg-
sinnis. Hún fór frá honum árið
1996 og lést í fyrra.
thorunn@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Haglabyssa og
skotfæri fundust í tösku í bíla-
leigubíl, sem hafði verið í útleigu
hjá bílaleigu á Suðurnesjum í
vikunni.
Starfsmaður bílaleigunnar
hafði tekið bílinn af leigjand-
anum þar sem bílnum hafði ekki
verið skilað á settum tíma. Þá
neitaði maðurinn einnig að greiða
leiguna og sagði að trygginga-
félag ætti að gera það.
Lögreglan gerði byssuna og
skotfærin upptæk.
Ósvífinn leigutaki:
Fundu byssu
í bílaleigubíl