Fréttablaðið - 11.05.2013, Síða 10
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
ALLT SENT FRÍTT HEIM AÐ DYRUM
Husse fóður og aðrar gæludýravörur er nýjung á Íslandi. Fyrirtækið Husse var stofnað
í Svíþjóð fyrir 25 árum og er enn rekið af sömu fjölskyldunni. Husse leggur allan sinn
metnað í að framleiða bestu mögulegu vörur fyrir litlu málleysingjana því það er
okkar skylda að gefa þeim það allra besta - sem þau eiga auðvitað skilið.
Allar Husse vörur er framleiddar samkvæmt ströngustu gæðastöðlum.
Leyfðu dýrinu þínu að smakka og finna muninn.
BARA ÞAÐ BESTA FYRIR GÆLUDÝRIÐ ÞITT
Kíktu á www.husse.is og skoðaðu úrvalið!
Söluaðilar okkar um land allt bíða spenntir að skutla vörum þínum heim að dyrum
SWEDISH QUALIT
Y P
ET
FO
OD
!
HÖFUNDARRÉTTUR Norska Stór-
þingið samþykkti í vikunni laga-
frumvarp sem gæti takmarkað
verulega möguleika Norðmanna á
ólöglegu niðurhali. Framkvæmda-
stjóri SMÁÍS, samtaka myndréttar-
hafa, kallar eftir því að sambærileg
lög verði sett hér á landi.
„Það skortir úrræði á Íslandi
til að bregða fæti fyrir ólöglegt
niðurhal. Hér hafa verið reknar
síður með íslensku eignarhaldi
sem dreifa höfundarvörðu efni án
greiðslu í mörg ár án þess að hægt
hafi verið að loka á þær,“ segir
Snæbjörn Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri SMÁÍS.
Þá segir Snæbjörn að íslensk
stjórnvöld ættu að líta til nýju lag-
anna í Noregi. „Íslensk stjórnvöld
ættu að skoða vel þá vinnu sem
hefur farið fram í Noregi. Þessi
lög, sem víðtækur stuðningur var
við í þinginu, eru afrakstur margra
ára vinnu þar sem allir hagsmuna-
aðilar voru leiddir að borðinu og
vandað til verks,“ segir Snæbjörn.
Norsku lögin veita þarlendum
eftirlitsaðilum heimild til þess að
loka fyrir aðgengi að vefsíðum,
bæði þeim sem skráðar eru í Nor-
egi og öðrum, sem brjóta með stór-
felldum hætti gegn höfundarréttar-
lögum. Þá verður framvegis hægt
að bera kennsl á þá einstaklinga
sem grunur leikur á að hafi brotið
höfundarréttarlög á netinu með því
að skoða IP-tölu viðkomandi.
Mikill stuðningur var við laga-
frumvarpið í norska Stórþinginu
en einungis tveir þingmenn kusu
gegn því. Nýju lögin taka gildi þann
1. júlí næstkomandi og er fastlega
búist því að gerð verði tilraun til
þess að loka fyrir aðgang að skrá-
ardeilingarsíðum eins og hinni
sænsku The Pirate Bay í kjölfarið
en norskir dómstólar munu hafa
vald til þess.
Rétthafar tónlistar, kvikmynda,
bóka og annars efnis sem hægt er
að dreifa á stafrænu formi án mik-
illa vandkvæða hafa lengi haft horn
í síðu ólöglegs niðurhals. Telja rétt-
hafar að þeir verði árlega af stórum
upphæðum vegna ólöglegs niður-
hals.
Þannig segir Snæbjörn að
ólöglegt niðurhal á Íslandi kosti
hinar skapandi greinar hátt í tvo
milljarða á ári. „Við létum gera
könnun á neyslu Íslendinga á kvik-
mynda- og tónlistarefni í mars
2011. Sú könnun leiddi í ljós að lang-
stærstur hluti neyslunnar fer fram
í gegnum vefsíður þar sem lista-
menn og rétthafar fá ekkert fyrir
vinnu sína. Enn fremur sáum við
að tæplega fimmtungur hefði keypt
efnið hefði það ekki verið aðgengi-
legt í gegnum þessar síður,“ segir
Snæbjörn.
magnusl@frettabladid.is
Lokað á ólög-
legt niðurhal
Norðmanna
Ný lög í Noregi gera þarlendum stjórnvöldum kleift
að loka fyrir sjóræningasíður þar sem höfundarréttar-
vörðu efni er dreift. Framkvæmdastjóri SMÁÍS kallar
eftir því að sambærileg lög verði sett á Íslandi.
