Fréttablaðið - 11.05.2013, Qupperneq 54
| ATVINNA |
Byggðastofnun óskar að ráða
sérfræðing til starfa.
Byggðastofnun óskar eftir að ráða starfsmann á þróunar-
svið stofnunarinnar. Í undirbúningi er að setja upp nýjan
gagnagrunn á sviði byggðamála hjá stofnuninni og er leitað
að starfsmanni til að leiða þá vinnu og síðan að þróa og
viðhalda grunninum. Því er æskilegt að viðkomandi hafi
reynslu af landupplýsingakerfum. Jafnframt þarf viðkomandi
að vera tilbúinn til að vinna að öllum þeim þáttum byggða-
mála sem þróunarsviðið sinnir en það eru fjölbreytt verkefni
svo sem vinnsla byggðaáætlunar, skýrslugerð og úttektir
á sviði byggðamála, samskipti við atvinnuþróunarfélög,
starfræksla landsskrifsstofu NPP og NORA og samskipti við
ESPON svo eitthvað sé nefnt.
Hæfniskröfur:
• Háskólanám sem nýtist.
• Þekking á hönnun gagnagrunna.
• Reynsla af verkefnastýringu.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum..
• Hæfileiki til að vinna sjálfstætt og eiga auðvelt
með að koma fyrir sig orði munnlega og skriflega.
Staðsetning starfsins er á Sauðárkróki. Launakjör eru sam-
kvæmt kjarasamningi Samtaka starfsfólks fjármálafyrirtækja.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 25. maí nk. og skulu umsóknir með
upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendar til
Byggðastofnunar, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn Sigurðsson, forstöðu-
maður þróunarsviðs, sími 455 5400 eða 895 8653.
Byggðastofnun hefur það að markmiði að vera eft-
irsóknarverður vinnustaður fyrir hæfa og metnaðarfulla
starfsmenn, konur jafnt sem karla. Rúmlega 20 manns starfa
hjá stofnuninni sem hefur á að skipa vel menntuðu fólki með
fjölbreytta reynslu.
Sauðárkrókur er höfuðstaður Skagafjarðar og einn
öflugasti byggðakjarni landsbyggðarinnar. Þar er fjöl-
breytt og öflugt atvinnulíf. Fjölbreytt þjónusta er í boði,
kröftugt menningarlíf og öflugt íþróttalíf. Boðið er upp á
skóla á öllu skólastigum, frá leikskóla til háskóla.
Íbúar Sauðárkróks eru um 2.600 talsins.
Höfðaskóli auglýsir:
Lausar stöður
Leitað er eftir aðstoðarskólastjóra, námsráðgjafa
og kennurum á mið- og unglingastig.
Höfðaskóli á Skagaströnd er lítill skóli með 100 nemendum.
Skólinn er vel búinn til kennslu og er vinnuaðstaða kennara
góð. Á heimasíðu skólans, http://hofdaskoli.skagastrond.is ,
má sjá allar helstu upplýsingar um skólastarfið.
Barnvænt umhverfi, gott samstarfsfólk og lág
húsaleiga!
Skagaströnd er kauptún með um 530 íbúum í tæplega þriggja
klst. fjarlægð frá Reykjavík. Þar er öll almenn þjónusta í boði,
s.s. leikskóli, íþróttahús og heilsugæsla.
Nánari upplýsingar veita Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri, vs.
452 2800, gsm 849 0370.
Hægt er að senda umsóknir á netfangið
hofdaskoli@skagastrond.is
Umsóknarfrestur er til 25. maí.
Höfðaskóli Skagaströnd
Sími: 452 2800, fax: 452 2782,
íþróttahús: 452 2750,
Veffang: http://hofdaskoli.skagastrond.is
Netfang: hofdaskoli@skagastrond.is
Engineering Manager
The Foundry Division is strengthening its engineering resources for expansion and
maintenance projects. It is a prioritized area for the Division, to secure quality, cost,
and timely execution of strategic important development projects. Our Engineering
Manager will soon be retiring and we are seeking replacement for the position.
Areas of responsibility:
Facilitate innovation of engineering design solutions for FeSi furnace and melting
plant
•
Coordinate engineering work with internal and external designer partners•
Support plants in design concept, basic and detailed engineering for strategic
projects
•
Secure that the Foundry Division has the necessary specialist engineering
resources and support available to reach strategic targets for technology
development
•
Review and approval of technical content of development projects and
investment requests at the Division plants
•
Qualifications required for the posisiton:
Master of Science in Mechanical Engineering or Engineering Design•
Minimum 10 years experience in industrial engineering•
Preferably, specialist experiences in electric smelting process for metals or alloys•
Some Cad-designer capabilities are preferable•
Fluent English, written and oral•
Good cooperation skills and teamwork abilities•
Project and people management experiences•
Location: Akranes (Iceland), Oslo or Kristiansand (Norway).
Extensive travelling may be required in periods.
Visit our website www.elkem.com/career for more information about the
position and to submit your application within 31 May 2013.
Elkem is one of the world's leading companies for environment-friendly production of materials.
Its main products are silicon, solar grade silicon, special alloys for the foundry industry, carbon
and microsilica. The company has production facilities in Europe, North America, South America
and Asia, as well as a network of sales offices. Elkem is owned by China National Bluestar.
Elkem Foundry Technology is the technology department in the Foundry Products Division. The
unit consists of 15 employees, covering specialist competences within raw materials, process
support, quality assurance, engineering & projects, products R&D, business system and EHS. The
department is responsible for development to improve operations of specialty products in the
foundry area. Engineering activities involve support to development projects in the Foundry
Division plants in Norway, Iceland, Canada, and China.
traustir bílstjórar – sumarafleysingar
og framtíðarstörf
Eimskip leitar að bílstjórum í sumarafleysingar og í framtíðarstörf við akstur dráttar- og
flutningabíla á þjóðvegum.
Um er að ræða dag- og vaktavinnu. Meirapróf (C) er skilyrði fyrir ráðningu og réttindi til að aka
með tengivagn (CE) eru æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Már Þorvarðarson í síma 525 7761.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um störfin á heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is.
Umsóknarfrestur er til 16. maí 2013.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er
skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.FÍT
O
N
/
S
ÍA
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is
Hjá Eimskip starfar öflugur hópur fólks sem hefur gildi félagsins, árangur, samstarf og traust
að leiðarljósi í störfum sínum. Nú leitum við að nýjum liðsmönnum til starfa.
11. maí 2013 LAUGARDAGUR8