Fréttablaðið - 11.05.2013, Síða 61
| ATVINNA |
Ljósmóðir á
Heilbrigðisstofnun
Suðausturlands,
Hornafirði
Laus er til umsóknar staða ljósmóður við Heil-
brigðisstofnun Suðausturlands Hornafirði. Á stofn-
uninni er fæðingardeild með skilgreint þjónustustig
D1. Ljósmóðir sinnir jafnframt ungbarna- og mæðra
-vernd á heilsugæslustöð ásamt því að sinna al-
mennum hjúkrunarstörfum. Starfskjör eru samkvæmt
kjarasamningi LMFÍ og ríkisins og stofnanasamningi HSSA.
Upplýsingar veita Matthildur Ásmundardóttur, fram-
kvæmdastjóri matthildur@hssa.is, og Ester Þorvalds-
dóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslu, ester@hssa.is, í síma
470-8600. Upplýsingar er einnig að finna á heimasíðu heil-
brigðisstofnunarinnar www.hssa.is. Umsóknafrestur er
27. maí og umsóknir skulu sendar til framkvæmdastjóra.
Heilbrigðisstofnunin er rekin af Sveitarfélaginu
Hornafirði með þjónustusamning við ríkið og eru íbúar
Sveitarfélagsins um 2.200. Hornafjörður er fjölskyldu-
vænt og blómstrandi samfélag í ríki Vatnajökuls. Auk
stórkostlegrar náttúru og útsýnis sem á sér vart
hliðstæðu er á Hornafirði að finna fjöl-
breytta þjónustu og afþreyingu sundlaug,
söfn og sýningar, golfvöll og margt fleira.
Heimasíða sveitarfélagsins er www.rikivatnajokuls.is.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Aðstoðarskólastjóri
Staða aðstoðarskólastjóra við Setbergsskóla er laus til
umsóknar.
Setbergsskóli er heildstæður grunnskóli þar sem 400 nem-
endur stunda nám. Hornsteinar skólastarfsins eru virðing,
víðsýni og vinsemd.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til
að taka þátt í að stjórna og leiða áfram gott faglegt samstarf
í skólanum og hafa að leiðarljósi að gott skólastarf má ávallt
bæta. Skólinn hefur í áraraðir haft á að skipa góðu fagfólki
og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi.
Mikil áhersla er lögð á samvinnu, teymisvinnu og skapandi
hugsun og starfsgleði. Í skólanum er unnið samkvæmt
SMT-skólafærni. Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfi-
leika og góða og víðtæka þekkingu á skólastarfi og
metnaðarfulla skólasýn.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennarapróf, kennslu- og stjórnunarreynsla
• Framhaldsmenntun eða reynsla á sviði
stjórnunar æskileg.
• Frumkvæði og samstarfsvilji.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sé reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
• Reynsla og/eða þekking á SMT-skólafærni
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf um-
sækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau
verkefni sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á
færni hans til að sinna stjórnunarstarfi.
Allar upplýsingar um stöðuna veitir María Pálmadóttir,
skólastjóri í síma 565 1011/664 5880 maria@setbergsskoli.is
Umsókn ber að skila á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar,
Linnetsstíg 3, 220 Hafnarfjörður.
Umsóknarfrestur er til 24. maí 2013.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt
sem konur hvattir til að sækja um stöðuna. Laun og kjör eru
samkvæmt samningum KÍ og launanefndar sveitarfélaga.
Sviðsstjóri fræðsluþjónustu Hafnarfjarðar
Vilt þú vinna spennandi
verkefni með okkur?
Hlíðasmári 3 | 201 Kópavogur | Sími: 458 4000 | airatlanta.com
Flugvirki óskast hjá Air Atlanta Icelandic
Menntunar- og hæfniskröfur:
Deildarstjóri tæknilegrar þjálfunar / Manager Technical Training
Starfssvið:
18. maí 2013
Starfssvið:
Starfið felur í sér sölu og ráðgjöf til viðskiptavina ásamt
umsjón með útliti og vörum deildarinnar.
Um er að ræða fullt starf, hlutastarf og helgarstarf.
Hæfniskröfur:
Stúdentspróf eða sambærileg menntun
Af verslunar- og sölu störfum nauðsynleg.
Góð almenn tölvuþekking, s.s. Word og Excel.
Vel máli farin(n) og með gott vald á íslensku
í ræðu og í riti. Nauðsynlegt að viðkomandi eigi auðvelt
með að skilja, tala og rita ensku.
Að umsækjandi spili golf og hafi þekkingu og brennandi
áhuga á golfíþróttinni. Frumkvæði og sjálfstæð vinnu-
brögð.
Lipurð í mannlegum sam skiptum, þjónustulund og
fáguð framkoma.
@ Umsóknarfrestur er til 25. maí.
Við óskum eftir starfsfólki í nýja og glæsilega
er leiðandi sportvöruverslunar keðja
með starfsemi um allan heim.
Verslanir á Íslandi eru staðsettar á
Bíldshöfða í Reykjavík, Lindum í Kópavogi,
á Selfossi og Akureyri.
Atvinnutækifæri
LAUGARDAGUR 11. maí 2013 15