Fréttablaðið - 11.05.2013, Síða 30

Fréttablaðið - 11.05.2013, Síða 30
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Það er mikið um að vera í Frystihúsinu við Hafnar-braut þessa dagana. Þar býr og starfar ljós-myndarinn Spessi, sem á Listahátíð mun sýna í Ljósmyndasafninu myndir sem hann tók af mótorhjólaköppum í Kansas í Bandaríkjunum. Heiðurssess í vinnustofunni skipar veglegt mótorhjól sérsmíð- að fyrir Spessa en auk þess eru þar annað mótorhjól, nokkur reiðhjól, staflar af myndum og hundurinn Fidel sem Saga, dóttirin á heim- ilinu, tilkynnir mér að sé orðinn þrettán ára. En hvernig vildi það til að fjölskyldan flutti til Kansas í heilt ár? „Við Bergsteinn Björgúlfsson erum að vinna heimildarmynd um mótorhjólamenningu í Banda- ríkjunum og þótt ég hafi verið þar töluvert fannst mér einhvern veginn að ég þyrfti að búa þar um tíma til að komast almenni- lega inn í þetta. Ég lét smíða fyrir mig mótor hjól í Las Vegas 2008 og geymdi það í Memphis, þannig að ég hef verið að fara þangað yfir veturinn og viðra mig aðeins en gat aldrei stoppað nógu lengi. Til þess að fá landvistarleyfi lengur en þrjá mánuði ákváðum við að Áróra konan mín, sem var í listfræði í háskólanum hérna, færi í skipti- nám einhvers staðar í BNA. Hún gat ekkert valið hvert hún myndi fara og við urðum dálítið hissa þegar við fengum staðfestingu á að við værum að fara til Kansas. Okkur fannst það samt dálítið spennandi og ákváðum að láta slag standa og drífa okkur. Sem betur fer, því þetta var akkúrat staður- inn sem mig vantaði. Þetta er það sem maður sér fyrir sér þegar maður hugsar um Ameríku.“ Kúrekar á vélfákum Ekki hafði fjölskyldan verið lengi á staðnum þegar Spessi fór á stjá og leitaði að mótorhjólaköppum. „Af því að hjólið mitt er sérsmíð- að var smá vesen að fá það skráð, það vantar á það stefnuljós og hraðamæli og svona. Þá var mér bent á strák sem byggi í næsta bæ, 40 mílur í burtu. Ég mæti á staðinn, fer inn á kaffihúsið, hitti þar konu og spyr hana um mótor- hjólaverkstæði Hanks. Þá kemur í ljós að hann er maðurinn hennar og verkstæðið er bara beint á móti kaffihúsinu. Við náðum strax vel saman, töluðum sama tungumálið, mótorhjólatungumálið, og hann bara tók mig upp á sína arma. Kynnti mig fyrir hinum mótor- hjólagæjunum, enda ekki langt fyrir hann að fara til þess. Pabbi hans, sem er að verða sjötugur, er bæker og sömuleiðis allir vinir hans og þeir bara tóku mig inn í grúppuna eins og ekkert væri eðli- legra.“ Hvað er svona sérstakt við þessa menningu? „Þetta er svolítið eins og þjóðflokkur þannig að þetta var eiginlega etnógrafísk rann- sókn líka. Það er talið að þetta hafi byrjað upp úr stríðinu þegar hermennirnir sem höfðu barist í seinni heimsstyrjöldinni komu heim og áttu erfitt með að aðlagast venjubundnu lífi. Það eru her hjól úti um allt sem hægt er að fá fyrir lítinn pening og hermennirnir fara að mynda klíkur sem fara um á mótorhjólum dálítið eins og kú- rekarnir gerðu í villta vestrinu. Þetta er alveg sama stemningin.“ Snýst um frelsi Hvað með lífstílinn sem goðsögn- in segir að fylgi mótorhjólaköpp- unum, er þetta villt líf? „Alls ekki. Í Kansas er þetta bara eðlilegur hluti af tilverunni, ómengað af ein- hverju hipsterdóti. Þetta eru bara venjulegir menn sem fara um á mótorhjólum. Það er samt auð- vitað hluti af menningunni að setja sínar eigin reglur og vera á móti yfirvaldi. Það er arfleifðin frá fyrstu mótorhjólaklíkunum. Þetta snýst um frelsi, það er ekki til meiri frelsistilfinning en að vera á fleygiferð á mótorhjóli eftir veg- inum, algjörlega sinn eigin herra. Það jafnast ekkert á við það.“ Þótt Spessi sé fluttur heim hefur hann engan veginn sagt skilið við Ameríku. Planið er að hefja tökur á heimildarmyndinni í febrúar á næsta ári og þá ætlar hann að hjóla frá New York til Hollister og rekja sögu mótorhjólamenningarinnar aftur á bak. Áætluð frumsýning er svo 2015. Þangað til er hægt að ylja sér við myndirnar á Ljósmynda- safninu, en sýningin verður opin fram í ágúst. Lúta eigin lögmálum Mótorhjólakappar í Kansas eru viðfangsefni ljósmyndarans Spessa á sýningunni Nafnlaus hestur. Spessi bjó í tæpt ár í Manhattan í Kansas og upplifði af eigin raun þá sérstæðu menningu sem mótorhjólunum fylgir. KOMINN HEIM Jackie er reyndar hermaður, en byssur eru almenningseign í Kansas. FÁKURINN PRJÓNAR Hank, vinur Spessa og velgjörðarmaður. EITT SINN BÆKER– ÁVALLT BÆKER Jesse James, mótorhjólasmiður í Salina. Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is NAFNLAUSI HESTURINN HVÍLDUR Spessi lét sérsmíða hjólið í Las Vegas og tók með sér til Kansas. MYND/HENRY
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.