Íslensk
stjórnvöld
ættu að skoða
vel þá vinnu
sem hefur
farið fram í
Noregi.
Snæbjörn Steingrímsson,
framkvæmdastjóri SMÁÍS
NIÐURHAL Könnun sem SMÁÍS lét framkvæma árið 2011 bendir til þess að ólög-
legt niðurhal kosti skapandi greinar á Íslandi hátt í 2 milljarða króna á ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÚTIVIST Ekkert verður af gerð stíga meðfram
Eyvindará og Lagarfljóti þar sem þessi vatnsföll
liggja næst Egilsstaðaflugvelli. Nokkrir íbúar sendu
bæjaryfirvöldum undirskriftalista með ósk um stíga
meðfram og utan girðingar umhverfis flugvallar-
svæðið þannig að hægt væri að komast gangandi og
hjólandi umhverfis völlinn.
Isavia, sem annast rekstur Egilsstaðaflugvall-
ar, lagðist alfarið gegn stígagerðinni af öryggis-
ástæðum. „Forsvarsmenn Isavia eru þó tilbúnir að
fara í viðræður við sveitarfélagið um tilhögun og
fyrirkomulag göngustígs sem samræmist öryggis-
reglum flugvallarins, en kostnaður vegna hans verði
alfarið sveitarfélagsins,“ bókaði mannvirkjanefnd
Fljótsdalshéraðs.
„Nefndin vekur athygli á að þetta er dýr fram-
kvæmd og ekki fyrirsjáanlegt að sveitarfélagið hafi
bolmagn í svona verkefni á næstu árum,“ hélt mann-
virkjanefndin áfram. Til að koma til móts við athuga-
semdir íbúanna lagði nefndin til að sett yrði í grein-
argerð með aðalskipulagi að umferð gangandi manna
meðfram Eyvindará og Lagarfljóti yrði ekki hindruð.
Þessa niðurstöðu samþykkti bæjarstjórnin. - gar
Undirskriftalistar dugðu ekki til stígagerðar umhverfis Egilsstaðaflugvöll:
Flugvallarstígar of áhættusamir
Á EGILSSTAÐAFLUGVELLI Isavia sagði útfærslu hugmyndar
um stíga umhverfis flugvöllinn stangast á við öryggiskröfur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BANGLADESS, AP Björgunarmenn í Bangla-
dess fundu í gær konu á lífi í rústum verk-
smiðju sem hrundi fyrir átján dögum.
Konan heitir Reshma. Hún slasaðist ekk-
ert í hruni byggingarinnar en festist í stóru
rými í rústunum. Hún fann hins vegar
bæði vatnsflöskur og þurrmat og lifði á því
í sautján daga. Hún sagði fréttamönnum í
gær að hún hefði heyrt í björgunarmönnum
í marga daga og reynt að ná athygli þeirra.
Þegar hún loks fannst tók fjörutíu mínútur
að losa hana og var hún flutt á spítala.
Nú hafa yfir þúsund lík fundist í rústun-
um. - þeb
Yfir þúsund lík hafa fundist í rústunum í fataverksmiðjunni sem hrundi í Bangladess:
Kona fannst á lífi eftir sautján daga
RESHMA Læknar segja Reshmu ótrúlega vel á sig komna miðað við að hafa verið föst í sautján daga í rústunum.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/A
P
HOPPANDI KANÍNA Kanínan Tommi
sést hér hoppa yfir hlið í hindrunar-
hlaupi kanína sem fram fór í Branden-
burg í Þýskalandi fyrir skömmu.
NORDICPHOTOS/AFD